Nýr drifkraftur á miðjunni hjá Englandi

Tvítugur miðju­maður hjá Totten­ham Hotspur hefur komið eins og storm­sveipur inn í ensku úrvalds­deild­ina og enska lands­liðið. Hann gæti reynst íslenska lands­lið­inu erf­iður, þegar Ísland og England mæt­ast í 16 liða úrslitum á EM í Frakk­landi á morgun.

Bamidele Jermaine „Dele“ Alli kom til Totten­ham í febr­úar 2015 frá Milton Keynes Dons, en hann er fæddur og upp­al­inn´i Milton Keynes. Frami hans hefur verið skjótur, en á fyrsta heila keppn­is­tíma­bili sínu með Totten­ham, þar sem liðið var í topp­bar­áttu alla leik­tíð­ina en lauk með dramat­ískum sigri Leicester City, lék hann mik­il­vægt hlut­verk og var val­inn efn­is­leg­asti leik­maður deild­ar­innar. Í 46 leikjum á tíma­bil­inu í öllum keppnum, skor­aði hann 10 mörk og vann sér fast sæti í byrj­un­ar­lið­inu og einnig í enska lands­lið­inu.

Tilbúinn í baráttu við þá bestu

Alli, sem fæddur er 11. apríl 1996, sýndi sínar bestu hliðar í lands­leik gegn Þýska­landi, 26. mars síð­ast­lið­inn, þar sem hann var maður leiks­ins í fræki­legum 3-2 sigri Englands á Ólymp­íu­leik­vang­inum í Berlín. Í leiknum sjást greini­lega, að hann var ekki aðeins til­bú­inn í bar­áttu við bestu mið­vall­ar­leik­menn heims, heldur lík­legur til að vera kom­inn í þann hóp innan skamms tíma. Roy Hodgson, land­liðs­þjálf­ari Englands, hefur hrósað Alli í hástert og sagt hann vera einn mik­il­væg­asta leik­mann Englands, horft til langrar fram­tíðar. Í fyrsta leik hans í byrj­un­ar­lið­inu með Englandi, í vin­áttu­leik gegn Frökkum á Wembley í nóv­em­ber í fyrra, skor­aði hann glæsi­legt mark með lang­skoti, og átti ófáar kröft­ugar tæk­lingar sem stöðv­uðu Frakka.

Þurfa að vera tilbúnir í átök

Alli minnir um margt á það, þegar Steven Gerrard kom fram á sjón­ar­sviðið. Hann er gríð­ar­lega kraft­mik­ill en á sama tíma með hæfi­leika til að stjórna hrað­anum í leiknum, og algjör­lega laus við hræðslu. Ótta­leysið er oft erfitt viður­eignar, því sá sem ótt­ast ekk­ert, verður ekki svo auð­veld­lega stöðv­aður.

Alli lék allan leik­inn gegn Wales, þegar England vann 2-1, en kom inn á sem vara­maður gegn Slóvakíu, í 0-0 jafn­tefli, á 60. mín­útu. Þá var hann í byrj­un­ar­lið­inu gegn Rússum, í 1-1 jafn­tefl­is­leik. Hann á ennþá eftir að setja með afger­andi hætti mark sitt á EM í Frakk­landi, en hefur þótt leika ágæt­lega. Þetta er hans fyrsta stór­mót, og því ekki óvenju­legt að ein­hvern tíma taki að ná áttum og fram sínu besta.

Aron Einar Gunn­ars­son og Gylfi Sig­urðs­son, hinir mögn­uðu miðju­menn íslenska liðs­ins, munu þurfa að vinna vel með væng­mönn­unum, Birki Bjarna­syni og Jóhanni Berg Guð­munds­syni, til að loka á Alli og aðra miðju­menn Englands. Þeir þurfa að vera til­búnir í átök, og vafa­lítið átta þeir sig vel á því. Alli er góður skot­maður og er – líkt og Gylfi – dug­legur að hlaupa fram og aftur, og leið­ist ekki að fá bolt­ann í svæðum þar sem hann getur sótt hratt og stungið sér inn í teig­inn. Hjá Englandi hefur hann leikið á miðj­unni hægra megin, í leikk­erf­inu 4-3-3, en hefur einnig leyst stöðu væng­manns þegar liðið brýtur upp skipu­lag sitt með fjög­urra manna miðju.

Gæti orðið of ákafur

Þó erfitt sé að taka leik­menn sér­stak­lega út, í enska lið­inu, þá verður íslenska liðið að hafa góðar gætur á Alli. Hann refsar hratt fyrir öll mis­tök, hendir sér í tæk­lingar þegar mögu­leiki er á og getur lagt upp mörk með úrslita­send­ingum. En hann gæti líka orðið of ákafur, í ljósi þess að spennustigið er hátt og pressan mikil. Með skyn­sömum og sam­hentum leik, eins og hefur verið aðals­merki Íslands til þessa, þá ætti að vera hægt að halda Alli niðri. En það hefur eng­inn efni á því að van­meta þennan nýja drif­kraft á miðju Eng­lend­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár