Vopnin til kljást við eignabólur á fasteignamarkaði

Vaxandi umræða hefur verið um þjóð­hags­var­úð­ar­tæki til að sporna við ofhitnun á fast­eigna­mark­aði. En hvaða tæki eru þetta? Um þetta er meðal ann­ars fjallað í nýrri skýrslu Reykja­vík Economics um fast­eigna­mark­að­inn.

Fasteignaverð hefur hækkað um tæplega 20% á einu ári.
Fast­eigna­verð hefur hækkað um tæp­lega 20% á einu ári. Mynd: Anton Brink

Í nýrri skýrslu Reykja­vík Economics fyrir Íslands­banka, um stöðu mála á hús­næð­is­mark­aði, er meðal ann­ars fjallað um þau stjórn­tæki sem stjórn­völd og seðla­bankar hafa sem kalla mætti þjóð­hags­var­úð­ar­stjórn­tæki (e. Macroprudential Policy Framework - MaP).

Til­gangur þeirra er að vakta þá þætti sem „gætu raskað stöð­ug­leika fjár­mála­kerf­is­ins“. Þeir beita var­úð­ar­tækjum í því skyni að fyr­ir­byggja og bregð­ast við kerf­is­á­hættu, að því er segir í skýrsl­unni, en umræða um þau hefur ekki síst verið mikil eftir fjár­málakrepp­una fyrir tæpum ára­tug. Í því sam­hengi hefur meðal ann­ars verið horft til þess hvernig seðla­bankar geti greint betur eigna­bólur.

Töluverð umræða hefur átt sér stað hér á landi að und­an­förnu, um hvort fast­eigna­bóla sé að koma fram, en fast­eigna­verð hefur hækkað um tæp­lega 20 pró­sent á einu ári. Mikil eft­ir­spurn er eftir eignum, en tölu­vert vantar upp á að fram­boð sé nægi­legt til að mæta eft­ir­spurn­inni. Búist er við því að fast­eigna­verð muni halda áfram að hækka á næstu miss­erum.

Vopnin til að berjast gegn bólum

Í skýrsl­unni er meðal ann­ars vitnað til hug­mynda Avinash Dixit, hag­fræð­ings frá Indlandi, sem fjalla meðal ann­ars um hvernig með tryggja rekstr­ar­hæfi fjár­mála­stofn­anna með þjóð­hags­var­úð­ar­tækjum í tengslum við fram­kvæmd pen­inga­stefn­unnar.

Fram kemur í skýrsl­unni að þjóð­hags­var­úð­ar­tækin, sem hægt sé að nota, til að kæla hag­kerfið og fast­eigna­mark­aði, séu nokkur.

Nefnt er að vaxta­stýr­ing­ar­tæki seðla­banka eigi almennt á litið að vera nægj­an­legt til að draga úr mögu­legri hús­næð­is­verð­bólu. Þetta sé þó meiri áskorun í starf­semi seðla­banka í dag en oft áður vegna þess að stýri­vextir margra seðla­banka hafa verið í sögu­legu lág­marki í þeim til­gangi að styðja við end­ur­reisn hag­kerfa eftir alþjóð­legu fjár­málakrepp­una.

Hvernig mætti hugsa sér að stjórntækin væru nýtt?

Sér­stak­lega eru nefndar fjórar leiðir í skýrsl­unni.

Fyrst er að nefna lækkun á veð­hlut­föllum lána. „Þjóð­hags­var­úð­ar­stjórn­tæki myndu fyrst og fremst koma að gagni við að stjórna láns­fjár­hlut­falli (e. Loan-to-Value – LTV), t.d. með því að lækka almennt láns­fjár­hlut­fall úr 80% í 75% af mark­aðsvirði í við­skiptum,“ segir í skýrsl­unni.

Önnur leið væri að setja skil­yrði um hlut­fall tekna og greiðslu­byrði útistand­andi lána (e. debt-service-to-income – DSTI), þ.e.a.s. að „lán geti ekki verið hærri en ákveðin fjöldi mán­aða­tekna við­kom­andi hús­næð­is­kaup­anda eða ekki hærra en ákveðin hlut­fallstala af ráð­stöf­un­ar­tekjum við­kom­andi,“ að því er segir í skýrsl­unni.

Þriðja leiðin, sem nefnd er, væri að tak­marka ákveðna gerð útlána (e. sectoral capital requirements) og krefja lán­veit­endur, t.d. banka um að binda fé á móti útlánum. Íslenskir bankar eru undir slíkum skil­yrðum en ekki líf­eyr­is­sjóðir. Vaxta­kjör líf­eyr­is­sjóða eru um þessar mundir mun betri en hjá bönk­unum, en veð­hlut­föllin eru hærri.

Til við­bótar má nefna að auka mætti bindi­skyldu lán­veit­enda.

AGS kveikir á perunni

Þá er vitnað til þess í skýrsl­unni að Alþjóða­gjal­eyr­is­sjóð­ur­inn (AGS) hafi komið inn á beit­ingu þjóð­hags­var­úð­ar­tækja á hús­næð­is­mark­aði í loka­yf­ir­lýs­ingu sinni á dög­unum, en þar sagði m.a.: „Þrýst­ingur á hús­næð­is­mark­aði gæti leitt til ofhitn­unar. Vöxtur íbúða­lána er enn hóf­legur en er að aukast, sem kallar á aðgætni. Þjóð­hags­var­úð­ar­tækjum skal beita eftir þörfum, þ.á.m. nýjum tækjum er tak­marka lán­veit­ingar í erlendri mynt til óvar­inna aðila og mögu­lega banna lán­veit­ingar líf­eyr­is­sjóða. Eft­ir­spurn á íbúða­mark­aði gæti áfram auk­ist umfram nýbygg­ingar og þrýst hús­næð­is­verði upp á við. Ef hækk­andi fram­færslu­kostn­aður fælir erlent vinnu­afl frá gæti vinnu­mark­að­ur­inn ofhitnað. Frekari háar launa­hækk­anir gætu aukið enn á inn­lendan eft­ir­spurn­ar­þrýst­ing.“

Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, vís­aði einnig til þessa í ræðu sinni á aðal­fundi bank­ans í lok mars, að mögu­lega þyrfti að bregð­ast við aðstæðum á mark­aði. „Því er ekki að leyna að vax­andi áhyggjur eru af aðstæðum á fast­eigna­mark­aði og til þess kann að koma á næst­unni að til­tæk þjóð­hags­var­úð­ar­tæki verði virkjuð til að draga úr áhættu sem teng­ist þeim,“ sagði Már.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár