Ríkið ráðist í hreinsun spilliefna við ratsjárstöð Bandaríkjahers á Heiðarfjalli

Á Heið­ar­fjalli er að finna í jörðu úrgangs- og spilli­efni frá þeim tíma sem eft­ir­lits­stöð Banda­ríkja­hers var í rekstri á fjall­inu. Land­eig­endur hafa um ára­tuga skeið reynt að leita réttar síns vegna meng­un­ar­innar.

Byggingar ratsjárstöðvarinnar á Heiðarfjalli hafa að mestu leyti verið jafnaðar við jörðu. Þó er enn mikið magn spilliefna á svæðinu.
Bygg­ingar rat­sjár­stöðv­ar­innar á Heið­ar­fjalli hafa að mestu leyti verið jafn­aðar við jörðu. Þó er enn mikið magn spilli­efna á svæð­inu. Mynd: Úr skýrslu Umhverfisstofnunar og Alta

Alþingi hefur ályktað að umhverfis- auð­linda­ráð­herra verði falið fyrir hönd íslenska rík­is­ins að gang­ast fyrir rann­sókn á umfangi meng­unar í jarð­vegi og grunn­vatni í Heið­ar­fjalli, frá þeim tíma er þar var rekin eft­ir­lits­stöð á vegum Banda­ríkja­hers. Þings­á­lykt­un­ar­til­laga um málið var lögð fram af stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd og hún sam­þykkt í vik­unni. Á Heið­ar­fjalli var rat­sjár­stöð tekin í notkun árið 1957 en starf­semi á fjall­inu var lögð niður 13 árum síðar að því er fram kemur á vef­síðu Langa­nes­byggðar.

Samkvæmt álykt­un­inni verður gerð tíma­sett áætlun um kostnað og hreinsun á úrgangs- og spilli­efnum, sam­hliða rann­sókn­inni, þannig að tryggt verði að staða umverfis- og meng­un­ar­mála sam­ræm­ist nútíma­kröfum. Þá er gert ráð fyrir að ráð­herra leggi áætl­un­ina fram fyrir Alþingi eigi síðar en 15. mars árið 2022 og að sú vinna sem um ræðir fari fram í nánu sam­starfi við land­eig­endur.

Leita til Bandaríkjastjórnar og Atlantshafsbandalagsins

Í grein­ar­gerð sem fylgdi til­lögu stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar segir að á Heið­ar­fjalli sé að finna í jörðu úrgangs- og spilli­efni frá þeim tíma sem eft­ir­lits­stöð Banda­ríkja­hers var í rekstri á fjall­inu og að ætla mætti að hætta sé á mengun af völdum spilli­efn­anna. Eigendur jarð­ar­innar Eiðis í Heið­ar­fjalli, sem keyptu jörð­ina fyrir um hálfri öld, hafa um ára­tuga skeið reynt að leita réttar síns vegna meng­un­ar­innar.

Þá hafa eig­end­urnir átt í „við­ræðum við full­trúa fram­kvæmd­ar­valds­ins á ýmsum tímum og einnig full­trúa Banda­ríkja­stjórnar og Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, auk þess að hafa leitað til dóm­stóla, án árang­urs. Eftir stendur mengað land­svæði sem verður að hreinsa,“ líkt og segir í grein­ar­gerð­inni.

Þar kemur fram að íslensk stjórn­völd hefðu afsalað sér fyrir hönd íslenska rík­is­ins og allra Íslend­inga kröfum á hendur Banda­ríkj­unum vegna hugs­an­legra land­spjalla í tengslum við veru hers­ins á Heið­ar­fjalli. Þetta kom í ljós við aflétt­ingu á skjala­leynd árið 1990 en sam­kvæmt ákvæðum varn­ar­samn­ings­ins frá 1951 „skal Banda­ríkja­her hreinsa úrgangs­efni (e. „waste mater­ial“) við brott­för sína eftir því sem kostur er (e. „to the extent practicable“).“

Að mati flutn­ings­manna til­lög­unnar hefur við­horf til umhverf­is­mála gjör­breyst frá því að samið var um við­skilnað hers­ins á svæð­inu. „Banda­ríkja­her og Atl­ants­hafs­banda­lagið hafa ekki farið var­hluta af þess­ari við­horfs­breyt­ingu og ekki síst þegar kemur að við­skiln­aði á hern­að­ar­svæðum. Þannig hefur Atl­ants­hafs­banda­lagið verið reiðu­búið að veita styrki til rann­sókna á mengun af völdum hern­að­ar­um­svifa og Banda­ríkja­stjórn hefur fyrir sitt leyti tek­ist á hendur að hreinsa svæði eftir her­stöðvar sínar eða fjár­magna slíka hreinsun óháð samn­ings­bundnum kvöðum,“ segir í grein­ar­gerð­inni. Því sé nauð­syn­legt að stjórn­völd hefji við­ræður við Banda­ríkja­stjórn og Atl­ants­hafs­banda­lagið um aðkomu að hreins­un­ar­starfi á fjall­inu.

Ratsjárstöðin skemmdist í fárviðri 1961

Á vef Land­helg­is­gæsl­unnar segir að á árunum 1953 til 1958 hafi Banda­ríkja­her hafið rekstur fjög­urra rat­sjár­stöðva hér á landi. Auk stöðv­ar­innar sem reist var á Heið­ar­fjalli voru settar upp stöðvar á Mið­nes­heiði á Reykja­nesi, á Stokks­nesi við Horna­fjörð og á Straum­nes­fjalli norðan Aðal­víkur á norð­an­verðum Vest­fjörðum. Rat­sjár­stöðv­arnar voru því hver á sínu horni lands­ins.

Tveimur rat­sjár­stöðvum var lokað snemma á 7. ára­tugnum, rat­sjár­stöð­inni á Straum­nes­fjalli og rat­sjár­stöð­inni á Heið­ar­fjalli. Starf­semi rat­sjár­stöðv­ar­innar á Heið­ar­fjalli var lögð niður eftir að hún skemmd­ist í fár­viðri árið 1961 en hennar í stað var þar rekin fjar­skipta­stöð sjó­hers­ins til árs­ins 1970.

Ráðist var í hreins­unar­á­tak á Straum­nes­fjalli snemma á tíunda ára­tugnum með aðkomu banda­ríska hers­ins. Þá var áhersla lögð á að öll spilli­efni skyldu hreinsuð af fjall­inu og var þá sér­stak­lega horft til blýs og raf­geyma sem orðið höfðu þar eftir, líkt og segir í svari Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Lilju Raf­n­eyjar Magn­ús­dóttur, þing­manns Vinstri grænna, frá árinu 2018. Vegna mik­ils kostn­aðar var tekin ákvörðun um að bygg­ingar rat­sjár­stöðv­ar­innar skyldu ekki rifnar.

Við upp­haf níunda ára­tug­ar­ins jókst umferð óþekktra flug­véla í grennd við Ísland og ljóst varð að byggja þyrfti nýjar rat­sjár­stöðvar í stað þeirra sem hafði verið lokað á Vest­fjörðum og Norð­aust­ur­landi. Árið 1989 var rat­sjár­stöðin á Gunn­ólfs­vík­ur­fjalli á sunn­an­verðu Langa­nesi tekin í notkun og árið 1992 tók rat­sjár­stöðin á Bola­fjalli, ofan við Bol­ung­ar­vík, til starfa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár