Veip dregur ekki úr sölu nikótínlyfja

Miklar rök­ræður hafa sprottið upp um gagn­semi rafretta þegar kemur að því að hætta að reykja og meintri skað­semi þeirra. Samkvæmt sölu­að­ilum nikótín­lyfja hefur aukin notkun rafretta ekki haft áhrif á sölu þeirra.

Noktun rafretta hefur aukist til muna á síðastliðnum árum.
Noktun rafretta hefur auk­ist til muna á síð­ast­liðnum árum. Mynd: Davide Sibilio

Aukin notkun hefur ekki áhrif á sölu nikótín­lyfja á Íslandi að sögn tals­manna lyfja­fyr­ir­tækja sem selja slík lyf. Meðal ástæðna sem þeir gefa upp er að mark­hóp­ur­inn sé ekki sá sami og að fólk sem veipi noti síður nikótín­lyf.

Aukin rafrettu­væð­ing á Íslandi hefur margar hliðar. Sumir hafa litið á hana sem jákvæðan þátt í því að hjálpa fólki að hætta að reykja en aðrir hafa haft áhyggjur af því að neysla á nikó­tíni auk­ist hjá ungu fólki í stað­inn.

Málið hefur verið umdeilt eins og sýndi sig þegar Óttarr Próppe, þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, lagði fram frum­varp sitt um rafrettur síð­ast­liðið vor.

Mismunandi reglur milli Norðurlandanna

Viðar Jensson, verk­efn­is­stjóri hjá Land­lækni, segir að mik­ill áhugi sé hjá emb­ætt­inu að skoða mál sem tengj­ast rafrettum frekar. Hann seg­ist fylgj­andi því að sett verði lög og reglu­gerðir varð­andi rafrettur, m.a. til að tryggja neyt­enda­vernd.

Hann bendir á að mis­mun­andi reglur séu á Norð­ur­lönd­unum og sé til að mynda eng­inn grein­ar­munur gerður á rafrettum og sígar­ettum í Finn­landi. Danir hafi verið fyrstir til að lög­leiða rafrettur en þar sé neyslan bönnuð á afmörk­uðum stöðum.

Samdráttur ekki merkjanlegur

Samkvæmt Báru Ein­ars­dóttur, mark­aðs­stjóra hjá lyfja­fyr­ir­tæk­inu Vistor, hefur aukin notkun rafretta und­an­farin miss­eri ekki haft áhrif á sölu nikótín­lyfja hjá fyr­ir­tæk­inu. Í byrjun októ­ber greindi hún stöð­una og athug­aði hvort sam­dráttur hefði orðið í sölu á nikótín­lyfjum. Þau hafi verið hrædd um sam­drátt en að hann hefði ekki verið merkj­an­legur og sé það ekki eins og er.

Hún segir að fyr­ir­tækið greini ekki sam­drátt nema milli lyfja. Til dæmis sé sam­dráttur í inn­sogslyfjum en skýr­ing­una telur hún vera að fólk hafi fært sig yfir í önnur vin­sælli nikótín­lyf. Einnig sé sam­dráttur í tungu­rót­art­öflum og telur hún að margir átti sig ekki á því að fleiri lyf séu til en nikótín­lyfjatyggjó.

Ungt fólk notar frekar rafrettur

Hún telur að ekki sé um að ræða sama mark­hóp, þ.e. að unga fólkið sem notar rafrettur í mestu mæli sé ekki að versla nikótín­lyf ann­ars. Hún segir að vara­samt geti verið að nota rafrett­urnar fyrir þær sakir að fólk viti ekki hvað það sé að nota því erfitt sé að áætla nikótín­magn í vökvunum sem not­aðir eru í veipi.

Þó er ekki hægt að úti­loka áhrif rafretta á sölu seinna meir, að hennar sögn, en eins og staðan er í dag er ekki sjá­an­legur munur á henni. Hún segir nikótín­lyf bráða­birgða­lausn þegar fólk sé að hætta að reykja eða nota nikótín og að ekki eigi að vera mikið lengur á þeim en í eitt ár.

Nauðsynlegt að setja reglur

Brynj­úlfur Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Artasan lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins, tekur í sama streng og Bára. „Við höfum ekki séð minnkun í sölu á nikótín­lyfjum,“ segir hann í sam­tali við Kjarnann. Hann telur að þau séu ekki beinir sam­keppn­is­að­ilar rafretta og segir að ekk­ert sanni að rafrettur hjálpi fólki að reykja. Rann­sóknir hafi sýnt að átta af tíu sem nota rafrettur reyki einnig.

Hann segir að þau hafi ótt­ast að fólk myndi leita í rafrettur til að reyna að hætta að reykja en salan segi aðra sögu. Hann telur því rafrett­urnar vera í óbeinni sam­keppni við nikótín­lyfin. Enn fremur telur hann að stjórn­sýslan sé van­hæf því engar reglur séu til um notkun rafretta og nikótín­vökva.

Brynj­úlfur segir jafn­framt að ekki sé vitað hvaðan stór hluti nikótín­vökvans komi og að erfitt sé að vita styrk hans. Þess vegna sé nauð­syn­legt að koma á ein­hvers konar reglu­verki í kringum þetta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár