Rík­is­stjórn í myndun Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir og Viðreisn þykir koma til greina frekar en Inga Sæland við myndun nýrrar rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks­ins þvert yfir miðju, án Bjarna Bene­dikts­sonar og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Mynd: Pressphotos

Unnið að ríkisstjórn undir forsæti Katrínar Jakobsdóttur

Katrín Jakobs­dóttir verður forsætis­ráðherra í ríkis­stjórn Framsóknar­flokksins, Vinstri grænna, Samfylkingar, Pírata og jafnvel Viðreisnar, ef viðræður flokkanna ganga eftir. Flokkar með 75 til 86 prósent hlutfall karla verða skildir eftir í stjórnar­andstöðu ef þetta gengur eftir.

Unnið er að myndun nýrrar ríkis­stjórnar án Bjarna Benedikts­sonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar, sem Katrín Jakobs­dóttir veitir forsæti. 

Samkvæmt heimildum Stundarinnar er fjöl­flokka ríkis­stjórn yfir miðju á teikniborðinu, eins og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar­flokksins, boðaði í gær. Þessi stjórn myndi brjóta blað í stjórnmála­sögu Íslands, með fimm til sex flokka í ríkis­stjórn.

Mikil leynd er yfir þeim óformlegu stjórnar­myndunar­þreifingum sem standa yfir og halda flokkarnir spilunum þétt að sér. Viðmælendur Stundarinnar úr þing­flokkunum eru misbjartsýnir en telja þó líklegt að fram­haldið skýrist í dag eða á morgun. 

Karlaflokkar settir í stjórnarandstöðu

Sú ríkis­stjórn sem nú er efst á teikniborðinu undan­skilur þrjá þing­flokka sem eru með hlutfall karla á bilinu 75 til 86 prósent; Sjálfstæðis­flokk Bjarna Benedikts­sonar, Miðflokk Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar og Flokk fólksins undir formennsku Ingu Sædal. Ekki er þó útséð með aðkomu Flokks fólksins að ríkis­stjórninni, en líklegra er að Viðreisn verði valin fram yfir hann, sem eykur frjáls­lynda áherslu, en takmarkar um leið tekju­aukningu ríkis­sjóðs í gegnum skatta­hækkanir. 

Forsætis­ráðherra í nýrri ríkis­stjórn yrði Katrín Jakobs­dóttir, formaður Vinstri grænna. Katrín hefur notið trausts þvert á flokka. Í skoðana­könnun sem Gallup framkvæmdi í fyrra kom fram að um 40 prósent lands­manna vildu að Katrínu Jakobs­dóttur sem forsætis­ráðherra. 25,6 prósent vildu Bjarna Benediktsson og 14,3 prósent Sigurð Inga Jóhannsson.

Áhersla á innviði

Ef fimm til sex flokka ríkis­stjórn ætti að ganga upp þyrftu allir flokkar að gefa verulega eftir.

Vara­formaður Framsóknar­flokksins, Lilja Alfreðs­dóttir, átti frumkvæði að því að slá Evrópu­málin út af borðinu í viðtali við Ríkis­útvarpið í gær, þegar hún sagði Framsóknar­flokkinn leggjast eindregið gegn því að kosið yrði um aðild eða aðildar­viðræður í þjóðar­atkvæða­greiðslu á kjör­tímabilinu. 

Þor­gerður innViðreisn verður lík­lega hluti af rík­is­stjórn yfir miðju, fremur en Flokkur fólks­ins.

Þetta yrði erfitt fyrir Samfylkinguna og Viðreisn, sem og að hluta Pírata vegna áherslu þeirra á beint lýðræði, en þess ber að geta að Viðreisn gaf eftir nánast að fullu í Evrópu­málum við myndun ríkis­stjórnar með Sjálfstæðis­flokki í janúar, þegar fallist var á að staðið yrði í vegi fyrir þingmáli um þjóðar­atkvæði þar til undir lok kjör­tímabils.

Ekki er talið að mikill ágrein­ingur sé um að fara svokallaða svissneska leið í húsnæðis­málum, sem var eitt helsta áherslumál Framsóknar­flokksins í kosninga­baráttunni. Í henni felst að greiðslur í lífeyris­sjóði virki sem innborgun á fyrstu íbúð. 

Þá er samhljómur um útgjalda­aukningu til innviða­fjár­festinga. Allir flokkar hafa lofað að leggja meira til heilbrigðis­mála. Hins vegar gæti ásteitingarsteinn verið í skatta­málum, þar sem Vinstri grænir og Samfylking hafa viljað hækka skatta á stóreigna- og/eða hátekju­fólk, en Viðreisn staðið gegn skatta­hækkunum. Píratar eru opnir í skatta­málum, en hafa lagt til að fjármagns­tekju­skattur verði hækkaður úr 20 prósent í 30 prósent.

Óljóst er hvernig útfærsla á loforðum einstakra flokka getur gengið eftir, en Flokkur fólksins hefur til að mynda lofað því að persónu­afsláttur verði tvöfaldaður strax, Samfylking lofað tvöföldun barnabóta, en Viðreisn lagt áherslu á að skuldir ríkis­sjóðs verði greiddar og þannig dregið úr vaxta­kostnaði.

Rofið sam­bandSig­mundur Davíð Gunn­laugs­son lét Sigurði Inga Jóhanns­syni eftir for­sæt­is­ráðu­neytið í fyrra eftir að hags­muna­á­rekstur sem kom fram í Panama­skjölin gerði honum ómögu­legt að halda áfram. Síðan tók Sigurður Ingi af skarið og bauð sig fram í for­mennsku hjá Fram­sókn­ar­flokks­ins, við mikla óánægju Sig­mundar.

Stjórn með Sjálfstæðisflokki gekk ekki

Tilraunir til myndunar ríkis­stjórnar Sjálfstæðis­flokks, Framsóknar­flokks og Vinstri grænna strönduðu í gær, en samkvæmt heimildum Stundarinnar vildu Vinstri grænir að Samfylking yrði aðili að slíkri ríkis­stjórn. 

Þá er talið að samband Sigurðar Inga Jóhanns­sonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar sé of stirt til þess að reynandi sé að stofna til samstarfs þeirra á milli, en hins vegar er málefna­legur samhljómur milli Fram­sóknar- og Miðflokks.

Því er enn mikil óvissa um ríkis­stjórnar­myndun og allt eins mögulegt að horfið verði aftur að þeim möguleika að mynda ríkis­stjórn Sjálfstæðis­flokks, Miðflokks, Framsóknar­flokks og Flokks fólksins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár