Ungverjar lengja girðinguna eftir landmærunum við Króatíu

Jafnvel þó Króatar hafi lokað sjö af átta merktum leiðum yfir landa­mærin milli Serbíu og Króatíu í gær halda flótta­menn áfram að koma til Króatíu eftir að leið­inni til Ung­verja­lands frá Serbíu var lokað með ung­verskri girð­ingu á landa­mær­unum. Straumur flótta­fólks til Evrópu liggur nú um Króatíu en þar ótt­ast fólk að leiðin lok­ist.

Króat­ísku lög­regl­unni hefur ekki tek­ist að hemja flaum­inn en beindi flótta­fólk­inu að lest­ar­stöð í landamæra­bænum Tovarnik þar sem nokkur þús­und manns eyddu nótt­inni undir berum himni, að sögn frétta­rit­ara Reuters. Aðrir heldu áfram ferða­lagi sínu og komust til Slóveníu í norðri áður en nóttin var úti.

Síðustu tvo daga hefur straumur flótta­fólks legið til Króatíu eftir að Ung­verjar lok­uðu landa­mærum sínum að Serbíu og beittu óeirða­lög­reglu með tára­gas og vatns­byssur gegn flótta­fólk­inu sem mót­mælti harka­legri með­ferð ung­verskra stjórn­valda á aðkomu­fólk­inu. Sky News segir að um það bil 13.300 manns hafi komið til Króatíu síðan á mið­viku­dag. Í morgun til­kynnti Viktor Orban, for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands, hlust­endum rík­is­út­varps­stöðvar Ungverja að nú ætli stjórn­völd að reisa girð­ingar á landa­mærum Ung­verja­lands og Króatíu.

Nýja girð­ingin verður reist á 41 kíló­metra kafla þar sem landa­mærin eru ekki mörkuð með nátt­úru­legum hindr­unum eins og ám. Bæði Króatía og Ung­verja­land eru aðild­ar­ríki að Evr­ópu­sam­band­inu (ESB), ólíkt Serbíu þaðan sem flótta­fólkið reynir að kom­ast inn fyrir landa­mæri ESB.

Flótta­fólk hóf að koma til Króatíu í stórum hópum á mið­viku­dag og sagði þá for­sæt­is­ráð­herra Króatíu, Zoran Mila­nović, að landið væri reiðu­búið til að hjálpa fólk­inu að kom­ast heilu og höldnu til Slóveníu og áfram til rík­ari landa í norðri. Breska dag­blaðið The Guardian greinir svo frá því að aðeins klukku­stundum síðar hafi orðið ljóst að króat­ísk yfir­völd hafi van­metið fjölda fólks sem hugð­ist fara um Króatíu og norður. Strax hafi það mis­tek­ist að útvega nógu mörg pláss í lestum á leið til Slóveníu.

Helstu landamæri og landamærastöðvar


Smelltu á lín­urnar og punkt­ana til að lesa nánar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár