Starfslokasamningur fílanna

Danska ríkið greiddi nýlega jafn­virði 222 millj­óna íslenskra króna vegna starfs­loka fjög­urra fíla sem ekki þurfa lengur að „vinna“. Dval­ar­heim­ili fíl­anna á Lálandi er 140 þús­und fer­metrar að stærð.

Kjarn­inn end­­­­­­­ur­birtir nú valda pistla Borg­þórs Arn­gríms­­­­­­­sonar sem sam­hliða eru gefnir út sem hlað­varps­þætt­­­­­­­ir. Frétta­­­­­­­skýr­ingar Borg­þórs njóta mik­illa vin­­­­­­­sælda og sú sem er end­­­­­­­ur­birt hér að neðan var upp­­­­­­­haf­­­­­­­lega birt þann 7. júní 2020.

Fyrsta sirkus­sýn­ing í Danmörku fór fram í skemmti­garð­inum Dyrehavs­bakken, skammt fyrir norðan Kaup­manna­höfn, árið 1795. Dyrehavs­bakken, eða Bakkinn eins og hann er oft­ast kall­aður, á sér mun lengri sögu, eða allt aftur til árs­ins 1583 og er reyndar elsti skemmti­garður í heimi.

Fyrsti sirkushópurinn kom frá Englandi

Sirkus­hóp­ur­inn sem sló upp tjaldi sínu á Bakkanum árið 1795 kom frá Englandi. Eigandi sirkuss­ins var ensk fjöl­skylda og stjórn­and­inn var James Price. Hann sett­ist að í Danmörku og eign­að­ist marga afkom­endur. Í þeim hópi eru bræð­urnir James og Adam Price, og hafa árum saman verið með vin­sæla sjón­varps­þætti í danska sjón­varp­inu, DR, þar sem þeir elda alls kyns rétti, og skemmta sér í leið­inni (Spise med Price). Adam er þekktur hand­rits­höf­undur ( m.a Borgen) og James er tón­list­ar­maður. Hann hefur um ára­bil samið tón­list­ina og stjórnað hljóm­sveit hinnar vin­sælu Sirkus-revíu á Bakkanum.

Nutu strax vinsælda

Sýningar Price fjöl­skyld­unnar nutu strax vin­sælda meðal Dana, sem flykkt­ust í sirkus. Price fjöl­skyldan sat ekki lengi ein að þessum skemmt­unum og nokkrum árum eftir fyrstu sýn­ing­arnar á Bakken 1795 fylgdu fleiri erlendir sirkus­hópar í kjöl­farið, flestir frá Frakk­landi og Ítalíu. Árið 1830 reis fyrsta húsið sem sér­stak­lega var byggt til sirkus­sýn­inga. Það hús, sem er löngu horfið, stóð á Norð­ur­brú og rúm­aði 1800 manns. 1886 var Sirkus­húsið (Cirkusbygningen) í Kaup­manna­höfn tekið í notkun, það rúm­aði nokkur þús­und manns.

Sirkus­húsið skemmd­ist mikið í eldi ári 1914 en var end­ur­byggt í sama stíl og gamla húsið. Margir þekkja þetta hring­laga hús, sem er skammt frá Tívolí og Ráð­hús­torg­inu. Þekkt­ustu sirkus­flokk­arnir sem höfðu aðsetur í Sirkus­hús­inu voru Cirkus Schumann og Cirkus Benneweis, sem báðir sýndu þar um ára­bil. Fastar sýn­ingar í hús­inu lögð­ust af árið 1990 og síð­asta sirkus­sýn­ing fór þar fram árið 1998. Húsið, sem er friðað, er nú notað til ýmis konar sam­komu­halds.

Ljón, tígrisdýr, sæljón, apar, hundar og fílar

Eins og áður var getið var það breskur flokkur sem kynnti sirkus­inn fyrir Dönum, skömmu fyrir alda­mótin 1800. Bretinn Philip Astley er tal­inn upp­hafs­maður sirkuss­ins í þeirri mynd sem við nútíma­fólk þekkjum hann. Í sýn­ingum hans, sem hófust 1768 í London, komu hestar mjög við sögu og Philip Astley not­færði sér hið gamla form róm­verska hring­leika­húss­ins þar sem hest­arnir gátu tölt hring eftir hring í stað þess að snúa við. Auk hest­anna sáu áhorf­endur fim­leika­fólk, töfra­menn og trúða leika listir sínar. Þessar skemmt­anir fengu nafnið circus, sirkus, dregið af hring­form­inu.

Skemmt­anir af þessu tagi urðu mjög vin­sælar og auk hest­anna komu brátt fleiri dýra­teg­undir við sögu. Fyrir Evr­ópu­búa var það mikil nýlunda að sjá tígris­dýr, ljón, og fleiri ,,fram­andi“ dýr leika listir sem þau höfðu verið þjálfuð til að sýna á svið­inu. Fílarnir nutu mik­illa vin­sælda og mörgum þótti ótrú­legt að sjá þessar stóru skepnur, sem fæstir höfðu áður augum litið, leika ýmsar kúnstir.

Breytt viðhorf

Á árunum eftir 1960 átti sér stað ákveðin við­horfs­breyt­ing. Þá fóru í auknum mæli að heyr­ast raddir sem áður höfðu lítið heyrst. Raddir sem gagn­rýndu notkun dýra sem rifin höfðu verið úr sínu nátt­úru­lega umhverfi til að skemmta mann­fólk­inu. Þessar raddir urðu smám saman hávær­ari og hægt og rólega hurfu villtu dýrin úr sirkus­unum. Sums staðar bönn­uðu stjórn­völd bein­línis notkun dýra í þessum til­gangi, ljón og tígris­dýr voru til dæmis bönnuð í Danmörku á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar. Viðhorf almenn­ings breytt­ist sömu­leiðis. Eigendur og stjórn­endur sirkus­flokk­anna þrá­uð­ust við, sögðu að ef engir væru fíl­arnir og ljónin kæmu færri í sirkus­inn. Kannski var það að ein­hverju leyti rétt en tím­arnir voru líka breyttir. Sirkus­gestum fækk­aði og margir sirkus­flokkar í Evrópu lögðu upp laupana.

Fílabannið

Upp úr síð­ustu alda­mótum hafði fílum í dönskum sirkusum fækkað mjög, eins og reyndar sirkus­flokk­unum í land­inu. Þrýst­ingur frá dönskum almenn­ingi jókst og atvik sem átti sér stað á Enø á Suður-Sjálandi, árið 2015, þar sem ótta­slegnir fílar réð­ust meðal ann­ars á bíl, vakti mikla athygli og fjöldi fólks mót­mælti við sýn­ing­ar­tjöld Cirkus Arena, eig­anda fíl­anna. Þremur árum síðar til­kynnti Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra Dana að þingið, Fol­ket­inget, hefði sam­þykkt að fram­vegis yrðu dýr, önnur en hefð­bundin hús­dýr, bönnuð í sirkusum lands­ins, „þá getur Júmbó litli sofið vært og rótt, vit­andi að hann muni ekki ferð­ast um landið inni­lok­aður í flutn­ingagámi,“ sagði danski for­sæt­is­ráð­herr­ann í ræðu­stól í þing­inu. Þegar Lars Løkke Rasmus­sen mælti þessi orð í þing­inu voru sam­tals fjórir fílar í dönskum sirkusum (eng­inn þeirra heitir reyndar Júmbó). Lara, Djungla og Jenny voru í eigu Cirkus Arena og Cirkus Trapez átti Ram­boline. Allir eru fíl­arnir um þrí­tugt.

Hvað með fílana?

Eftir að fíla­bannið hafði tekið gildi þurfti að ákveða tvennt: Ann­ars­vegar hvað yrði um fíl­ana, sem voru á besta aldri, og ná samn­ingum við eig­endur fíl­anna um bætur. Gengið var út frá því að fíl­arnir yrðu áfram í Danmörku og nið­ur­staðan varð að þeir færu, allir fjórir, til Knut­hen­borg dýra­garðs­ins á Lálandi. Samkvæmt alþjóða­reglum sam­bands dýra­garða mega dýra­garðar ekki borga fyrir dýr en fíla­fræð­ingar urðu sam­mála um að þær aðstæður sem Knut­hen­borg byði uppá hent­aði fíl­unum best. Þar fá þeir úti­svæði, sem er um 140 þús­und fer­metrar að stærð.

Samn­ingar um greiðslur til sirkus­flokk­anna tveggja tóku langan tíma og það var ekki fyrr en í ágúst á síð­asta ári að gengið var frá þeim. Danska ríkið borg­aði Cirkus Arena og Cirkus Trapes sam­tals 11 millj­ónir danskra króna (220 millj­ónir íslenskar) fyrir fíl­ana fjóra. Það var hlegið hátt í þingsalnum á Krist­jáns­borg þegar Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra greindi frá sam­komu­lag­inu.

Komnir á framtíðarheimilið

Fyrir tæpum mán­uði voru fíl­arnir fjórir fluttir til Knut­hen­borg. Fyrst eftir að þangað kom voru fíl­arnir frá Cirkus Arena, Djungla, Lara og Jenny hafðir saman í hólfi í stórri skemmu en Ram­boline ein og sér í hólfi í sömu skemm­unni. „Þeir gátu talað saman,“ sagði yfir­maður Knut­hen­borg Safaripark. Meðal starfs­fólks dýra­garðs­ins ríkti spenn­ingur þegar opnað var á milli hólfanna en Djungla, Lara og Jenny tóku Ram­boline opnum örmum, eins og fíla­sér­fræð­ingur dýra­garðs­ins komst að orði. Þann 1. júní var fíl­unum svo hleypt út á stóra svæðið, fram­tíð­ar­heim­ilið, og ekki varð annað séð en þeim lit­ist vel á allt þar. Fóru strax að leita að ein­hverju æti­legu. Eins og áður var nefnt eru þeir allir um þrí­tugt en fílar verða iðu­lega að minnsta kosti 60 ára gamlir.

Í lokin má nefna að eftir að gengið hafði verið frá samn­ingum við sirkus­flokk­ana tvo og greiðslur inntar af hendi kom í ljós að Cirkus Arena og dótt­ur­fé­lög þess skuld­uðu danska rík­inu um það bil 20 millj­ónir danskra króna (400 millj­ónir íslenskar) í skatta og gjöld. Þetta vissu þing­menn ekki þegar samið var um greiðsl­urnar til sirkus­flokk­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár