Er verið að negga þig? – Húmor eða andlegt ofbeldi?

Hvað er negging? Hugtakið kemur úr ensku og er notað til að greina atferli fólks við að smætta aðra. En hvenær er til dæmis kaldhæðni húmor og hvenær meira í ætt við andlegt ofbeldi? Hugtakið negging er tæki sem getur hjálpað til við að greina það.

Tilfinningamisnotkun
Til­finn­inga­mis­notkun Með tím­anum getur negg brotið niður sjálfs­ör­yggi þitt, jafn­vel breytt lífs­háttum þínum og umbreyst í til­finn­inga­mis­notkun. Mynd: Shutterstock

Hugtakið að negga kemur úr ensku – negging. Á íslensku mætti þýða það á ýmsa vegu. Til dæmis að niðra eða smætta. Niðrari væri þannig ágætis útlistun á neggara eða smættari – það rímar við það sem hugtakið stendur fyrir. Neg stendur svo fyrir neikvæðni – og negging er vissulega neikvætt.

En hvað er negging?

Segjum að þú sért náinn einhverjum en bregðir reglulega við athuga­semdir sem þú veist ekki hvernig þú átt að skilja. Kannski segirðu: Mér fannst leiðinlegt að komast ekki í matar­boðið til þín. Viðkomandi brosir og svarar: Það saknaði þín enginn.

Af því að viðkomandi brosir og er nú stundum mein­fyndinn, þá kannski hlærðu máttleysis­lega en ferð svo heim og hugsar: Var þetta húmor?

Mögulega svartur – eða öllu heldur skakkur – húmor, já! En mögulega negging. Hugtak sem nær m.a. yfir tilfinninga­lega stjórnun og jafnvel kúgun. Þegar óræðar athuga­semdir og …

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EVÓ
    Elín Vigdís Ólafsdóttir skrifaði
    Góð og upplýsandi umfjöllun.
    0
  • Anna Á. skrifaði
    Talandi um þjóðernispopúlismann og MAGA og hvernig það niðrar nútímann, dettur mér í hug umræðan um innviði og hvernig þeir eru niðraðir þegar þjóðernispopúlistarnir tala um flóttamenn.
    0
  • EK
    Elísabet Kjárr skrifaði
    Vá hvað ég þarf að lesa þetta reglulega ♥️ Ég hef oft verið sökuð um kaldhæðni þegar ég er 100% einlæg. Vil náttúrlega ekki trúa því en gæti það verið því fólki finnst ég ábyggilega vera niðrari? Er ég niðrari? Ef svo er…Fooooookkkkk…
    3
  • GJI
    Gísli Jónas Ingólfsson skrifaði
    Frábær grein. Vekur mig til umhugsunar. Eitt af því sem ætti að vera til umfjöllunar í lífsleikni kennslu í seinni bekkjum grunnskóla.
    3
  • HÓ
    Hilmar Ólafsson skrifaði
    Frábær umfjöllun takk. Íslendingar eru furðu margir haldnir negghneigð. Svo jaðrar við íþrótt.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár