Katrín: Kynjamisrétti er eitt stærsta og þrálátasta böl okkar tíma

Alþjóð­leg #Metoo ráð­stefna hefst í Hörpu í dag og hafa yfir 800 manns skráð sig á hana. For­sæt­is­ráð­herra telur að lög­gjöf og for­varn­ar­starf sé ekki nóg heldur þurfi rót­tækar, menn­ing­ar­legar breyt­ingar.

Katrín Jakosbsdóttir, forsætsiráðherra.
Katrín Jakos­bs­dóttir, for­sætsi­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, segir að kynja­mis­rétti sé eitt stærsta og þrá­látasta böl okkar tíma. Hún segir að end­ur­skoðun á lög­gjöf og for­varn­ar­starf sé ekki nóg heldur þurfi að rót­tækar, menn­ing­ar­legar breyt­ingar. Þetta kemur fram í aðsendri grein eftir Katrínu á frétta­vef

CNN

í dag en hún setur alþjóð­lega ráð­stefnu um #Metoo í Hörpu í dag.

Með stærri #Metoo ráðstefnum heims

Nú í haust verða tvö ár liðin frá því að #Metoo-bylgjan hófst haustið 2017 þegar konur um allan heim greindu frá kyn­ferð­is­legu ofbeldi og kyn­bund­inni og kyn­ferð­is­legri áreitni. Í til­efni þess hefst alþjóð­leg ráð­stefna um #Metoo í dag en ráð­stefnan er liður í for­mennsku Íslands í Norrænu ráð­herra­nefnd­inni og er skipu­lögð í sam­vinnu við RIKK – rann­sókna­stofnun í jafn­rétt­is­fræðum við Háskóla Íslands.

Yfir 800 manns hafa skráð sig til þátt­töku á ráð­stefn­unni og er hún því með stærri ráð­stefnum um #metoo sem haldin hefur verið. Um átta­tíu fyr­ir­les­arar taka þátt í ráð­stefn­unni úr röðum fræða­fólks, aktí­vista, stjórn­mála­manna og sér­fræð­inga. Roxane Gay, Liz Kelly, Angela Davis, Marai Larasi og Cynthia Enloe eru meðal þeirra heims­frægu fyr­ir­les­ara sem taka til máls á ráð­stefn­unni.[adspot]

Sögur kvenna af erlendum uppruna höfðu mikil áhrif

[links]Í til­efni dags­ins skrifar for­sæt­is­ráð­herra um áhrif og umfang #Metoo-bylt­ing­ar­innar hér á landi í aðsendri grein á CNN í dag. Hún segir að fyrir marga hafi það verið vendi­punktur í bar­átt­unni þegar konur af erlendum upp­runa stigu fram og sögðu sögur sínar undir merkjum #Metoo-bylt­ing­ar­innar.

„Þær lýstu marg­þættri mis­munun sem flest okkur hefðum vonað að ætti sér ekki stað á Ísland. Þær afhjúp­uðu þá stað­reynd að á sama tíma og Ísland hefur vakið heims­at­hygli fyrir þann mikla árangri sem náðst hefur hér á landi í bar­átt­unni fyrir kynja­jafn­rétti þá höfum við ekki tek­ist á við sam­tvinnun kynja, kyn­þátta og stétta ójöfnuð.“

Katrín bendir til að mynda á að á Íslandi hafi fatl­aðar konur ekki sagt sínar #me-too sögur á skipu­lagðan hátt. Né þær konur sem sinna lág­launa­störfum eða þær konur sem eru fórn­ar­lömb mansals. „Bar­átt­unni fyrir jafn­rétti kynj­anna getur ekki verið háð fyrir einn hóp, hún verður að fela í sér alla þjóð­fé­lags­hópa.“

Miklu flóknara þegar þolandinn og gerandinn höfðu nafn og andlit

Katrín segir að þegar kannað var umfang og áhrif áreitis og ofbeldis í rík­is­stofn­unum þá hafi kom í ljós að stofn­anir hafi verið til­búnir að bregð­ast við atvikum alveg þangað til þau áttu sér stað. Við­bragðs­á­ætl­anir hafi verið til staðar en eins og oft ger­ist, sér­stak­lega í litlum sam­fé­lögum, þá varð þetta allt miklu flókn­ara þegar þol­and­inn og ger­and­inn höfðu nafn og and­lit.

Í grein­inni fjallar Katrín einnig um hvernig rík­is­stjórnin sem hún leiðir hafi meðal ann­ars ráð­ist í end­ur­skoðun á lög­gjöf og for­varn­ar­starfi gegn kyn­ferð­is­legu og kyn­bundnu ofbeldi og áreitni. Hún segir þó að meira þurfi til. Það sem #metoo þurfi séu rót­tækar, menn­ing­ar­legar breyt­ingar. Engin ein leið eða stefna sé töfra­lausnin. 

Eitt stærsta og þrálátasta böl okkar tíma

Katrín fjallar einnig um hvernig víða um heim sé til umræðu að skerða sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt kvenna yfir eigin lík­ama. Umræða sem ætti að hafa lokið fyrir ára­tugum síðan. Hún segir að þar sem kerf­is­lega sé grafið undan almennum mann­rétt­indum þá séu konur og minni­hluta­hópar yfir­leitt fyrstu skot­mörkin. Hún segir því að mik­il­vægt sé að festa #Me-too hreyf­ingu í bar­átt­unni fyrir verndun og efl­ingu mann­rétt­inda.

„Félags­legar og sam­fé­lags­legar breyt­ingar eiga sér aldrei stað án bar­áttu. #metoo krefst þess að við höldum áfram að spyrja erf­iðra og ágengra spurn­inga vegna þess að kynja­mis­rétti, sem teng­ist öðru mis­rétti, er eitt stærsta og þrá­látasta böl okkar tíma. Aðeins með því að halda sam­tal­inu gang­andi og þrýsta á breyt­ingar til batn­aðar getum við færst nær sam­fé­lagi jafn­réttis,“ segir Katrín að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár