Porosjenkó: Helsta ógnin er stórsókn rússneska hersins

Petro Porosjenkó, for­seti Úkraínu, segir Rússa enn ógna Úkraínu með öllum her­mætti sínum þó nokkrir rólegir dagar hafi nú liðið í átökum úkra­ínskra stjórn­valda við aðskiln­að­ar­sinna aust­ast í land­inu. Reuters greinir frá þessu.

Þetta lét for­set­inn hafa eftir sér eftir rík­is­stjórn­ar­fund í dag, sem hald­inn var í skugga slitn­andi sam­steypu­stjórnar og versn­andi lífs­gæða almenn­ings í Úkraínu. Porosjenkó segir Rússa vilja „kæfa efna­hag rík­is­ins og koma honum úr jafn­vægi“ með banni sínu á inn­flutn­ing úkra­ínskra mat­væla. Þá hefur Úkraínu ekki tek­ist að semja við Rússa um verð­myndun gass úr austri með þeim þeim afleið­ingum að gas­birgðir Úkraínu eru litlar fyrir kom­andi vetur.

Stjórn­völd í Kreml þrýsta nú á stjórn Porosjenkó að borga þriggja millj­arða doll­ara skulda­bréf að fullu í des­em­ber. Með því hafa Rússar skilið sig frá öðrum lána­drottnum stjórn­valda í Kænu­garði sem hafa allir slegið af end­ur­greiðslu­kröfum sínum. Úkraína glímir við mik­inn erlendan skulda­vanda og hafa und­an­farna mán­uði átt í við­ræðum við lána­drottna sína. Í lok ágúst tókst stjórn­völdum að semja um skuld­breyt­ingu 18 millj­arða doll­ara.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Petro Porosjenkó var í Brussel nýverið þar sem hann ræddi meðal ann­ars við Donald Tusk, for­seta fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins. Úkraína hefur í auknum mæli leitað á náðir vest­rænna ríkja í stað Rúss­lands. Það er meðal ann­ars ástæða þess að átök brut­ust út í Úkraínu í byrjun árs 2014.[/caption]

Enn er haldið í vopna­hléssam­komu­lag sem gert var við aðskiln­að­ar­sinna í Austur-Úkraínu, þó áfram hafi verið barist. Und­an­farna daga hefur verið hljóð­lát­ara; sprengjur og byssu­kúlur eru hættar að rigna yfir vígl­in­una. Porosjenkó telur sig hins vegar vita að Rússar eigi eftir að leggja til atlögu og beita her sínum í átök­unum. „Ég er viss um að helsta ógnin nú sé stór­sókn Rúss­lands,“ sagði hann.

Aðskiln­að­ar­sinnar í aust­ur­hluta Úkraínu er taldir fá stuðn­ing rúss­neska hers­ins í bar­áttu sinni um yfir­ráð í aust­ari hér­uðum Úkraínu sem eiga landa­mæri að Rúss­landi. Stjórn­völd í Kænu­garði halda því fram að Rússar skaffi aðskiln­að­ar­sinnum vopn og að hugs­an­lega taki rúss­neskir her­menn þátt í átök­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár