Þórólfur segir „komið að stjórnvöldum“ að taka ákvarðanir

Við þurfum að læra að lifa með kór­ónu­veirunni næstu mán­uði og jafn­vel ár og því er komið að hafa sjón­ar­mið ann­arra en sótt­varna­læknis í ákvarð­ana­töku. „Ég held að það sé komið að stjórn­völdum að koma meira inn í það,“ segir Þórólfur Guðnason.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir ýmis­legt jákvætt hægt að tína til um stöðu far­ald­urs COVID-19. Færri ný smit hafi greinst í gær og fyrra­dag en dag­ana þar á undan og þá hafi tveir af þeim þremur sem greindust í gær verið í sótt­kví. Meðal þeirra 83 sem nú eru sýktir séu alvar­leg veik­indi sjald­gæf. Einn liggur á sjúkra­húsi og sá er ekki á gjör­gæslu­deild. 

En að hans mati er of snemmt að fagna sigri. Enn þurfi að líða nokkrir dagar áður en hægt sé að slá ein­hverju föstu um árangur af aðgerðum sem teknar voru upp fyrir síð­ustu helgi. Ekki þurfi mikið útaf að bregða til að litlar hóp­sýk­ingar blossi upp.

Þetta var meðal þess sem fram kom í máli sótt­varna­læknis á fundi almanna­varna og land­læknis í dag. Eitt helsta áhyggju­efnið í dag er að mati Þórólfs það hvernig hægt sé að miða fjölda far­þega sem hingað koma við þá sýna­töku­getu sem við búum yfir. Stjórn­völd séu þessa stund­ina að skoða hvaða leiðir megi fara til að tak­marka fjölda ferða­manna til lands­ins svo hægt sé að anna þeim sem hingað koma.

[adspot]

Hann sagði það sitt mat að halda ætti áfram að skima við landa­mærin til að lág­marka hætt­una á því að veiran kom­ist inn í landið. Ef fara ætti aðrar leiðir yrði áfram að gæta að hraða og öryggi sem væri örugg­lega ekki auð­velt. „En það er þá ann­arra að ákveða það og bera ábyrgð á því.“

[links]Að mati Þórólfs er ekki ástæða eins og staðan er í dag til að grípa til enn harð­ari aðgerða. Hins vegar væru yfir­völd í start­hol­unum að gera það ef end­ur­skoð­unar gerð­ist þörf.

Hann minnti á að reynslan sýndi að hlut­irnir breytt­ust oft mjög fljótt. Eina stund­ina stæði til að aflétta tak­mörk­unum en þá næstu væri komið að því að herða þær. „Við verðum að taka þetta frá degi til dags. Þannig verður það áfram. Ég veit að það er mjög óþægi­legt að geta ekki skipu­lagt sig fram í tím­ann og þannig er það líka hjá okkur. Ég vildi að veiran gæfi okkur færi á því að skipu­leggja okkur lengra fram í tím­ann en þannig er staðan hvað hana varðar.“

Ný staða

„Eins og ég hef margt oft sagt áður erum við á öðrum stað núna en í vor er allir voru sam­stíga í að kveða þessa veiru niður með öllum til­tækum ráðum,“ sagði hann um fram­haldið næstu mán­uði. „Nú erum við að sjá aðeins betur fram í tím­ann og það er algjör­lega ljóst að við þurfum að lifa með þess­ari veiru. Hún er í sókn alls staðar í heim­inum. Í vor var maður að vona að það væri farið að sljákka í henni alþjóð­lega séð í haust en það er alls ekki að ger­ast. Við erum ekki að fá bólu­efni, ein­hverja lausn á því að búa til ónæmi hérna í sam­fé­lag­inu. Þá þurfum við að ákveða hvernig við ætlum að lifa með veirunni til fram­tíðar og á sama tíma að láta sam­fé­lagið rúlla eins vel og eðli­lega eins og hægt er og taka þá til­lit til efna­hags­legra þátta og ann­arra þátta.“

En Þórólfur sagði það ekki verk­efni sótt­varna­læknis. Hans hlut­verk væri að ein­beita sér að sótt­varna­sjón­ar­miðum og það myndi hann áfram gera. „Ef við sjáum fram á það að þurfa að lifa með veirunni næstu mán­uði og ár þá þurfum við að vita hvernig við ætlum að haga okkar vörnum og á sama tíma að láta aðra hluti í sam­fé­lag­inu snú­ast eins vel og mögu­legt er.“

Því sagð­ist Þórólfur hafa kallað eftir því að sjón­ar­mið ann­arra kæmu nú að borð­inu í ákvarð­ana­tök­unni. „Ég held að það sé komið að stjórn­völdum að koma meira inn í það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár