Árni Páll óviss með framhaldið og telur upp mistök flokksins

Árni Páll Árnason ætlar að taka afstöðu til þess á næstu vikum hvort hann ætli að gefa kost á sér áfram sem for­maður Sam­fylk­ingar. Hann segir flokk­inn hafa gert mis­tök í mörgum málum allt frá því hann tók sæti í rík­is­stjórn árið 2007.

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ingar, ætlar ekki að ákveða strax hvort hann gefur áfram kost á sér sem for­maður flokks­ins. Hann hefur sent flokks­fé­lögum langan póst um málið. Ákveðið var að flýta lands­fundi í gær og verður hann hald­inn í júní næst­kom­andi í stað byrjun árs 2017. Í aðdrag­and­anum verður ný for­ysta kosin í alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu. Árni Páll ætlar að ákveða á næstu vikum hvort hann ætli að bjóða sig áfram fram. Hann segir Sam­fylk­ing­una hafa gert mörg mis­tök, meðal ann­ars í Evr­ópu­sam­bands­málum og Icesave.

„Eftir umræðu und­an­far­inna vikna hefur fram­kvæmda­stjórn ákveðið að efna til lands­fundar og for­manns­kjörs í vor. Ég fagna þeirri ákvörðun. Við vildum öll vera að tala um breyt­ing­arnar sem þarf að gera,“ skrifar Árni Páll í bréf­inu. „Hvernig við byggjum upp nýtt efna­hags­kerfi, til að koma í veg fyrir að sömu menn­irnir skammti sér aðstöðu og rík­is­eignir, eins og í Borg­un­ar­hneyksl­inu nú og ótal slíkum hneykslum áður und­an­farna ára­tugi. Við ættum að vera að tala af krafti fyrir fleiri vel laun­uðum störfum og betri vel­ferð­ar­þjón­ustu, til að halda í fólkið sem nú leitar sér að fram­tíð í öðrum löndum. Og við ættum að vera að tala um lausnir í hús­næð­is­málum. En athyglin hefur verið ann­ars staðar og því verður að breyta.“

Hann segir nauð­syn­legt að flokk­ur­inn eigi sam­tal um ýmis mál, sem hann útlistar, til að skapa sátt og traust. „Við eigum að gera það sjálf, en líka kalla til leiks fólk sem er hætt að starfa með okkur eða er á jaðri flokks­ins. Við þurfum að funda um allt land og allir eiga að fá rödd í þess­ari umræðu. Það eina sem ég bið um er að við gerum þetta af heil­indum. Ég mun helga mig því verk­efni næstu vikur að greiða fyrir þess­ari umræðu og taka fullan þátt í henni. Seinna mun ég svo taka afstöðu til þess hvort ég gefi kost á mér á nýjan leik sem for­maður flokks­ins.“

Árni Páll segir að honum þyki „óend­an­lega vænt um Sam­fylk­ing­una og er afar stoltur yfir því trausti sem ég hef notið til að starfa í hennar þágu.“ Því líti hann á það sem skyldu sína sem for­manns að gang­ast fyrir því að flokk­ur­inn horfi „lengra og dýpra.“ Það skipti í sjálfu sér engu máli hver verði for­maður flokks­ins ef flokk­ur­inn horf­ist ekki í augu við sjálfan sig og hvernig komið er fram og fólkið í land­inu nálg­ast.

ESB og Icesave mistök

Hann útlistar mis­tök sem flokk­ur­inn hafi gert allt frá því að flokk­ur­inn fór í rík­is­stjórn árið 2007. „Við gengum þá inn í valda­kerfi hinna gömlu flokka, án þess að gera kröfu um grund­vall­ar­breyt­ingar [...] Flest okkar mis­tök fólust í því sama: Að ganga grónu kerfi á hönd án þess að gera kröfu um grund­vall­ar­breyt­ingar.“

Flokk­ur­inn hafi misst náið sam­band við verka­lýðs­hreyf­ing­una og tal­sam­band við atvinnu­lífið. Þá hafi hann stutt samn­ing um Icesave, sem ekki varði ítr­ustu hags­muni þjóð­ar­innar.

„Við byggðum aðild­ar­um­sókn að ESB á flóknu bak­tjalda­sam­komu­lagi, sem aldrei hélt, í stað þess að fá skýrt umboð frá þjóð­inni til að fara í aðild­ar­við­ræður, sem hefði bundið alla flokka við umsókn­ar­ferlið,“ skrifar hann um Evr­ópu­sam­bands­málið. Þá hafi flokk­ur­inn gert mis­tök í skulda­málum heim­il­anna, með því að ná ekki í gegn breyt­ingum á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu og í stjórn­ar­skrár­mál­inu.

Póstur Árna Páls í heild

Kæru vinir og sam­herjar.

Eftir umræðu und­an­far­inna vikna hefur fram­kvæmda­stjórn ákveðið að efna til lands­fundar og for­manns­kjörs í vor. Ég fagna þeirri ákvörðun. Við vildum öll vera að tala um breyt­ing­arnar sem þarf að gera. Hvernig við byggjum upp nýtt efna­hags­kerfi, til að koma í veg fyrir að sömu menn­irnir skammti sér aðstöðu og rík­is­eignir, eins og í Borg­un­ar­hneyksl­inu nú og ótal slíkum hneykslum áður und­an­farna ára­tugi. Við ættum að vera að tala af krafti fyrir fleiri vel laun­uðum störfum og betri vel­ferð­ar­þjón­ustu, til að halda í fólkið sem nú leitar sér að fram­tíð í öðrum löndum. Og við ættum að vera að tala um lausnir í hús­næð­is­málum. En athyglin hefur verið ann­ars staðar og því verður að breyta.

Með ákvörðun sinni bregst fram­kvæmda­stjórn við áskor­unum ýmissa flokks­manna upp á síðkastið um lands­fund og að for­ysta end­ur­nýji umboð sitt. Það er athygl­is­vert að fólki ber saman um að frek­ari aðgerða er þörf og að skýr­inga á stöðu Sam­fylk­ing­ar­innar sé ekki að leita ein­vörð­ungu hjá for­ystu flokks­ins.

Mér þykir óend­an­lega vænt um Sam­fylk­ing­una og er afar stoltur yfir því trausti sem ég hef notið til að starfa í hennar þágu. Þess vegna lít ég á það sem skyldu mína sem for­manns að gang­ast fyrir því að við horfum lengra og dýpra. Við þurfum að skapa sátt og traust okkar á milli og gagn­vart þjóð­inni.

Við leystum stóru verk­efnin

Sjálfur held ég að það skipti í sjálfu sér engu máli hver verður for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar ef Sam­fylk­ingin horf­ist ekki í augu við sjálfa sig og hvernig hún kemur fram og nálg­ast fólkið í land­inu. Við tökum ekki á rót vand­ans með mann­fórn, án heið­ar­legrar umræðu um orsakir þess­arar stöðu.

Við getum nefni­lega verið gríð­ar­stolt af verkum Sam­fylk­ing­ar­innar. Okkur hefur verið legið á hálsi fyrir að takast ekki vel upp í „stóru mál­unum“. En hvaða mál eru stærri en að takast á við 220 millj­arða halla á rík­is­sjóði, banka­kerfi á hlið­inni, 18% stýri­vexti og atvinnu­leysi sem stefndi í á annan tug pró­senta? Það er stóra verk­efnið sem við leystum vel og höfðum alltaf fólk í for­gangi. Lág­marks­bætur almanna­trygg­inga hækk­uðu um meira en 50% og voru ekki skertar um eina krónu í óhjá­kvæmi­legum nið­ur­skurði hruns­ins. Árangur okkar í við­snún­ingi eftir hrun hefur vakið athygli og aðdáun um allan heim. Útgjöldin lögð­ust á hópa með hærri tekjur, og fólk á með­al­tekjum og lágum tekjum bar minni byrðar en dæmi eru um á Vest­ur­löndum. Á sama tíma jukum við fram­lög í tækni­þróun, tókum á atvinnu­leysi ungs fólks, byggðum hjúkr­un­ar­heim­ili, styrktum sam­keppn­is­lög­gjöf og settum Íslands­met í sam­göngu­fram­kvæmdum, svo fáein dæmi séu nefnd.

En þrátt fyrir allt, nutum við ekki þess­ara góðu verka í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum og gerum það ekki nú í hugum kjós­enda.

Við búum við alvar­legan skort á trú­verð­ug­leika, sem kemur í veg fyrir að fólk styðji okkur. Við verðum að við­ur­kenna það og takast á við það. Öll, ekki bara sum.

Við gerðum mis­tök

Þrátt fyrir góð verk gerðum við ýmis mis­tök, allt frá því að við gengum í rík­is­stjórn 2007.

Við gengum þá inn í valda­kerfi hinna gömlu flokka, án þess að gera kröfu um grund­vall­ar­breyt­ingar. Þar með vorum við ófær um að takast á við fjöl­breytt hags­muna­tengsl pen­inga og stjórn­mála – sem enn eru ráð­andi – og þá blindu á hættur sem var ríkj­andi í aðdrag­anda hruns. Ingi­björg Sólrún hefur sjálf lýst þessu ágæt­lega og af miklu hug­rekki og beðist afsök­unar á sínum hlut í því.

En við fórum svo með allan þennan vanda óupp­gerðan með hraði í nýtt sam­band með VG.

Flest okkar mis­tök fólust í því sama: Að ganga grónu kerfi á hönd án þess að gera kröfu um grund­vall­ar­breyt­ingar. Flokk­ur­inn sem var stofn­aður um ný vinnu­brögð, íbúa­lýð­ræði og almanna­rétt lok­aði að sér og forð­að­ist sam­tal og neit­aði þjóð­inni um aðkomu að stórum ákvörð­unum í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Kjarninn okkar Við misstum það nána sam­band sem við höfðum haft við verka­lýðs­hreyf­ing­una og tal­sam­bandið við atvinnu­lífið.

Icesave Við studdum samn­ing um Icesave sem varði ekki ítr­ustu hags­muni þjóð­ar­innar og mæltum gegn þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hann.

Aðild­ar­um­sóknin Við byggðum aðild­ar­um­sókn að ESB á flóknu bak­tjalda­sam­komu­lagi, sem aldrei hélt, í stað þess að fá skýrt umboð frá þjóð­inni til að fara í aðild­ar­við­ræður, sem hefði bundið alla flokka við umsókn­ar­ferlið.

Skuldir heim­il­anna Þegar fólk var að drukkna í skulda­feni tókum við að okkur í of ríkum mæli að útskýra fyrir fólki að það ætti að borga skuldir sínar, í stað þess að taka okkur stöðu með fólki gegn fjár­mála­kerfi.

Fisk­veiði­stjórn­unin Við lof­uðum breyt­ingum á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfi en týndum okkur í lang­vinnum samn­ingum fyrir luktum dyrum við sam­starfs­flokk­inn um útfærslur á breyt­ingum, sem strönd­uðu svo hver á eftir annarri. Þess í stað hefðum við sem lýð­ræð­is­flokkur átt að leita til almenn­ings um stuðn­ing í glímunni við sér­hags­muna­öflin.

Stjórn­ar­skráin Við höfðum for­göngu um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar, en drógum það alltof lengi að áfanga­skipta verk­efn­inu til að koma mik­il­væg­ustu breyt­ing­unum í höfn. Ég tók um síðir af skarið, en í stað þess að sam­talið væri lif­andi og allt uppi á borðum var upp­lifun fólks sú að ég hefði brugð­ist og fórnað mál­inu og allt hefði klúðr­ast.

Þetta allt þarf að ræða til að hreinsa loftið, jafnt mín verk og allra ann­arra. Í þeirri umræðu mega ekki vera nein tabú eða helg vé. Mark­miðið er ekki að finna söku­dólg, heldur að axla sam­eig­in­lega ábyrgð á sam­eig­in­legum mis­tökum, svo þjóðin viti að við höfum lært af þeim og að kjós­endur geti óhræddir treyst Sam­fylk­ing­unni fyrir atkvæði sínu á nýjan leik. Við þurfum saman að senda skýrt þau skila­boð að við munum ekki fara aftur í rík­is­stjórn án þess að gera kröfu um grund­vall­ar­breyt­ingar.

Samstaða og traust okkar á milli

Við höfum nefni­lega sem hreyf­ing og sam­fé­lag ítrekað misst af tæki­fær­inu til að axla sam­eig­in­lega ábyrgð á mis­tökum, en frekar kosið að fórna ein­stak­lingum til að koma öðrum í skjól. Ingi­björg Sólrún baðst afsök­unar á sínum hlut. Sú afsök­un­ar­beiðni átti að vera okkur fagn­að­ar­efni og tæki­færi til að auð­velda flokknum að takast á við mis­tök í þeirri rík­is­stjórn. Í stað­inn var sú afsök­un­ar­beiðni nýtt sem synda­kvittun fyrir aðra. Flokk­ur­inn tók ekki félags­lega ábyrgð á próf­kjörum sem hann hafði efnt til, heldur fórn­aði Stein­unni Valdísi einni. Fram­gangan í Lands­dóms­mál­inu og fórn Stein­unnar Valdísar hafa skilið eftir djúp sár um alla okkar hreyf­ingu og sáð fræjum efa­semda um að við séum sam­hent sveit sem axli saman félags­lega ábyrgð á mis­tökum sem við gerum saman.

Ég hef oft sagt að Sam­fylk­ingin þurfi sjálf að vera gott sam­fé­lag, ef hún ætlar að breyta sam­fé­lag­inu til góðs. Það er alveg nóg af upp­hróp­unum, yfir­gangi og afar­kostum í dag­legri umræðu í sam­fé­lag­inu í dag og við eigum ekki að til­einka okkur þá sam­skipta­hætti. Við þurfum að breyta því hvernig við tölum hvert við annað. Við þurfum að tala betur hvert um annað, verja hvert annað og sýna að við séum gott og eft­ir­sókn­ar­vert sam­fé­lag. Ef sótt er að for­ystu­fólki í flokki og eng­inn kemur því til varnar, upp­lifir þjóðin það sem skila­boð um sund­ur­lausan flokk sem ekki sé treystandi.

Við erum ólík og fögnum fjöl­breyti­leik­anum

Við þurfum að leysa úr læð­ingi þann glað­sinna sköp­un­ar­kraft, sem ein­kenndi starf og fram­göngu Sam­fylk­ing­ar­innar lengi framan af. Okkur þótti svo mik­il­vægt að vera saman að við fund­uðum fram á nætur til að finna sam­eig­in­lega afstöðu sem vit var í og allir gátu lifað við. Besti vitn­is­burð­ur­inn um það er að fram­sækin öfl í sam­fé­lag­inu í dag beita enn sömu rökum og við mót­uðum í okkar starfi um auk­inn arð af sam­eig­in­legum auð­lindum, lýð­ræð­isum­bætur, nýt­ingu og vernd nátt­úru­svæða og aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Í þessum málum tókst okkur að skapa sátt um heild­stæða stefnu með almanna­hags­muni að leið­ar­ljósi. Í öllum þessum til­vikum þorðum við að leita svara með breiðum hópi fólks, innan sem utan flokks og leit­uðum bestu þekk­ingar og reynslu.

Sam­fylk­ingin þarf nefni­lega líka að svara þeirri spurn­ingu af heið­ar­leika hvort hún er til­búin að vera breið fjölda­hreyf­ing. Vill hún vera fram­tíð­ar­flokkur, sem tekur sér stöðu í sam­fé­lag­inu miðju og fagnar sam­vinnu við verka­lýðs­hreyf­ingu og atvinnu­líf, þekk­ing­ar­sam­fé­lagið og frjáls félaga­sam­tök? Er Sam­fylk­ingin til­búin að rúma ólíkar skoð­anir en sam­ein­ast um meg­in­línur félags­legs rétt­lætis og jafnra tæki­færa, eða er gerð krafa um eina skoðun og eina leið í öllum málum? Fyrri leiðin er leið fjölda­hreyf­ingar jafn­að­ar­manna. Seinni leiðin er leið hefð­bund­ins vinstri flokks. Við verðum að velja þar á milli.

Leiðin fram

Við þurfum núna að eiga sam­tal um þetta allt, til að skapa sátt og traust. Við eigum að gera það sjálf, en líka kalla til leiks fólk sem er hætt að starfa með okkur eða er á jaðri flokks­ins. Við þurfum að funda um allt land og allir eiga að fá rödd í þess­ari umræðu. Það eina sem ég bið um er að við gerum þetta af heil­indum. Ég mun helga mig því verk­efni næstu vikur að greiða fyrir þess­ari umræðu og taka fullan þátt í henni. Seinna mun ég svo taka afstöðu til þess hvort ég gefi kost á mér á nýjan leik sem for­maður flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár