Segir sumargjafir eigenda Samherja til afkomenda „kannski í stærri kantinum“

Þing­maður VG segir að til­færsla eig­enda Samherja á fjár­munum til afkom­end­anna end­ur­spegli stór­gallað kvóta­kerfi hér á landi.

Lilja Rafney Magnúsdóttir
Lilja Rafney Magn­ús­dóttir Mynd: Skjáskot/Hringbraut

„Sum­ar­gjafir eru góður og þjóð­legur siður – að gefa börn­unum sínum sum­ar­gjafir – en sum­ar­gjafir eig­enda Samherja til barn­anna sinna eru kannski í stærri kant­inum. Þær nema tugum millj­arða króna í til­færslu frá eig­endum Samherja til afkom­enda sinna og þetta end­ur­speglar stór­gallað kvóta­kerfi með óheftu fram­sali og sam­þjöppun til stórra fjár­magns­eig­enda.“

Þetta sagði Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, undir dag­skrár­liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Fjármagnseigendur í stórum útgerðarfélögum í engum tengslum við hagsmuni þjóðarinnar

[links]„Fjár­magnið stýrir að stórum hluta hverjir nýta sjáv­ar­auð­lind­ina og hvar hún er nýtt og hvar arð­ur­inn á auð­lind­inni lendir. Það hefur orðið gíf­ur­leg sam­þjöppun í grein­inni á þessum þrjá­tíu árum sem óhefta fram­salið var sett á og fjár­magns­eig­endur hluta­bréfa í stórum útgerð­ar­fé­lögum eru í engum tengslum við hags­muni þjóð­ar­innar eða íbúa sjáv­ar­byggð­anna sem hafa margoft þurft að blæða fyrir þegar lifi­brauð þeirra og afkoma fer á einni nóttu.“

Hún sagði að þetta gæti varla kall­ast ásætt­an­legt við stjórn á sam­eig­in­legu auð­lind Íslend­inga.

[adspot]

Gallarnir komið í ljós

Lilja Rafney sagði enn fremur að þegar óhefta fram­salið hefði verið sett á árið 1990 með lögum þá hefði það verið gert með hag­ræð­ing­ar­kröfu að leið­ar­ljósi – að lög­mál mark­að­ar­ins myndu auka hag­kvæmi veið­anna. „En frá þeim tíma hafa allir þessir gallar komið í ljós og komið í veg fyrir eðli­lega þróun í sjáv­ar­byggðum lands­ins. Græðgi, brask og miklir fjár­munir hafa runnið frá grein­inni í óskylda starf­semi.“

Þing­mað­ur­inn benti á að hægt væri að stýra auð­lind­inni með öðrum hætti með nýt­ing­ar­samn­ingum, end­ur­út­hlutun og að koma auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá. „Það verður að koma í veg fyrir að svona miklir fjár­munir af sam­eig­in­legum auð­lindum okkar renni á milli kyn­slóða sem byggj­ast á sam­eign þjóð­ar­innar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár