Mynd: Bára Huld Beck

Sjálfstæðisflokkur stefnir í sína verstu útkomu en Framsókn í sína bestu frá 2013

Rík­is­stjórnin er nær örugg­lega fallin, miðað við nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans. Nokkrar sterkar fjög­urra til fimm flokka stjórnir eru í kort­unum. Þær geta verið blanda af flokkum sem hafa veru­lega ólíkar áherslur í sínum stefnu­skrám.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur ekki mælst með minna fylgi í kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar en hann gerir nú, eða 23,3 pró­sent. Hann er samt sem áður langstærsti flokkur lands­ins og næstum ell­efu pró­sentu­stigum stærri en sá sem á eftir kemur, sem eru Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 12,4 pró­sent fylgi. Ef Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi fá það fylgi sem hann mælist með nú í kosn­ing­unum eftir tólf daga þá yrði um að ræða verstu nið­ur­stöðu hans í sögu flokks­ins.

Frá því í vor hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapað 2,5 pró­sentu­stigum af fylgi sínu, en það mæld­ist 25,8 pró­sent í lok apríl. Þar af hefur eitt pró­sentu­stig farið af fylgi flokks­ins frá því í byrjun sept­em­ber­mán­aðar.

Fleiri virðast telja best að kjósa bara Framsókn

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist nú, líkt og áður sagði, næst stærsti flokkur lands­ins með 12,4 pró­sent fylgi. Hann hefur ekki mælst með meira fylgi í kosn­inga­spánni frá því að hún var keyrð í fyrsta sinn í aðdrag­anda kom­andi kosn­inga í apríl síð­ast­liðnum. Fylgi flokks­ins hefur verið nokkuð stöðugt á því tíma­bili en risið nokkuð á síð­ustu vikum. Verði þetta nið­ur­staða kosn­inga mun Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fá sína bestu nið­ur­stöðu síðan í kosn­ing­unum 2013, þegar hann vann stór­sigur og fékk 24,4 pró­sent atkvæða.

Vinstri græn, þriðji stjórn­ar­flokk­ur­inn, er nú þriðji stærsti flokkur lands­ins með 12,3 pró­sent fylgi. Flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans hefur dalað nokkuð frá því að hann náði að mæl­ast með 14,3 pró­sent stuðn­ing í byrjun júlí, eða um tvö pró­sentu­stig.

Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja er því nú 48 pró­sent, en þeir fengu 52,9 pró­sent fyrir fjórum árum. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur bætt við sig 1,7 pró­sentu­stigum á kjör­tíma­bil­inu á meðan að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur tapað tveimur pró­sentu­stigum og Vinstri græn 4,6 pró­sentu­stigum.

Nær engar líkur eru á því að það dugi til áfram­hald­andi meiri­hluta á þingi miðað við stöð­una nú, þar sem Flokkur fólks­ins ætti alltaf að ná inn að minnsta kosti einum manni. Gerist það þá missir Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn einn þing­mann og sam­an­lagður þing­manna­fjöldi stjórn­ar­flokk­anna fer í 31, eða einum undir meiri­hluta­mark­inu.

Viðreisn bætir við sig en Samfylkingin föst

Af stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum þá hress­ist Viðreisn mest, og bætir við sig 0,5 pró­sentu­stigi. Það dugar til að fara upp fyrir tíu pró­sent markið í fyrsta sinn í sept­em­ber og skilar Viðreisn 10,3 pró­sent fylgi.

Sam­fylk­ingin virð­ist pikk­föst í sínum tólf pró­sentum, eða sama fylgi og flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum fyrir fjórum árum. Fyrir flokk sem lítur á sig sem rétt­borið hryggjar­stykki í mögu­legri félags­hyggju­stjórn, og mæld­ist um tíma með 19 pró­sent fylgi fyrr á kjör­tíma­bil­inu, þá hlýtur sú staða innan við tveimur vikum fyrir kosn­ingar að vera mikil von­brigði.

Píratar mæld­ust mest með 12,8 pró­sent fylgi í lok júlí en hafa síðan sigið niður í 11,1 pró­sent. Það er þó meira en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum, þegar 9,2 pró­sent lands­manna settu x við P.

Sam­an­lagt fylgi þess­ara þriggja flokka var 28 pró­sentu­stig í kosn­ing­unum í októ­ber 2017 en er nú 33,3 pró­sent.

Miðflokkurinn berst fyrir lífi sínu

Sós­í­alista­flokk­ur­inn dalar lít­il­lega á milli spáa og mælist nú með 7,7 pró­sent fylgi eftir að hafa verið yfir átta pró­sentum í þremur spám í röð. Nokkur þétt­leiki virð­ist vera í fylgi flokks­ins og því virð­ist nær öruggt að hann nái inn á þing eftir kosn­ing­arnar 25. sept­em­ber næst­kom­andi.

Þeir tveir flokkar sem mest óvissa er um hvort nái inn eru nú þeir sem komu nýir inn á þing 2017, Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins.

Mið­flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar virð­ist ekki ná neinu flugi og hefur fallið jafnt og þétt í kosn­inga­spánni frá byrjun apríl mán­aðar, þegar fylgi hans mæld­ist 7,3 pró­sent. Það mælist nú 5,8 pró­sent og verði það nið­ur­staða kosn­inga er senni­leg­ast að flokk­ur­inn nái inn þremur til fjórum mönnum en rúm­lega helm­ingi fylgi sitt frá því síð­ast, þegar hann fékk 10,9 pró­sent atkvæða.

Flokkur fólks­ins hefur ekki mælst yfir fimm pró­sent mark­inu sem þarf til að fá úthlutað jöfn­un­ar­mönnum frá því að gerð kosn­inga­spáa hófst í aðdrag­anda kom­andi kosn­inga í apríl síð­ast­liðnum. Að sama skapi hefur fylgi flokks­ins heldur ekki farið undir fjögur pró­sent og er nú eins nálægt fimm pró­sent­unum og hægt er að kom­ast, en fylgið mælist 4,9 pró­sent. Nær úti­lokað er að það myndi ekki skila að minnsta kosti einum kjör­dæma­kjörnum þing­manni sem myndi þá fara frá Sjálf­stæð­is­flokki og fella rík­is­stjórn­ina fyrir vikið.

Nokkrir stjórnarmyndunarmöguleikar í stöðunni

Mögu­legar rík­is­stjórnir eru enn nokkrar þótt sitj­andi stjórn haldi ekki velli. Hún gæti til að mynda bætt Viðreisn við og þá væri komin fjög­urra flokka stjórn með 37-38 þing­menn. Hægri stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks, Við­reisnar og Mið­flokks myndi lík­ast til ein­ungis hafa eins manns meiri­hluta og er því ósenni­legur val­kostur.

Katrín Jakobsdóttir á möguleika á því að mynda ríkisstjórnin í allar áttir. En það er líka kominn upp sá möguleiki að skilja Vinstri græn eftir utan stjórnarsamstarfs.
Katrín Jak­obs­dóttir á mögu­leika á því að mynda rík­is­stjórnin í allar áttir. En það er líka kom­inn upp sá mögu­leiki að skilja Vinstri græn eftir utan stjórn­ar­sam­starfs.

Sömu­leiðis væri hægt að mynda fimm flokka félags­hyggju­stjórn frá miðju til vinstri með aðkomu Fram­sókn­ar­flokks, Vinstri grænna, Sam­fylk­ingar, Pírata og Við­reisnar sem hefði sama meiri­hluta. Eða stjórn með meiri vinstrislag­síðu þar sem Sós­í­alista­flokk­ur­inn kæmi í stað Við­reisnar sem hefði lík­ast til 36 þing­menn á bak­við sig.

Miðju­flokk­arnir fjórir: Fram­sókn­ar­flokkur, Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn vantar ekki mikið upp á til að ná meiri­hluta, og gætu bætt t.d. Flokki fólks­ins við til að ná því, ef sá flokkur skríður yfir fimm pró­senta markið.

Þá er heldur ekki úti­lokað að á það verði látið reyna að mynda minni­hluta­stjórn þar sem tveir eða þrír flokkar myndu sækja stuðn­ing í tvo eða þrjá flokka utan stjórnar, gegn sam­komu­lagi um fram­gang ákveð­inna mál­efna sem þeir standa fyrir.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni eru eft­ir­far­andi:

  • Þjóð­ar­púls Gallup 16. ágúst-29. ágúst (vægi 12,1 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun MMR í sam­starfi við Morg­un­blaðið 24 – 3. sept­em­ber (vægi 14,6 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Maskínu í sam­starfi við Frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis 31. ágúst – 6. sept­em­ber (24,2 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Prósent í sam­starfi við Frétta­blaðið 2 – 7. sept­em­ber (24,7 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun MMR í sam­starfi við Morg­un­blaðið 8 – 10. sept­em­ber (vægi 24,4 pró­sent)

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár