Mun færri börn skráð í Þjóðkirkjuna við fæðingu

Innan við 60 pró­sent þeirra barna sem fædd­ust í fyrra voru skráð í Þjóð­kirkj­una við fæð­ingu. Hlut­fallið hefur lækkað veru­lega frá árinu 2005, þegar það var rúm­lega 80 pró­sent. Á sama tíma­bili hefur börnum sem eru skráð með ótil­greinda trú­fé­lags- eða lífs­skoð­un­ar­að­ild fjölgað mikið, eða úr tæpum 6 pró­sentum barna sem fædd­ust árið 2005 í rúm­lega 26 pró­sent barna sem fædd­ust árið 2014.

Þetta er hægt að sjá út úr tölum sem birt­ust í svari Ólafar Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Sigríðar Ingi­bjargar Inga­dóttur, þing­konu Sam­fylk­ing­ar­innar, um skrán­ingu barna í trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög.


45.560 lif­andi fædd börn komu í heim­inn á Íslandi á árunum 2005 til 2014. 1.716 börn voru skráð utan trú- eða lífs­skoð­un­ar­fé­laga og 4.774 börn voru skráð með ótil­greinda trú­fé­lags- eða lífs­skoð­un­ar­fé­lags­að­ild. Eftir að ný lög tóku gildi í byrjun árs 2013 eru börn skráð með stöð­una „ótil­greind trú­fé­lags- eða lífs­skoð­un­ar­fé­lags­að­ild“ ef for­eldrar þeirra eru í hjú­skap eða sam­búð en ekki í sama trú­fé­lagi. For­eldrar þurfa þá að taka sam­eig­in­lega ákvörðun um trú­fé­lag en fram að því er barnið skráð með ótil­greinda stöðu.

Þá er sam­kvæmt lög­unum eftir breyt­ingu hægt að biðja um að börn fái þessa skrán­ingu, auk þess sem íslensk börn í útlöndum eru nú skráð á þennan hátt. Annars gildir enn að börn eru skráð í trú­fé­lög eftir trú­fé­lagi þess for­eldris sem fer með for­sjá, eða utan trú­fé­lags ef for­eldrið er utan trú­fé­lags. Þessi breyt­ing hefur haft mikið um skrán­ing­una að segja, en milli áranna 2012 og 2013 fór hlut­fall barna sem ekki eru í til­greindu trú- eða lífs­skoð­un­ar­fé­lagi úr níu pró­sentum í rúm­lega 20 pró­sent.

Á tíma­bil­inu sem spurt var um, 2005 til 2014, voru 2.113 börn skráð í Kaþólsku kirkj­una og 1.272 í Frí­kirkj­una í Reykja­vík. Færri börn voru skráð í önnur trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög.

Einnig var spurt að því hversu mörg börn voru skráð í trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög innan árs frá fæð­ingu á þessu sama tíma­bili. Í svar­inu kemur fram að breyt­ingar hafi verið gerðar á trú­fé­laga­skrán­ingu 1.732 barna. Flest þess­ara barna voru skráð í Kaþólsku kirkj­una, rúm­lega 22 pró­sent eða 385 börn. 374 börn voru skráð í Frí­kirkj­una í Reykja­vík, eða 21,5 pró­sent, og 361 barn var skráð í Þjóð­kirkj­una, eða 20,8 pró­sent. 175 börn voru skráð utan trú­fé­laga og 125 með ótil­greinda trú­fé­lags- eða lífs­skoð­un­ar­fé­lags­að­ild.

Sjá má svarið og töl­urnar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár