Skora á yfirvöld að stöðva núverandi sölufyrirkomulag á rafrettum

Lækna­fé­lag Íslands skorar á stjórn­völd að stöðva án tafar sölu á rafrettum eftir því fyr­ir­komu­lagi sem nú er til staðar vegna skað­legra áhrifa. Alþingi sam­þykkti í sumar ný lög varð­andi rafrettur en lögin taka gildi í mars á næsta ári.

Lækna­fé­lag Íslands skorar á yfir­völd að stöðva án tafar sölu á rafrettum eftir því fyr­ir­komu­lagi sem nú er til staðar vegna skað­legra áhrifa rafretta. Samkvæmt ályktun Lækna­fé­lags­ins þarf að finna við­eig­andi lausn á sölu rafretta sem hjálp­ar­tæki til að hætta reyk­ingum, með því til dæmis að selja þær í apó­tekum en í álykt­un­inni segir að núver­andi sölu­fyr­ir­komu­lag sé óásætt­an­legt. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Lækna­fé­lag­inu en aðal­fundur félags­ins var hald­inn síð­asta fimmtu­dag þar sem sjö álykt­anir voru sam­þykktar um marg­vís­leg mál­efni sem snerta heil­brigð­is­mál.

Í álykt­un­inni kemur fram að tæp­lega fjórð­ungur tíunda­bekk­inga hafi reykt rafrettur einu sinni eða oftar síð­ast­lið­inn mánuð sam­kvæmt nýbirtum lýð­heilsu­vísis land­læknis. Því þykir Lækna­fé­lag­inu rétt að bregð­ast við en sam­kvæmt félag­inu stefnir þessi þróun þeim mikla árangri sem Íslend­ingar hafa náð í minnka reyk­ingar barna í hættu.

Lög um rafrettur samþykkt í sumar

Alþingi sam­þykkti í júní síð­ast­liðnum ný lög varð­andi rafrettur og áfyll­ingar fyrir rafrettur en lögin öðl­ast gildi í mars 2019. Í lög­unum segir að mark­mið lag­anna sé að veita heim­ildir til inn­flutn­ings, sölu, mark­aðs­setn­ingar og notk­unar rafrettna og tryggja gæði og öryggi rafrettna og áfyll­inga fyrir rafrettur á mark­aði og tryggja með til­tækum ráð­stöf­unum að börn geti ekki keypt rafrettur.

Seinna í sama mán­uði sendi Lækna­fé­lag Íslands frá sér ályktun um lögin, þar sem skorað var á heil­brigð­is­ráð­herra að leggja fram laga­breyt­ing­ar­til­lögu við fram­an­greind lög um að bætt verði við að bannað væri að nota rafrettur á veit­inga og skemmti­stöðum. LÍ telur það ganga gegn settum lýð­heilsu­m­ark­miðum um að draga úr reyk­ingum og neyslu ávana- og fíkni­efna s.s. nikótíns að ekki skuli hafa verið bann­aðar reyk­ingar rafrettna á veit­inga- og skemmti­stöðum í hinum nýju lögum.

Í tóbaks­varn­ar­lögum eru reyk­ingar óheim­ilar á veit­inga- og skemmti­stöðum vegna mögu­legra áhrifa á óbeinar reyk­ingar geta haft á heilsu­far þeirra sem við­staddir eru. Samkvæmt álykt­un­inni telur LÍ mik­il­vægt að sömu heil­brigðis- og for­varn­ar­sjón­ar­mið séu höfð að leið­ar­ljósi þegar kemur að reyk­ingum á rafrettum.

„Við með­ferð laga um rafrettur á Alþingi var lagt til að sam­bæri­legt bann yrði sett fyrir notkun rafrettna á veit­inga- og skemmti­stöðum. Með naumum meiri­hluta, 26 atkvæðum gegn 25 var sú breyt­ing­ar­til­laga felld. Þegar hin nýju lög um rafrettur ganga í gildi verður eig­endum veit­inga- og skemmti­staða því í sjálfs­vald sett hvort reykja megi rafrettur á þessum stöðum,“ segir í ályktun Lækna­fé­lags­ins.

Lækna­fé­lagið lýsti í álykt­un­inni yfir sér­stökum áhyggjum í þessu til­liti vegna við­kvæmra hópa s.s. barna, fyrr­ver­andi reyk­inga­fólks og ein­stak­linga með við­kvæma hjarta- og lungna­sjúk­dóma. Í álykt­un­inni segir að mik­il­vægt sé virða rétt þeirra sem náð hafa að hætta neyslu nikótíns, en að þeir aðilar verði með þessum hætti óhjá­kvæmi­lega fyrir áhrifum óbeinna reyk­inga. LÍ hvetur því í álykt­un­inni alþing­is­menn til að lag­færa þau mis­tök sem félagið telur að gerð hafi verið við afgreiðslu fram­an­greindrar breyt­ing­ar­til­lögu. Takist ekki með laga­breyt­ingu að banna reyk­ingar rafrettna á veit­inga- og skemmti­stöðum skorar stjórn Lækna­fé­lags Íslands á eig­endur þess­ara staða að banna reyk­ingar rafretta á stöðum sínum þegar nýju lögin ganga í gildi.

Notkun rafretta hefur ekki haft áhrif á sölu nikótínlyfja

[links]Kjarninn greindi frá því á síð­asta ári að sam­kvæmt sölu­að­ilum nikótín­lyfja á Íslandi hafði aukin notkun rafretta ekki áhrif á sölu þeirra. Brynj­úlfur Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Artasan lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins benti á í sam­tali við Kjarnann að ekki væri búið að sanna að rafrettur hjálpi fólki að hætta að reykja. En sam­kvæmt sölu­að­ilum eru rafrettur í óbeinni sam­keppni við nikótín­lyfin vegna mis­mun­andi mark­hóps, unga fólkið sem notar rafrettur í mestu mæli notar varla nikótín­lyf. Rann­sóknir hafa á hinn bóg­inn sýnt að átta af tíu sem nota rafrettur reyktu einnig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár