Víðir: Rýmisgreind fólks er mismunandi

Meiri­hluti þeirra sem sýkst hefur af COVID-19 síð­ustu daga er ungt fólk. Land­læknir segir engan vilja lenda í því að sýkja aðra og biðlar til ungs fólks og aðstand­enda þeirra að skerpa á sótt­varn­ar­reglum.

Víðir Reynisson og Þórólfur Guðnason sýna hér hvað tveir metrar eru um það bil langir.
Víðir Reyn­is­son og Þórólfur Guðnason sýna hér hvað tveir metrar eru um það bil langir. Mynd: Lögreglan

„Við minnum bara aftur á þessar ein­stak­lings­bundnu sótt­varnir; hand­þvott­inn, spritt­un­ina og fjar­lægð­ina,“ sagði Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra á upp­lýs­inga­fundi dags­ins. „Við höfum fengið ábend­ingar um það að rým­is­greind fólks sé mis­mun­andi,“ sagði hann og breiddi út faðm­inn til að sýna fram á hvað felist í raun og veru í tveggja metra regl­unni. „Þetta hérna eru tæp­lega tveir metrar. Það er ágætt að hafa það til við­mið­unar og reyna að halda fólki í hæfi­legri fjar­lægð.

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í dag rifj­aði Alma Möller land­læknir upp smit­leiðir veirunnar. Hún sagði þörf á því, ekki síst í ljósi þess að flestir sem hafa smit­ast síð­ustu daga eru fólk undir þrí­tugu og hún ótt­að­ist að skila­boð um sótt­varnir væru ekki að ná til unga fólks­ins.

„Veiran berst fyrst og fremst með dropa­smiti,“ sagði Alma. „Frá önd­un­ar­vegi sýkts ein­stak­lings í litlum dropum og þeir geta svo borist í næsta mann ef hann er nálægt.“ Þess vegna væri tveggja metra reglan, sem Víðir not­aði lát­bragð til að sýna, svo mik­il­væg. Alma minnti enn­fremur á að veiran gæti borist á fleti sem ein­hverjir aðrir svo snerta og beri þeir hendur sínar að and­liti geta þeir sýkst. Talið er að veiran geti lifað í 2-3 daga á sléttum flötum.

[adspot]

Að þessu sögðu væri aðal­at­riðið að þvo sér oft, var­ast að snerta á sér and­litið og við­halda tveggja metra regl­unni. „Við skulum bíða með að takast í hendur og faðma bara okkar allra nán­ustu.“

Þá skal ekki hósta út í loftið heldur í pappír eða oln­boga­bót. Alma benti á að allar þessar aðgerðir virk­uðu einnig vel gegn mörgum öðrum sýk­ingum.

[links]Þar sem ungt fólk er að smit­ast meira nú en þeir sem eldri eru ætla almanna­varnir að skerpa á sínum skila­boðum til þeirra, m.a. á sam­fé­lags­miðlum. Einnig beindi Alma því til for­eldra að fræða sitt unga fólk. Alma var spurð á fund­inum hvort að ungu fólki væri kannski alveg sama hvort að það sýkt­ist og sagð­ist henni þykja það afar ólík­legt, „því hver vill verða fyrir því til dæmis að smita ein­hvern sér náinn.“

Þurfum að læra að lifa með veirunni

„Það er sem stendur óvissa um hvaða stefnu far­ald­ur­inn muni taka,“ sagði Alma, „hvort að smitum muni fjölga eða hvort okkur tekst öllum í sam­ein­ingu að ná tökum á smit­unum. Við teljum að við þurfum að læra að lifa með veirunni til lengri tíma og að það sé óhjá­kvæmi­legt að alltaf verði ein­hver smit í gangi. En hins vegar myndum við vilja hafa betri stjórn á aðstæðum akkúrat núna og þess vegna erum við í öllum þessum aðgerðum.“

Alma ítrek­aði að við værum í miklu betri stöðu núna en í vetur til að sinna þeim sem veikj­ast. „Covid-göngu­deildin heldur vel utan um alla og ef að fólk þarf inn­lögn þá búa læknar og annað heil­brigð­is­starfs­fólk yfir nauð­syn­legri þekk­ingu, reynslu, lyfjum og tækja­bún­aði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár