Beittu fortölum, greiddu sýnatöku og á annan tug reyndist sýktur

Tekist hefur að sann­færa um 210 ferða­menn síð­ustu vikur um að fara í skimun í stað 2 vikna sótt­kvíar. Fjöl­margir hafa svo greinst með veiruna í þeim hópi. Starfs­menn í flug­stöð­inni hafa „margoft séð“ að þeir sem velja sótt­kví ætli sér ekki að halda hana.

Sigurgeir Sigmundsson, yfirlögregluþjónn flugstöðvardeildar Lögreglustjórans á Suðurnesjum.
Sig­ur­geir Sig­munds­son, yfir­lög­reglu­þjónn flug­stöðv­ar­deildar Lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum. Mynd: Lögreglan

Starfs­menn flug­stöðv­ar­deildar lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum hafa fylgst með þeim sem vilja nýta þann mögu­leika að fara í fjórtán daga sótt­kví frekar en í tvö­falda sýna­töku „og margoft séð að þar er ekki áhugi á því að halda tveggja vikna sótt­kví,“ sagði Sig­ur­geir Sig­munds­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá flug­stöðv­ar­deild lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum. „Við höfum náð að snúa fjöl­mörgum frá og telja þá á að fara í sýna­töku.“

Frá því í októ­ber hefur tek­ist að telja um 210 manns af því að velja sótt­kví fremur en skimun. „Í þeim hópi hafa greinst fjöl­mörg smit,“ sagði Sig­ur­geir sem var gestur á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. „Í einum hópi voru um fjöru­tíu manns sem vildu fara í sótt­kví í fjórtán daga. Harð­neit­aði sýna­töku. En eftir miklar for­tölur og eftir að við tókum á okkur að greiða sýna­töku­gjaldið sem þá var, fóru þau í sýna­töku. Á annan tug smita var í þessum hópi. Það hefði ekki verið gott ef það hefði kom­ist inn í landið.“

[adspot]

Sig­ur­geir fjall­aði sér­stak­lega um komu erlendra starfs­manna til lands­ins og sagði það ganga Það ganga mjög mis­jafn­lega að fá skiln­ing þeirra á meðal á gild­andi reglum. „Við biðlum til atvinnu­lífs­ins að sýna sam­fé­lags­lega ábyrgð og gæti þess að starfs­menn þeirra sem eru að koma frá útlöndum virði sótt­kvína og seinni sýna­tök­una og komi ekki til starfa fyrr en að því loknu.“

[links] Á ýmsu hefur gengið við landa­mærin frá upp­hafi far­ald­urs­ins og eitt atriði sem Sig­ur­geir nefndi sér­stak­lega var það sem gerð­ist í kjöl­far skil­grein­ingar á öruggum löndum í sumar, þegar far­þegar frá sex löndum þurftu ekki að sæta sömu reglum á landa­mærum og aðrir. „Þá fórum við að sjá að við fólk fór að smygla sér, nán­ast, í gegnum þessi lönd inn til Íslands og ekki segja frá því að það væri að koma frá öðrum löndum sem ekki töld­ust örugg.“

Reglum hefur oft­sinnis verið breytt á landa­mær­unum en fyr­ir­komu­lagið hefur þó verið óbreytt frá því 19. ágúst; hægt er að velja á milli sótt­kvíar í tvær vikur og tvö­faldrar skimunar með sótt­kví á milli. „Þessi tvö­falda skimun hefur marg­sannað sig,“ sagði Sig­ur­geir og benti á að yfir 600 smit hafi verið „greind og stöðvuð“ þeim þeim hætti.

Starfs­menn flug­stöðv­ar­deild­ar­innar hafa síð­ustu daga, að til­lögu Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis, aukið eft­ir­lit ásamt smitrakn­ing­arteymi, með þeim sem velja fjórtán daga sótt­kvína. „Síðasta ár var erfitt,“ við­ur­kenndi Sig­ur­geir. „Þetta hafa verið enda­lausar áskor­anir og breyt­ingar á reglum til að fram­fylgja. [...] En jákvæðnin og aðlög­un­ar­hæfnin hafa komið okkur áfram.“


Smuga á landamærunum

Sótt­varna­læknir hefur í tvígang lagt til að fjórtán daga sótt­kví verði afnumin. „En hann hefur ekki kom­ist áfram með það,“ sagði Sig­ur­geir. „Þetta er smuga á landa­mær­unum.“ Skýr­ingin á því að þessi leið hafi reynst ófær er sú að sótt­varna­lögin eru gömul. „Það er óvið­un­andi staða að ekki sé enn búið að laga lög­gjöf­ina núna í miðjum jan­úar árið 2021.“

Sagði Sig­ur­geir að sótt­varna­lækni skorti skýr­ari heim­ildir og sömu sögu væri að segja um lög­reglu, t.d. til frá­vís­unar á landa­mærum. „Nú er sótt­varna­læknir að reyna að bregð­ast við með þrauta­vara­til­lögu, að taka við nýlegum nei­kvæðum prófum frá útlöndum. Vonandi gengur það hratt í gegn þangað til sótt­varna­lögin verða styrkt hið fyrsta. Oft var þörf á skil­virkri laga­setn­ingu en nú er nauð­syn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár