Vilja að nafnlausi tindurinn heiti Helgatindur

Nafnlaus tindur sem stendur um 60 metra upp úr ísbreiðu Vatna­jök­uls ætti að heita Helga­tindur til heið­urs Helga Björns­syni jökla­fræð­ingi, segir í til­lögu sem sveit­ar­stjórn Skafár­hrepps hefur sam­þykkt fyrir sitt leyti.

Nafnlausi tindurinn til hægri á myndinni. Efst eru Geirvörtur.
Nafn­lausi tind­ur­inn til hægri á mynd­inni. Efst eru Geir­vörtur. Mynd: Snævarr Guðmundsson

Tillaga var nýverið lögð fyrir sveit­ar­stjórn Skaft­ár­hrepps um örnefni áður nafn­lausan fjallstind í Vatna­jökli. Lagt er til að tind­ur­inn fái nafnið Helga­tindur, til heið­urs Helga Björns­syni jökla­fræð­ingi.

Að til­lög­unni standa Gunnar Guð­munds­son, pró­fessor við Háskóla Íslands, Snævarr Guð­munds­son, Sviðs­stjóri Nátt­úru­stofu Suð­aust­ur­lands og Leifur Örn Svav­ars­son, fjalla­leið­sögu­maður.

[adspot]

Tind­ur­inn sem um ræðir er 1.374 metrar á hæð og er um 2,5 kíló­metra vestan frá Geir­vörtum og um 4 kíló­metra norð­austur af Hágöngum og er innan Skaft­ár­hrepps.

Í bréfi sem þre­menn­ing­arnir sendu sveit­ar­stjórn kemur fram að hann til­heyri Þórð­ar­hyrnu-eld­stöðv­ar­kerf­inu sem er virk meg­in­eld­stöð, og tengdur hnjúka­röð með stefnu í Þórð­ar­hyrnu. Aðrir tindar í þess­ari hnjúka­röð eru þó á kafi í jökli og sjást ekki, en þeir komu fram í íssjár­mæl­ingum Helga Björns­sonar jökla­fræð­ings sem voru gerðar á síð­ustu ára­tugum, til þess að rann­saka botn Vatna­jök­uls. Umræddur tindur mun þó hafa staðið upp úr jök­ul­yf­ir­borð­inu, alla vega á 20. öld.

Samkvæmt íslenskri eld­fjalla­sjá hefur virkni þó verið lítil í þess­ari meg­in­eld­stöð síð­ustu 10-12 þús­und ár en síð­asta gos var þó árið 1903.

Til suð­urs frá tind­inum skríður Beina­dals­jök­ull en að norðan og vestan Síðu­jök­ull. Hann er mynd­aður úr rýó­líti (líp­arít) og nokkuð ljós-/grá­leitur ásýndar. Tind­ur­inn rís um 60 metra upp úr jökl­inum og þar sem hann er svip­aður að hæð og Geir­vörtur sést hann víða að. Til suð­urs frá honum er fjalls­hryggur, einnig í jökli, en hefur orðið sífellt meira áber­andi á síð­ustu árum vegna hörf­andi jökla. „Með tíð og tíma á tind­ur­inn sjálfur eftir að verða jafn­vel enn meira áber­andi vegna jökla­rýrn­unar,“ skrifa þre­menn­ing­arnir.

„Við leggjum til að hann verði nefndur Helga­tindur, til heið­urs Helga Björns­syni jökla­fræð­ingi,“ skrifa þeir svo.

Kortlagði allan botn Vatnajökuls

Helgi Björns­son pró­fessor emeritus við Háskóla Íslands hefur ára­tugum saman rann­sakað jökla lands­ins, ásamt sam­starfs­mönnum sínum. Meðal ann­ars kort­lagt allan botn Vatna­jök­uls með ísjá þannig að hægt var að sjá nákvæm­lega lands­lagið undir jökl­inum. „Um er að ræða mikið vís­inda­legt afrek sem hefur haft ómet­an­leg áhrif á þekk­ingu á jökla­fræði á Íslandi og í heim­inum,“ segir í bréf­inu.

Vegna þess­arar kort­lagn­ingar hefur verið hægt að útbúa spálíkön um fram­tíð jöklanna, með til­liti til lofts­lags­breyt­inga, afmarka vatna­svið ein­stakra skrið­jökla sem sumir eru vatns­forða­búr til raf­orku­fram­leiðslu, meta jökla­bú­skap og leggja til gögn sem nýt­ast í að meta hvernig þeir hafa þró­ast frá land­námi.

[adspot]

„Með þessu merka fram­lagi hafa opn­ast ný tæki­færi til þess að auka þekk­ingu okkar enn frekar á íslenskum jöklum. Með þess­ari nafn­gift viljum við heiðra Helga fyrir hans vís­inda­störf,“ skrifa þeir Gunnar, Snævarr og Leifur Örn og ósk­uðu svo eftir því að sveit­ar­stjórn tæki erindið til skoð­unar og afgreiðslu.

Sveit­ar­stjórnin tók erindið til afgreiðslu á fundi í síð­ustu viku og sam­þykkti sam­hljóða fyrir sitt leyti til­lögu að nýju örnefni á fjallstind­inn. Erindinu var svo vísað til end­an­legrar ákvarð­ana­töku nafn­fræðis­viðs Stofn­unar Árna Magn­ús­sonar í íslenskum fræðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár