Engin stefna um sjúkrahótel og þörf sjúklinga aldrei verið metin

Sjúkrahótel teljast ekki til heilbrigðisþjónustu samkvæmt lögum.
Sjúkra­hótel telj­ast ekki til heil­brigð­is­þjón­ustu sam­kvæmt lögum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rík­is­end­ur­skoðun segir að það þurfi ekki að koma á óvart að búið sé að segja upp samn­ingi um rekstur sjúkra­hót­els í Ármúla, miðað við það sem á undan er gengið. Land­spít­al­inn og Sjúkra­trygg­ingar hafi lengi deilt opin­ber­lega um rekst­ur­inn, og meg­in­vand­inn liggur í því að stofn­an­irnar tvær hafa mis­mun­andi sýn á það hvernig sjúkra­hót­elið á að vera, hverjir eiga að dvelja þar og hvernig þjón­ustu á að veita. Þetta er ótækt að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar, sem hvetur vel­ferð­ar­ráðu­neytið til að höggva á hnút­ana í nýrri skýrslu.

Heilsu­m­ið­stöðin/Sinnum sagði upp samn­ingi við Sjúkra­trygg­ingar fyrir helgi, og sagði það vegna þess að starf­semi mið­stöðv­ar­innar við rekstur sjúkra­hót­els í Ármúla væri bit­bein milli opin­berra aðila sem tak­ist á um hvar fjár­veit­ingin til starf­sem­innar eigi að vera, og hafi ólíkar skoð­anir á eðli og hlut­verki sjúkra­hót­els­ins.

Athugasemdir frá upphafi

Land­spít­al­inn hefur nán­ast frá upp­hafi samn­ings­ins árið 2011 gert marg­vís­legar athuga­semdir við aðstöðu, aðbúnað og efndir rekstr­ar­að­ila sjúkra­hót­els­ins. Sjúkra­trygg­ingar telja athuga­semdir spít­al­ans hins vegar til­efn­is­lausar. Stofn­an­irnar tvær líta á rekst­ur­inn mjög ólíkum augum og sam­skipti þeirra eru þeim til vansa, segir rík­is­end­ur­skoðun. Stofn­an­irnar verði að leggj­ast á eitt og koma sam­skiptum sínum í eðli­legan far­veg með hjálp ráðu­neyt­is­ins.

Land­spít­al­inn veitir hjúkr­un­ar­þjón­ustu á hót­el­inu en Heilsu­m­ið­stöðin/Sinnum sjá um hót­el­þjón­ustu. Hins vegar hefur aldrei farið fram mat á raun­veru­legri þörf sjúk­linga fyrir hjúkrun og aðhlynn­ingu þar. Þess vegna hefur verið deilt um ástand og þjón­ustu­þörf sjúk­linga sem þangað koma. Sjúkra­trygg­ingar segja að sjúk­lingar eigi að vera sjálf­bjarga þegar þeir koma þangað, þótt þeir geti veikst þar og þá þurft meiri með­ferð, en Land­spít­ali og Heilsu­m­ið­stöðin eru á því að stundum komi sjúk­lingar veikir á hót­elið.

Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur hefur líka í tvígang gert ýmsar athuga­semdir við aðbúnað á sjúkra­hót­el­inu. Fyrst í des­em­ber 2012 og svo í mars 2015.

Þá gerði emb­ætti land­læknir athuga­semdir í sinni úttekt í fyrra, en taldi engu að síður að í heild­ina væri þjón­usta sjúkra­hót­els­ins góð.

Engin stefna eða skilgreiningar

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið er einnig hvatt til þess í skýrsl­unni að marka skýra stefnu um eðli og rekstur sjúkra­hót­ela. Slíkt hafi ekki verið gert í ráðu­neyt­inu, þar sem engin skýr stefna hafi verið mörkuð um hvernig þessum málum skuli vera háttað.

Lög um heil­brigð­is­þjón­ustu fjalla ekki neitt um sjúkra- eða sjúk­linga­hótel, en hug­takið sjúkra­hótel er skil­greint í reglu­gerð. Sjúkra­hótel eru því ekki heil­brigð­is­stofn­anir sam­kvæmt lögum.

Rík­is­end­ur­skoðun segir að það sé mót­sögn falin í skil­grein­ing­unni á sjúkra­hót­eli ann­ars vegar og ákvæðum samn­ing­anna hins vegar. Þessu þurfi að eyða því mót­sögnin eigi veru­lega sök á ágrein­ingnum um málið. Annað hvort þurfa sjúkra­hótel að telj­ast til heil­brigð­is­þjón­ustu eða þá að þjón­usta verði tak­mörkuð. 

Þá er vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu bent á að það þurfi að tryggja sam­ræmda skrán­ingu upp­lýs­inga, sem sé for­senda þess að hægt sé að meta þjón­ust­una og hag­kvæmn­ina. Tölurnar frá Land­spít­ala og Sinnum/Heilsu­m­ið­stöð­inni eru mjög ólíkar hvað þetta varðar, enda teknar saman út frá mis­mun­andi for­sendum.

Greiddu milljónir til Sinnum í bætur

Sjúkra­trygg­ingar greiddu Sinnum, sem þá sá um hót­elið, tvisvar sinnum efnda­bætur vegna samn­ings­ins árið 2012. Upp­hæð­irnar námu 6,5 millj­ónum í jan­úar og 7,3 millj­ónum í ágúst, sam­tals 13,8 millj­ónir króna.

Þetta var byggt á upp­lýs­ingum úr útboðs­gögnum, sem sögðu það mögu­legt að hlut­fall ósjúkra­tryggðra á hót­el­inu myndi hækka úr þeim 6% gesta sem gert var ráð fyrir. Þetta gekk ekki eftir, ósjúkra­tryggðir voru 2,5% árið 2011 og 2% fyrri hluta 2012. Vegna þessa fékk fyr­ir­tækið bæt­urnar, þrátt fyrir að komið hafi fram í útboðs­lýs­ing­unni að töl­urnar væru settar fram „sem vís­bend­ing og er því ekki lof­orð um kaup.“ Sinnum krafð­ist reyndar líka bóta vegna nið­ur­fell­ingar Land­spít­ala á hjúkr­un­ar­þjón­ustu um jól og ára­mót, sem leiddi til lægri tekna fyr­ir­tæk­is­ins.

Þetta segir Rík­is­end­ur­skoðun að hefði þurft að vera skýr­ara í samn­ingum, auk þess sem eðli­legt hefði verið að Land­spít­al­inn kæmi að mál­inu, sem hann gerði ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár