FÍB segir borgina hafa tekið íbúa og bíla í gíslingu á Menningarnótt

Félag íslenskra bif­reiða­eig­enda, FÍB, sakar borg­ar­yf­ir­völd í Reykja­vík um að taka „íbúa mið­bæj­ar­ins í gísl­ingu í tæpan sól­ar­hring og taka bif­reiðar langt að kom­inna úthverf­is­búa í gísl­ingu“ á Menn­ing­arnótt. Þetta er gert í grein á vef­síðu félags­ins, sem segir að borg­ar­yf­ir­völd vilji gera bíla útlæga og að fólk lifi líf­inu án bíla.

Tilefnið er að ákveðið var að hafa stóran hluta mið­bæj­ar­ins lok­aðan fyrir bíla­um­ferð á Menn­ing­arnótt, líkt og tíðkast hefur und­an­farin ár. Fréttir hafa borist af því að um þús­und bílum hafi verið lagt ólög­lega og því fengið sektir fyrir stöðu­brot.

FÍB segir að með þessu hafi íbúar í mið­bænum verið „læstir inni“ og verið bannað að nota heim­il­is­bíla sína „þótt líf lægi við“. Þá hafi íbúar úthverf­anna fengið svipað vald­boð. „Þeim var ýmist sagt að ganga, hjóla eða taka stræt­is­vagna til að kom­ast í mið­bæ­inn, eða koma á bílnum á til­tekna staði þar sem þeir gætu lagt bílum sínum í stæði og tekið strætó sein­asta spöl­inn í mið­bæ­inn.“ FÍB heldur því fram að þessi stæði hafi fyllst fljótt og „sam­visku­samir úthverfa­búar“ sem hafi lagt ólög­lega hafi fengið að kenna á því með háum sektum. „Ekkert hafði verið gert í því að mæta því aug­ljósa og skil­greina tíma­bundin bíla­stæði á opnum svæðum við útjaðra mið­bæj­ar­ins.“

Vel kynnt lokun


Allar þær götur sem voru lok­aðar fyrir bíla­um­ferð á Menn­ing­arnótt í ár voru líka lok­aðar í fyrra. Reykja­vík­ur­borg kynnti lok­an­irnar fyrir öllum íbúum mið­borg­ar­innar með því að senda þeim bréf heim í vik­unni fyrir Menn­ing­arnótt, auk þess sem nokkrar fréttir voru skrif­aðar um málið á vef­síðu borg­ar­innar og vef­síðu Menn­ing­ar­nætur. Þá kynntu lög­reglan og fjöl­miðlar þessar lok­anir. Að sama skapi var kynnt að ókeypis yrði í stræt­is­vagna þennan dag, og að vagn­anir myndu aka lengur en venju­lega til að koma öllum heim eftir að dag­skrá lyki. Þá var einnig boðið upp á skutlur af stórum bíla­stæðum við Kirkju­sand og Borg­ar­tún.

Í við­tali við Frétta­blaðið í gær sagði Kolbrún Jón­atans­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Bíla­stæða­sjóðs, að um tíu starfs­menn sjóðs­ins hefðu skrifað sektir á Menn­ing­arnótt, sem er sami fjöldi og und­an­farin ár. Sekt­irnar urðu þús­und, sem er líka eins og síð­ustu ár. Hún sagð­ist ekki hafa heyrt af mörgum ósáttum öku­mönnum vegna þessa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár