Þolmarkadagur jarðarinnar er í dag

Samtökin Global Footprint Network halda utan um hinn svo­kall­aða þol­marka­dag jarð­ar­innar en á þeim degi hafa jarð­ar­búar notað þær auð­lindir sem jörðin hefur getu til að end­ur­nýja á einu ári. Dagurinn fær­ist mikið til milli ára vegna kór­ónu­veirunnar.

Það sem af er ári hafa jarðarbúar nýtt allar þær auðlindir sem jörðin er fær um að endurnýja á einu ári.
Það sem af er ári hafa jarð­ar­búar nýtt allar þær auð­lindir sem jörðin er fær um að end­ur­nýja á einu ári. Mynd: EPA

Hinn svo­kall­aði þol­marka­dagur jarð­ar­innar (e. Earth Overshoot Day) er í dag, 22. ágúst. Dagurinn segir til um hvenær mann­kynið hefur notað þær auð­lindir sem jörðin hefur getu til að end­ur­nýja á einu ári, jörðin er sum sé komin að þol­mörkum sínum í dag. Mann­kynið hefur að vísu ekki gengið jafn hratt á auð­lindir jarð­ar­innar í ár líkt og í fyrra. Ástæðan fyrir því er kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn að mati rann­sak­enda, sam­kvæmt frétt The Guardian. Vegna minni umsvifa og neyslu jarð­ar­búa fær­ist svo­kall­aður þol­marka­dagur jarð­ar­innar um þrjár vikur milli ára en í fyrra féll dag­ur­inn á 29. júlí.

Samkvæmt rann­sóknum sem fram­kvæmdar voru af alþjóð­legu sam­tök­unum Global Footprint Network þá hafði kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn þau áhirf að vist­fræði­legt fót­spor jarð­ar­búa skrapp saman um 9,3 pró­sent á milli ára. Engu að síður þyrfti 1,6 jörð til þess að standa undir auð­linda­notkun jarð­ar­búa að svo komnu máli.

Í frétt Guardian er haft eftir Mathis Wackernegel, for­seta Global Footprint Network, að þol­marka­dagur jarðar sé í raun leið til þess að sýna fram á þann vanda sem við stöndum frammi fyrir þegar kemur að neyslu og áhrifum hennar á jörð­ina. Gögn þessa árs hafi verið verið hvetj­andi en að hans mati sé enn þörf á fram­förum, fram­förum sem til­komnar séu vegna ákvarð­ana en ekki ham­fara.

Auðlindir framtíðar notaðar fyrir neyslu dagsins í dag

Samkvæmt mæl­ingum Global Footprint Network hefur reynt á þessi þol­mörk allt frá árinu 1970. Sú til­færsla á dag­setn­ing­unni sem á sér stað á milli áranna 2019 og 2020 er sú mesta frá því að þol­markanna varð fyrst vart en þessi dagur hefur aldrei verið jafn snemma á árinu og í fyrra. Efna­hags­legar þreng­ingar hafa seinkað yfir­drátt­ar­deg­inum áður, til að mynda eftir fjár­málakrepp­una 2008, en þær breyt­ingar hafa ávallt verið tíma­bundnar.

Wackernagel líkir neyslu okkar við Ponzi-svika­myllu, við séum að ganga á auð­lindir fram­tíðar til þess að standa straum af neyslu dags­ins í dag. Í flestum löndum gilda ströng lög sem banna fyr­ir­tækjum að stunda Ponzi-svik en þegar kemur að vist­kerf­unum þá virð­ast slík svik vera í lagi. Við eigum ein­ungis eina jörð og það mun ekki breyt­ast, “ er haft eftir Wackernagel í frétt Guardian.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár