Vill endurskoðun peningastefnu og lægri skatta á landsbyggðinni

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn kynnti stefnu­mál sín fyrir kosn­ingar á fundi í dag.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, með Sigurð Inga Jóhanns­son for­mann og Lilju D. Alfreðs­dóttur vara­for­mann í broddi fylk­ingar, kynnti stefnu­mál sín í dag og lagði meðal ann­ars áherslu að pen­inga­stefnan verði end­ur­skoðuð.

Þá vill flokk­ur­inn að Land­spít­al­inn verði byggður upp á nýjum stað og að lámarks­líf­eyrir aldr­aðra verði 300 þús­und krónur og fylgi lág­marks­launum á almennum vinnu­mark­aði.

Helstu atriði í kynn­ingu flokks­ins á stefnu­málum hans, fyrir kosn­ingar 29. októ­ber næst­kom­andi, má sjá hér að neðan.

Áherslu­mál Fram­sóknar fyrir kosn­ingar

Hagur milli­stétt­ar­innar verði bættur enn frekar; neðra skatt­þrep verði lækkað veru­lega og per­sónu­af­sláttur verður útgreið­an­legur

Pen­inga­stefn­una skal end­ur­skoða, raun­vextir á Íslandi þurfa að end­ur­spegla breyttan efna­hags­legan veru­leika

Lág­marks­líf­eyrir aldr­aðra verði 300 þús­und krónur á mán­uði og fylgi lág­marks­launum á almennum vinnu­mark­aði

Byggður verður nýr Land­spít­ali á nýjum stað og fram­lög til heil­brigð­is­stofn­anna um allt land aukin

Tann­lækn­ingar aldr­aðra verða gjald­frjálsar og hjúkr­un­ar­rýmum fjölgað um allt land

Taka skal upp komu­gjald á ferða­menn sem nýtt verður til inn­viða

Fæð­ing­ar­or­lof verði 12 mán­uðir og greiðslu­þak hækkað í 600 þús­und krónur, barna­bætur hækk­aðar og barna­föt verði án virð­is­auka­skatts

Hluta náms­lána verður breytt í styrk og sér­stök áhersla lögð á að styrkja iðn- og verk­nám

Skoðað verði hvort beita megi skattaí­viln­unum til fyr­ir­tækja og ein­stak­linga á efna­hags­lega veikum svæðum á lands­byggð­inni

Unnið skal eftir sókn­ar­á­ætlun í lofts­lags­málum sem er að fullu fjár­mögnuð til næstu þriggja ára í sam­ræmi við skuld­bind­ingar Íslands í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu

Aðstoða ungt fólk með úrræð­inu Fyrsta fast­eign og öðrum aðgerðum í hús­næð­is­málum – leigu­í­búðir og fjölgun náms­manna­í­búða

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár