Himnasending frá Slóveníu til Texas

Nítján ára gam­all Slóveni hefur skilið áhorf­endur eftir gap­andi á leikjum Dallas Mavericks í NBA deild­inni í vetur. Hann sýndi Íslend­ingum enga mis­kunn á EM í Finn­landi 2017, þá 18 ára gam­all. Hann er nú þegar stór­kost­legur leik­maður.

Nágranna­slagur í Texas, 8. des­em­ber 2018. Raf­magnað and­rúms­loft er í American Airlines Center höll­inni í Dallas.

Houston Rockets er með yfir­hönd­ina í leiknum þegar tvær og hálf mín­úta eru eftir, 102 - 94. Þá tók einn efni­leg­asti körfu­bolta­maður heims­ins til sinna ráða.

Dró fram hvert vopnið á fætur öðru. Þriggja stiga skot, gegn­umbrot og mögnuð fóta­vinna og bolta­með­ferð.

Á þessum rúm­lega tveimur mín­útum skor­aði Sló­ven­inn Luka Doncic, sem verður tví­tugur 28. febr­úar næst­kom­andi, ell­efu stig og tryggði glæstan sigur á nágrönn­unum í Rockets, með sjálfan James Harden, besta leik­mann síð­asta keppn­is­tíma­bils (MVP), í broddi fylk­ingar.

Doncic er sonur Sasa Doncic, goð­sagnar í körfu­bolt­anum í Slóveníu. Hann lék með lands­liði Slóvena árum saman, á sautján ára ferli sem leik­maður á árunum 1993 til 2010. Hann þjálfar nú liðið þar sem hann hóf feril sinn, Ilirija í höf­uð­borg­inni Ljúblj­ana.

Sem nýliði í deild­inni hefur Doncic verið hreint stór­kost­legur á fyrri helm­ingi keppn­is­tíma­bils­ins í NBA deild­inni. Hann hefur að með­al­tali skorað rúm­lega 20 stig í leik og verið í lyk­il­hlut­verki hjá liði sínu. Fá dæmi eru um að leik­maður sem er ekki orð­inn tví­tugur hafi jafn mikil áhrif í NBA og Doncic hefur haft.

Nefna má helst Lebron James og Kobe Bryant, tvo af bestu leik­mönnum allra tíma, en þeir komu báðir beint úr High School inn í deild­ina, 18 ára gamlir. Á fyrsta keppn­is­tíma­bili sínu skor­aði James rúm­lega 20 stig í leik, svo dæmi sé tekið, og Bryant um 12 stig.

Doncic er nú í öðru sæti yfir þá sem hafa fengið flest atkvæði fyrir stjörnu­leik­inn 15. febr­úar, sem fram fer í Charlotte, á eftir Lebron James. Segja má að hálf­gert Doncic æði hafi gripið um sig meðal körfu­bolta­að­dá­enda í Banda­ríkj­unum. Allir vilja sjá hann leika listir sínar.

Lítur ekki út eins og nýliði

Það sem hefur komið mörgum á óvart er hversu þrosk­aður körfu­bolta­maður Doncic er. Hann þykir afburða leik­maður og búa yfir fjöl­breyttum sókn­araf­brigðum. Tíma­setn­ingar ákvarð­ana í leik hans eru eins hann hafi spilað í mörg ár í deild­inni.

Ástæðan kann að vera sú að hann hefur mikla reynslu miðað við aldur. Hann hefur verið val­inn besti leik­maður (MVP) Evr­ópu­deild­ar­ar­innar nú þegar, þegar hann lék með Real Madrid, og var orð­inn lyk­il­maður í sterku liði Slóvena þegar hann var 17 ára.

Doncic sló í gegn á EM í Finn­landi 2017. Þá sást langar leiðir að þarna var sér­stakur leik­maður á ferð­inni. Gegn Íslend­ingum, í byrjun leiks, sýndi hann mátt sinn. Meðal ann­ars lenti Hlynur okkar Bær­ings­son í því að dekka hann í eitt skiptið og Doncic færði hann áreynslu­laust nokkra metra í burtu frá sér, steig fim­lega skref aftur á bak utan þriggja stiga lín­unnar - eitt­hvað sem fáir körfu­bolta­menn gera betur en hann - og setti niður þriggja stiga skot.

Minnir á Petrovic

Félagi Doncic í lands­liði Slóvena, Goran Dragic, sem er einn lyk­il­manna Miami Heat, er einn þeirra sem hefur ekki látið vel­gengni Doncic koma sér neitt á óvart. „Ég hef fylgst með honum síðan hann var krakki og vel­gengni hans kemur mér ekk­ert á óvart,“ sagði Dragic í við­tali í des­em­ber. Hann bætti við að Doncic ætti án nokk­urs vafa eftir að verða einn besti körfu­bolta­maður heims­ins. Hann væri nú þegar búinn að þagga niður í efa­semd­ar­rödd­unum sem heyrð­ust þegar ljóst varð, að Dallas væri að veðja þetta ungan pilt frá Slóveníu.

[adspot]Sem leik­maður minnir Doncic um margt á Króatann Drazen Petrovic, sem lést í bílslysi 6. júlí 1993, þá 29 ára gam­all. Hann var líkt og Doncic frá­bær skot­maður og fjöl­hæfur í sókn­ar­að­gerðum, bæði í bak­varðar og fram­herja­stöðu. Petrovic var ekki síst þekktur fyrir að ryðja braut­ina fyrir aðra leik­menn frá Evrópu og sanna að þeir gætu vel staðið sig vel í NBAdeild­inni. Hann var á hápunkti fer­ils síns árið 1992 þegar hann lék frá­bær­lega á Ólymp­íu­leik­unum í Barcelona, þar sem Króatar tóku silfur og Draumalið Banda­ríkj­anna gull.

Doncic virð­ist hafa burði til þess að skrifa nýjan kafla í þeirri sögu, þó enn sem komið er hafi eng­inn Evr­ópu­búi náð við­líka árangri í NBA deild­inni og Þjóð­verj­inn Dirk Nowitzki, félagi Doncic hjá Dallas. Hann er nú að verða 41 árs gam­all og hefur spilað í deild­inni í rúm­lega tvo ára­tugi, en hann kom inn í deild­ina sem nýliði 1998. Grikkinn Giannis Antetokounmpo er á góðri leið með að verða goð­sögn einnig, enda einn besti leik­maður deild­ar­innar þessi miss­erin, á sínu sjötta tíma­bili.

Það verður að koma í ljós hvort Doncic end­ist jafn lengi og Nowitzki í fremstu röð en hann hefur burði til að ná alla leið á topp­inn.

Uppfært: Lebron James skor­aði rúm­lega 20 stig að með­al­tali í leik, þegar hann kom inn í deild­ina, en ekki rúm­lega 18 stig, eins og stóð í fyrstu útgáfu. Þetta hefur nú verið leið­rétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár