„Ég nýt lífsins þegar ég sé hvað börnin mín eru glöð og að mestu áhyggjulaus,“ segir Latifa þegar hún tekur á móti blaðakonu og myndatökumanni á heimili sínu í Reykjavík. Hún segist þurfa að minna sig á að njóta þess að vera komin í skjól á Íslandi en hún hafi stöðugar áhyggjur af ástvinum sínum sem enn eru í Kabúl. Hún segir líka að erfiðar minningar frá misheppnuðum flóttatilraunum fjölskyldunnar herji á hana í svefni og vöku. „Ég fæ enn martraðir en reyni að sækja í þakklætið þegar mér líður verst því það er sterkt afl,“ segir Latifa og býður okkur að setjast inn í stofu.
Eiginmaður hennar, Mahmoodullh Dardmanesh, er á fundi í skóla sonar þeirra þegar okkur ber að garði. Íbúðin er afar hlýleg þó að þar séu fá húsgögn. Úr stofuglugganum og úr glugga í herbergi barnanna sést niður í stóran garð og þar skammt frá …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.

























Athugasemdir