Eru jarðstrengir besta lausnin á Vestfjörðum?

Ný skýrsla sem unnin var á vegum Land­verndar greinir frá því að raf­ör­yggi á Vest­fjörðum sé best tryggt með jarð­strengjum. Ekki eru allir sam­mála um þetta og hefur Landsnet meðal ann­ars haldið öðru fram.

Meira en tífalda má raf­orku­ör­yggi á Vest­fjörðum með því að setja hluta Vest­ur­línu og fleiri línur á sunn­an­verðum Vest­fjörðum í jörð. Hins­vegar geri virkjun Hvalár ekk­ert til að bæta raf­orku­ör­yggið þar.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Land­vernd í síð­ustu viku. Þetta er meðal nið­ur­staðna ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækis á sviði raf­orku­mála sem Land­vernd fékk til þess að leita leiða til þess að styrkja raf­orku­flutn­ings­kerfið á Vest­fjörðum og bæta raf­orku­ör­yggi.

Stjórn Land­verndar óskaði í októ­ber síð­ast­liðnum eftir úttekt á mögu­leikum á að bæta úr ástand­inu hjá kanadísku ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki á sviði raf­orku­flutn­ings, METSCO Energy Solutions. Nið­ur­stöður hennar eru að með því að leggja sam­tals fimm 66 og 132 kíló­volta línur í jörð má bæta raf­orku­ör­yggi Vest­firð­inga meira en tífalt.

Úrbóta þörf

Mikil umræða hefur verið vegna bágs raf­ör­yggis á Vest­fjörðum og ljóst þykir að úrbóta er þörf. Svokölluð Vest­ur­lína sam­anstendur af Geira­dals­línu 1, Mjólkár­línu 1 og Gler­ár­skóg­ar­línu 1 og liggur frá Hrúta­firði til Mjólk­ár­virkj­unar. Línan er rekin á 132 kíló­volta spennu. Um hana fer allur raf­orku­flutn­ingur til Vest­fjarða.

Trufl­anir á lín­unni hafa verið þónokkrar á und­an­förnum árum. Minni línur liggja á firð­ina, það er 66 og 33 kíló­volta línur og iðu­lega hafa verið trufl­anir vegna þeirra líka.

Tálkna­fjarð­ar­lína og Breiða­dals­lína eru 66 kílovolta loft­línur og frá Breiða­dal er 66 kíló­volta lína til Bol­ung­ar­víkur og Ísa­fjarðar og síðan 66 kíló­volta jarð­strengur milli Ísa­fjarðar og Bol­unga­víkur. Þrjár 33 kíló­volta loft­línur tengja síðan Mjólká við Breiða­dal með teng­ingu til Hrafns­eyrar og Þing­eyrar. Sömu­leiðis eru 33 kílovolta línur frá Geiradal til Hólma­víkur og frá Keldeyri til Bíldu­dals.

Virkjun Hvalár styrkir ekki raföryggi

Samkvæmt Land­vernd hefur því verið haldið fram í umræðu um 55 MW Hval­ár­virkjun að hún muni bæta raf­orku­ör­yggi svæð­is­ins. Á Ströndum liggi annað kerfi raf­orku­dreif­ingar og sé raf­orku­ör­yggi þar ekki talið vanda­mál. Ekki hafi verið vísað til þess í umræðu um virkjun Hvalár.

Skýrsla kanadíska ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­is­ins tekur af öll tví­mæli um það að virkjun Hvalár og sú teng­ing hennar við flutn­ings­kerfi sem hefur verið í umræð­unni, styrkir sem slík ekki raf­orku­ör­yggi Vest­firð­inga. Auknu raf­orku­ör­yggi má hins­vegar koma á með því að leggja áður­nefndar loft­línur í jörð. Myndi raf­orku­ör­yggi Vest­firð­inga aukast meira en tífalt eins og áður segir og fram kemur í skýrsl­unni að fram­kvæmda­tími slíkra jarð­strengja sé almennt ekki meira en 1-2 ár og heild­ar­tími með leyf­is­veit­ingum 2-3 ár. Fjár­fest­ing í jarð­strengjum skilar sér mun fyrr en þegar um loft­línur er að ræða, sem tekur oft 8-10 ár að leggja, með leyf­is­veit­inga­ferli.

Tillaga skýrslu­höf­unda er að end­ur­nýja Mjólkár­línu (MJ1) með jarð­streng og sömu­leiðis fjórar 66 kíló­volta línur; Tálkna­fjarð­ar­línu 1 (TA1), Bol­ung­ar­vík­ur­línu 1 (BV1), Breiða­dals­línu 1 (BD1) og Ísa­fjarð­ar­línu 1 (IF1). Um væri að ræða um 194 km leið sam­tals. Við þetta er raf­orku­ör­yggi talið batna tífalt. Benda má á að svokölluð hring­tengin raf­orku um Vest­firði, sem mikið er nefnd í tengslum við Hval­ár­virkjun, mundi kalla á sam­bæri­lega styrk­ingu þess hluta raf­orku­kerf­is­ins sem hér ræðir, auk kostn­að­ar­samrar og erf­iðrar teng­ingar virkj­un­ar­innar við Ísafjörð og nær­sveitir. Þá eru jákvæð áhrif jarð­strengja miðað við loft­línur á lands­lag og ásýnd byggða ótví­ræð.

Landsnet á öðru máli

Í frétt Lands­nets frá því fyrir helgi segir að þegar metnar eru tengi­leiðir milli staða á Vest­fjörðum sé kostn­aður vegna jarð­strengja sam­bæri­legur við loft­línur og því mik­il­vægt að horft sé til kosta jarð­strengja. Tækni­legar hindr­anir komi þó í veg fyrir að hægt sé að leggja allar línur í jörð.

Ólíkur styrkur kerf­is­ins milli land­svæða sé meg­in­á­stæða þess að svig­rúm til jarð­strengslagna er mis­mun­andi. Þar sem kerfið er sterkt sé meira rými til þess heldur en þar sem styrk­ur­inn er lít­ill.

Jafn­framt segir í frétt­inni að þau hjá Lands­neti hafi lengi talað fyrir upp­bygg­ingu og styrk­ingu flutn­ings­kerf­is­ins og fagni allri umræðu um bætt afhend­ingar­ör­yggi og upp­bygg­ingu á kerf­inu.

„Hjá Lands­neti hefur verið unnið að styrk­ingu á flutn­ings­kerf­inu á Vest­fjörðum und­an­farin ár, til dæmis með bygg­ingu vara­afls­stöðvar í Bol­ung­ar­vík og lagn­ingu jarð­strengs í Bol­ung­ar­vík­ur­göng,“ segir í frétt­inni. Að auki sé unnið að und­ir­bún­ingi hring­teng­ingar á milli norður – og suð­ur­fjarð­anna, meðal ann­ars með sæstreng yfir Arn­ar­fjörð og lagn­ingu á jarð­streng í gegnum Dýra­fjarð­ar­göng. Í hring­teng­ing­unni leggi þau áherslu á að nota jarð­strengi eins mikið og kostur er vegna aðstæðna.

Skýrslan takmörkuð

Á Vest­fjörðum er kerfið hvað veikast á land­inu. Vest­ur­línan er um 160 km, frá Hrúta­tungu að Mjólká og áætlað er að hægt sé að leggja um 15 til 20 kíló­metra af henni í jörðu. Fyrir nokkrum árum var lagður 12 km langur jarð­strengur í Bol­ung­ar­vík­ur­göng. Við rekstur á jarð­strengnum hefur reynt á þol­mörk kerf­is­ins og því hefur Landsnet góðar upp­lýs­ingar um styrk kerf­is­ins á svæð­inu.

Skýrslan sem Metsco gerði fyrir Land­vernd fjallar ekk­ert um þessa tak­mörkun á lengd jarð­strengja heldur gerir ráð fyrir að hægt sé að leggja jarð­strengi á alla Vest­firði sem er óraun­hæft. Stað­reyndin er að ein­ungis er hægt að leggja hluta kerf­is­ins í jörð og því full­yrð­ingar um að hægt sé að tífalda afhend­ingar­ör­yggi á Vest­fjörðum með jarð­strengjum vill­andi.

Öll umræða um styrk­ingu á kerf­inu er af hinu góða en mik­il­vægt er að hún bygg­ist á réttum for­sendum og hvetjum við hjá Lands­neti stjórn­völd til að gera sjálf­stæða úttekt á nið­ur­stöðum skýrsl­unnar.

Ætlað að skapa umræður

Skýrsl­unni er fyrst og fremst ætlað að skapa umræður um mögu­leika á að styrkja raf­orku­ör­yggi á Vest­fjörðum til dæmis með því að leggja jarð­strengi. Þetta kom fram á svari sitj­andi for­manns Land­verndar Lovísu Ásbjörns­dóttur við fyr­ir­spurn Kjarnans vegna máls­ins.

Samkvæmt henni setur ráð­gjafa­fyr­ir­tækið METSCO fram módel þar sem raf­orku­kerfi Vest­fjarða er lagt í jörðu og segir hún að þeir hafi farið mjög var­leg í allar full­yrð­ingar og bent á að margt þurfi að kanna betur í sam­bandi við lagn­ingu jarð­strengja. Þeir loki ekki á þann mögu­leika að hafa bæði loft­línur og jarð­strengi.

Lovísa segir að höf­undar skýrsl­unnar bendi jafn­framt á ýmsar áskor­anir sem þurfi að leysa við lagn­ingu jarð­strengja á Vest­fjörðum. „Það er því rangt hjá Lands­neti að METSCO geri ráð fyrir því að hægt sé að leggja jarð­strengi á alla Vest­firði. Það sætir raunar furðu að rík­is­fyr­ir­tæki, sem hefur ein­okun á raf­orku­flutn­ingi á land­inu, skuli leyfa sér að rang­túlka skýrsl­una með þessum hætti í stað þess að taka jákvætt í umræð­una um fleirri lausnir í að bæta raf­orku­ör­yggi á Vest­fjörðum. Þá kemur einnig fram í skýrsl­unni að virkjun í Hvalá kemur ekki til með að leysa þennan vanda,“ segir hún.

Mikil þróun í gerð jarðstrengja

Lovísa bendir enn fremur á að mikil þróun hafi verið í gerð jarð­strengja á síð­ustu árum, kostn­aður hafi farið lækk­andi og í dag séu jarð­strengir raun­hæfur kostur í sam­an­burði við loft­línur. Mesti kostn­að­ur­inn við jarð­strengi liggi í jarð­vegs­vinnu en ekki sé hægt að full­yrða að íslensk jarð­lög séu erf­ið­ari við­fangs við lagn­ingu jarð­strengja heldur en á mörgum öðrum stöðum erlendis. „Þess má geta að við vinnslu skýrsl­unnar óskaði ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Metsco eftir nákvæmum berggrunns- og jarð­grunnskortum sem ekki eru til fyrir Vest­firði.“

Hún segir að margar þjóðir séu í dag farnar að end­ur­nýja sitt raf­orku­kerfi og leggja jarð­strengi. Í skýrsl­unni sé fjallað um stefnu Dana í að styrkja raf­orku­kerfi sitt til fram­tíðar og hafi þeir til dæmis valið að setja allar 132kV og 150 kV raf­línur í jörðu. Á Íslandi sé engin slík stefna til. „Á kom­andi árum stöndum við frammi fyrir þörfum úrbótum bæði á raf­orku- og sam­göngu­kerfi lands­ins. Því má beina því til stjórn­valda hvort ekki megi skoða þetta í heild og að sam­hliða úrbótum á vega­kerf­inu verði hugað að lagn­ingu jarð­strengja.

Vissu­lega þarf að kanna ýmis­legt betur í sam­bandi við lagn­ingu jarð­strengja á Vest­fjörðum, en þótt að ein­ungis væri farið í að leggja jarð­strengi á erf­iðum svæðum þar sem bil­ana­tíðni loft­lína er há þá myndi það strax bæta raf­orku­kerfið á Vest­fjörðum,“ segir hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár