Þórunn Sveinbjarnardóttir líklega næsti formaður BHM

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir verður lík­lega næsti for­maður Banda­lags háskóla­manna (BHM). Upp­still­ing­ar­nefnd til stjórn­ar­kjörs hjá BHM hefur lagt þetta fyrir aðal­fund banda­lags­ins, sem verður hald­inn þann 22. apríl næst­kom­andi. Lagt er til að Páll Hall­dórs­son, núver­andi for­maður, verði vara­for­maður. Þetta stað­festir Stefán Aðal­steins­son fram­kvæmda­stjóri BHM við Kjarnann.

Þórunn er fram­kvæmda­stjóri Sam­fylk­ing­ar­innar, og fyrr­ver­andi þing­maður og umhverf­is­ráð­herra fyrir flokk­inn. Hún var ein þriggja sem sótt­ust eftir því að verða for­maður BHM, en banda­lagið aug­lýsti eftir nýjum for­manni á vef­síðu sinni í lok febr­úar. Þetta hefur aldrei verið gert áður, en helg­ast af þeim óvenju­legu aðstæðum að for­maður hætti á miðju kjör­tíma­bili. Það var Guðlaug Krist­jáns­dóttir sem hætti í des­em­ber, vegna mik­illa anna í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar. Guðlaug var kjörin for­maður á aðal­fundi félags­ins í maí 2008 og hafði því verið for­maður í sex og hálft ár þegar hún hætti störfum. Þá tók Páll Hall­dórs­son við, en hann hafði verið vara­for­maður félags­ins. Hann sótt­ist ekki eftir því að verða for­maður áfram heldur hyggst taka við vara­for­manns­emb­ætt­inu á ný.

Sem fyrr segir er aðal­fundur BHM 22. apríl næst­kom­andi. Þótt upp­still­ing­ar­nefnd hafi lagt til að Þórunn verði for­maður geta aðrir boðið sig fram á fund­inum með stuðn­ingi síns stétt­ar­fé­lags.

Bandalag háskóla­manna stendur í ströngu þessa dag­ana, verk­föll fyrstu félags­manna í BHM hófust í morgun og fleiri verk­föll eru yfir­vof­andi. Félags­dómur hafn­aði í gær kröfu rík­is­ins um að verk­föll fimm stétt­ar­fé­lög hafi verið ólög­lega boðuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár