800 milljóna kostnaður af rekstri Framtakssjóðs undanfarin þrjú ár

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, gagn­rýnir harð­lega það sem hann kallar sjálftöku hjá Fram­taks­sjóði Íslands, en sjóð­ur­inn er í eigu líf­eyr­is­sjóð­anna og Lands­bank­ans, sem er nær alfarið í eigu rík­is­ins.

Sam­an­lagður rekstr­ar­kostn­aður Fram­taks­sjóðs Íslands frá 2010 nemur meira en 2,1 millj­arði króna. Þetta er nið­ur­staðan sem blasir við þegar tölur úr árs­reikn­ingum sjóðs­ins eru teknar saman, en Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, fjallar um málið í Kvenna­blað­inu í dag.

Fram­takss­sjóð­ur­inn er að mestu í eigu líf­eyr­is­sjóða og Lands­bank­ans og var stofn­aður í des­em­ber 2009 til að vinna að end­ur­reisn íslensks atvinnu­lífs. Und­an­farin tvö ár hefur sjóð­ur­inn aðeins haldið utan um hluta­bréf í þremur félögum, Icelandic Group, Invent Farma og IEI II hf, en á tíma­bil­inu nam rekstr­ar­kostn­aður sjóðs­ins tæpum 800 millj­ónum króna. Telur Ragnar að hæg­lega hefði mátt slíta Fram­taks­sjóðnum fyrir þremur árum og skila eignum hans til hlut­hafa.

Samkvæmt vef Fram­taks­sjóðs­ins vinna fjórir starfs­menn hjá sjóðnum en starfs­menn­irnir voru sjö árið 2014. Stjórn­ar­menn eru fimm tals­ins auk þess sem 17 manns sitja í sér­stöku ráð­gjafa­ráði. Á árunum 2014, 2015 og 2016 námu laun og starfs­manna­kostn­aður sjóðs­ins sam­tals 542 millj­ónum en 160 millj­ónir runnu til fram­kvæmda­stjóra og stjórnar.

Ragnar Þór telur að líf­eyr­is­sjóð­irnir hefðu allt eins getað haldið utan um hluta­bréfa­eignir Fram­taks­sjóðs­ins á þessum árum. „Ekkert virð­ist vanta uppá fjölda stjórn­enda eða skort á þekk­ingu innan líf­eyrs­sjóð­anna til stýra eignum Fram­taks­sjóðs­ins,“ skrifar Ragnar og vísar í þessu sam­hengi til þess að sam­an­lagðar launa­greiðslur til stjórn­ar­manna og æðstu stjórn­enda þeirra 14 líf­eyr­is­sjóða sem eiga í Fram­taks­sjóði Íslands námu 940 millj­ónum í fyrra. Rekstr­ar­kostn­aður Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna, stærsta hlut­hafans, árið 2016 var 2,5 millj­arðar, en þar af nam skrif­stofu- og stjórn­ar­kostn­aður 824 millj­ónum. 

„Yfir­bygg­ing og rekstr­ar­kostn­aður kerf­is­ins er orðin með því­líkum ein­dæmum að eitt­hvað verður að ger­ast til að vinda ofan af þess­ari sjálftöku í okkar litla 330 þús­und manna sam­fé­lagi,“ skrifar Ragnar og bætir við: „Ekki þurfa Norðmenn marga Olíu­sjóði. Ef við skoðum tölur úr rekstri Fram­taks­sjóðs Íslands verður ekki annað ályktað en krafa um að honum verði slitið sem allra fyrst og eignum skilað til eig­enda hans taf­ar­laust.“

Mark­að­ur­inn, fylgi­rit Frétta­blaðs­ins, greindi frá því í júní að Herdís Dröfn Fjeld­sted, fram­kvæmda­stjóri Fram­taks­sjóðs­ins, hefði fengið tutt­ugu millj­óna króna auka­greiðslu frá sjóðnum í fyrra vegna starfa sinna þar síð­ustu fjögur ár. Á sama ári hækk­uðu laun starfs­manna Fram­taks­sjóðs­ins um 13,5% á milli ára og námu um 135 millj­ónum króna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár