Kína krefst þess að Ísland skipti sér ekki af innanríkismálum

Sendiráð Kína á Íslandi segir í yfir­lýs­ingu að boðuð þátt­taka Íslands í þving­un­ar­að­gerðum vegna stöðu minni­hluta­hóps úígúr-múslima í land­inu sé ástæða þess að íslenskur maður sé kom­inn á svartan lista kín­verskra stjórn­valda, fyrir skrif í Morg­un­blaðið.

Kínverski fáninn á húni fyrir utan sendiráð ríkisins í Reykjavík.
Kín­verski fán­inn á húni fyrir utan sendi­ráð rík­is­ins í Reykja­vík. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Kín­verska sendi­ráðið á Íslandi segir í yfir­lýs­ingu á vef sínum í dag að þess sé kraf­ist að Ísland hætti að skipta sér af inn­an­rík­is­málum Kína og að ákvörðun Íslands um að taka þátt í boð­uðum refsi­að­gerðum Evr­ópu­sam­bands­ins og ríkja á Vest­ur­löndum vegna stöðu úígúr-múslima í Xinjiang-hér­aði í Kína grafi alvar­lega undan sam­skiptum Kína og Íslands.

Í stuttri yfir­lýs­ingu sendi­ráðs­ins segir einnig að sendi­herra Íslands í Kína hafi verið kall­aður á teppið í utan­rík­is­ráðu­neyti lands­ins og að afstaða Íslands til „svo­kall­aðra mann­rétt­inda­vanda­mála“ í Xinjiang-hér­aði byggi ekki á nokkru nema „lygum og mis­vísandi upp­lýs­ingum.“[links]

Einnig segir frá því í yfir­lýs­ing­unni að sú ákvörðun kín­verskra stjórn­valda að beita íslenskan mann sér­stökum refsi­að­gerðum, sem fel­ast meðal ann­ars í far­banni til Kína, séu svar við boð­aðri þátt­töku Íslands í fyr­ir­hug­uðum þving­un­ar­að­gerðum vest­rænna ríkja, sem boð­aðar voru í mars.

„Við krefj­umst þess að Ísland skuli virða full­veldi, öryggi og þró­un­ar­hags­muni Kína og hætti að skipta sér af inn­an­rík­is­málum Kína undir yfir­skyni mann­rétt­inda­mála,“ segir í yfir­lýs­ingu kín­verska sendi­ráðs­ins.

[adspot]

Guð­laugur Þór Þórð­ars­son utan­rík­is­ráð­herra stað­festi viðmbl.is í gær að til stæði að Ísland tæki þátt í boð­uðum þving­un­ar­að­gerðum gegn Kína vegna mann­rétt­inda­brota í Xinjiang-hér­aði. „Við til­kynntum rík­is­stjórn­inni og utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis það 30. mars,“ sagði Guð­laugur Þór við vef­inn.

Meinfýsnar lygar

Maðurinn sem kom­inn er á svartan lista Kína heitir Jónas Har­alds­son. Hann hefur skrifað nokkrar greinar um Kína og Kínverja í Morg­un­blaðið, meðal ann­ars eina þar sem lagt var til að Ísland og önnur ríki gerðu fjár­kröfur á Kína vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar, sem Kína ætti sök á.

Í yfir­lýs­ingu kín­verska sendi­ráðs­ins segir að Jónas hafi vegið að hags­munum Kína með því að breiða út lygar á mein­fýs­inn hátt.

Íslensk stjórn­völd hafa þegar komið á fram­færi mót­mælum við full­trúa Kína vegna þess­ara aðgerða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár