83 nú með COVID-19

Þrjú ný til­felli COVID-19 greindust hér á landi í gær, tvö hjá sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala og eitt hjá Íslenskri erfða­grein­ingu. 83 eru því með virk smit af kór­ónu­veirunni og í ein­angrun.

Fjöldi þeirra sem greinst hefur með virkt smit af kór­ónu­veirunni hér á landi síð­ustu daga er nú orð­inn 83. Slíkur fjöldi hefur ekki verið með COVID-19 hér á landi síðan 30. apríl er til­fellin voru 86. Fyrst komst fjöld­inn yfir átta­tíu 10. mars er 82 voru með virk smit. 

Þrjú ný til­felli greindust í gær, tvö hjá sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala og eitt hjá Íslenskri erfða­grein­ingu. Rann­sökuð voru 233 sýni hjá Land­spít­al­anum og 534 hjá Íslenskri erfða­grein­ingu.

[adspot]

Í gær voru 670 manns í sótt­kví en í dag er fjöld­inn kom­inn í 734. Einn liggur enn á sjúkra­húsi með COVID-19.

[links]Flestir hinna sýktu eru búsettir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þá eru flestir í ald­urs­hópnum 18-29 ára eða 27 sjúk­lingar.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði í morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun að bar­áttan við kór­ónu­veiruna væri meira en nokkrar orr­ustur – hún væri lang­tíma stríð. Ef vilji væri til að halda áfram á sömu braut yrði fram­haldið það að herða þyrfti og slaka á aðgerðum til skipt­ist næstu mán­uði og jafn­vel ár. Nú þyrftu fleiri að koma að borð­inu. Baráttan snérist ekki lengur aðeins um sótt­varnir, sem yrðu þó áfram hans sjón­ar­mið, heldur einnig póli­tík og efna­hags­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár