Efast um að Íslendingar myndu sætta sig við harðar aðgerðir út af einu smiti

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir telur útrým­ingu kór­ónu­veirunnar í íslensku sam­fé­lagi mjög illa fram­kvæm­an­lega og efast um að Íslend­ingar myndu sætta sig við harðar aðgerðir til að bregð­ast við einu smiti.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir ræddi um fundinum í dag.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir ræddi um fund­inum í dag.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir var spurður út í svo­kall­aða útrým­ing­ar­leið (e. elimination stra­tegy) í glímunni gegn veirunni á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag og sagði þessa leið hafa verið til umræðu hér allt frá því að far­ald­ur­inn byrj­aði.

Hann seg­ist hafa talið að það „væri mjög illa fram­kvæm­an­legt að vera með þá stra­tegíu að útrýma veirunni.“ Þórólfur sagði að þetta væri ekki bara eins og „ein­hver tölvu­leikur“ þar sem stýripinni væri hreyfður og veirunni útrýmt. Þetta er nán­ast það sama og Þórólfur sagði við Kjarnann í síð­ustu viku.

Myndu Íslendingar sætta sig við „lockdown“ út af einu smiti?

Þórólfur sagði að í Ástralíu væri gripið til þess að setja allt í „lockdown“ tíma­bundið ef eitt til­felli veirunnar greind­ist.[links]

„Ég er ekki viss um að fólk hér myndi sætta sig við það,“ sagði Þórólfur og bætti við að þetta væri ástæðan fyrir því að við hefðum viljað bæla veiruna eins og hægt er með „eins lítt íþyngj­andi aðgerðum og hægt er.“

Kjörstaða núna

Þórólfur sagði aðspurður að Ísland væri í „kjör­stöðu“ núna, með far­ald­ur­inn í lág­marki inn­an­lands og harðar aðgerðir á landa­mærum til að lág­marka áhætt­una á að smit bær­ist inn í landið.

Hann sagði mikið spurt hvort ekki ætti að gera frek­ari kröfur á ferða­menn sem hingað koma og nefndi að hjá Evr­ópu­sam­band­inu væri verið að skoða að gera almennt kröfu um nei­kvætt COVID-próf áður en fólk færi í flug. Þetta ætti eftir að skoða betur.

Yfir fimmtíu tilfelli B.1.1.7

Fram kom í máli Þórólfs á fund­inum að fimm­tíu og fimm manns hefðu greinst með veiru­af­brigðið B.1.1.7 („breska afbrigðið“) hér á landi. Þar af hafa þrettán smit­ast inn­an­lands, en allir voru þeir í nánum tengslum við ein­hverja sem komu smit­aðir að utan.

[adspot]

Ekkert nýtt smit greind­ist um helg­ina og eng­inn hefur greinst utan sótt­kvíar síðan 20. jan­úar.

Ekki hægt að fullyrða að veiran leynist ekki í samfélaginu

Þórólfur sagði að hann væri að skoða til­lögur að frek­ari til­slök­unum á sótt­varna­regl­unum hér inn­an­lands, en kvaðst ekki til­bú­inn að ræða neitt frekar um það sem hann væri að íhuga að leggja til við Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra. Það yrði til­kynnt þegar þar að kæmi, senni­lega á næstu dögum.

Hann sagði að það þyrfti að fara var­lega í alla til­slak­anir, til að reyna að tryggja að ekki kæmi bakslag í far­ald­ur­inn. Ekki væri hægt að full­yrða að veiran væri ekki lengur til staðar ein­hvers­staðar úti í sam­fé­lag­inu, þrátt fyrir að fá smit hafi greinst síð­ustu daga.

Atvinnurekendur hvattir til að tryggja að fólk haldi sóttkví

Þórólfur beindi því til atvinnu­rek­enda að tryggja að fólk sem kæmi að utan til vinnu hér á landi fari ekki til vinnu fyrr en nið­ur­staða lægi fyrir úr seinni skimun og haldi sótt­kví eins og reglur mæla fyrir um.

„Því miður eru enn dæmi um að eftir þessu sé ekki farið,“ sagði Þórólfur. Hann minnti á að lítið þyrfti til að ný bylgja færi af stað, þriðja bylgjan hefði byrjað hjá fólki sem greind­ist á landa­mær­unum en „fór senni­lega ekki eftir reglum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár