Útvarp Saga í meiðyrðamál gegn ótilgreindum gagnrýnendum

Stjórn­endur útvarps­stöðv­ar­innar Útvarps Sögu hafa falið lög­manni að lög­sækja þá „sem harð­ast hafa gengið fram gegn per­sónum þeirra með óvægnum og ómál­efna­legum hætti.“ Þetta segir lög­mað­ur­inn, Sævar Þór Jónsson, á bloggi sínu á Eyjunni í dag.

Sævar segir að hann hafi fyrir hönd stjórn­end­anna, vænt­an­lega Arn­þrúðar Karls­dóttur og Péturs Gunn­laugs­sonar, fylgst með umræð­unni um stöð­ina og for­svars­menn hennar und­an­farið. „Má með sanni segja að sú umræða er komin út fyrir öll vel­sæm­is­mörk.“ Það eigi ekki að líð­ast í lýð­ræð­is­ríki að „fólk þurfi að sitja undir per­sónu­legum árásum á opin­berum vett­vangi eins og inter­net­inu og þurfa að þola sær­andi og æru­meið­andi ummæli ítrekað.“

Þá segir hann að umræðan ein­kenn­ist á köflum af ein­elt­istil­burðum.

Í pistl­inum segir Sævar líka: „Eitt er að vera ósam­mála um mál­efni og hafa ólíkar skoð­anir, það er eðli­legt og nauð­syn­legt í lýð­ræð­is­ríki og grund­völlur þess að hægt sé að eiga rök­ræn skoð­ana­skipti. En það er annað mál að úthrópa fólki fyrir skoð­anir sínar, slíkt á sér engan stað í lýð­ræð­is­legri umræðu. Það á vita­skuld að bera virð­ingu fyrir skoð­unum fólks, þótt þær kunni að vera ólíkar, og sé maður ósam­mála þá mætir maður þeim með mál­efna­legir gagn­rýni og rökum. Það er ekki boð­legt í lýð­ræð­is­legri umræðu að ráð­ast með óvægnum og meið­andi hætti á per­sónu þess sem hefur aðrar skoð­anir en maður sjálfur, þaðan af síður að gera öðrum upp skoð­anir.“

Sævar Þór segir að það hafi tíðkast að fela sig á bak við tján­ing­ar­frelsið eins og það feli í sér ein­hvern rétt til þess að segja hvað sem er án ábyrgðar. „Það gleym­ist aftur á móti að frelsi fylgir ábyrgð“ segir hann.

Útvarp Saga hefur verið tals­vert í umræð­unni und­an­farið, ekki síst eftir skoð­ana­könnun á vef­síðu mið­ils­ins þar sem spurt var hvort við­kom­andi treysti múslimum. Reglu­lega er rætt um inn­flytj­enda­mál á stöð­inni. Í kjöl­far þess ósk­uðu bæði Bubbi Morthens og hljóm­sveitin Ljótu hálf­vit­arnir eftir því að útvarps­stöð­inni yrði meinað að spila tón­list þeirra vegna þess sem þau sögðu hat­ursá­róður. Þetta tók Arn­þrúður óstinnt upp. Útvarp Saga setti svo inn nýja könnun á síð­una þar sem spurt var hvort fólk treysti Bubba.

Ekki kemur fram í grein Sævars hverja for­svars­menn Útvarps Sögu hyggj­ast sækja til saka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár