Ólafur segist hafa fjárfest fyrir tæplega 350 þúsund evrur í Landsnámssetrinu í Borgarnesi

Ólafur Ólafsson segir að upp­lýs­ingar sem Morg­un­blaðið hafi birt í morgun séu allar opin­berar. Hann hafi fjár­fest meg­in­þorra 350 þús­und evra í upp­bygg­ingu á eld­húsi á Land­náms­setr­inu í Borg­ar­nesi.

Ólafur Ólafsson, aðal­eig­andi Samskipa, segir að upp­lýs­ingar um félög í hans eigu séu opin­ber gögn, þar á meðal félög sem fjallað er um í Morg­un­blað­inu í dag. Ólafur, sem nú afplánar fang­els­is­dóm vegna Al Thani máls­ins, sendi frá sér yfir­lýs­ingu vegna umfjöll­unar Morg­un­blaðs­ins í dag.

Í Morg­un­blað­inu kemur fram að Ólafur var með tæpa fjóra millj­arða króna í eigna­stýr­ingu í Lúx­em­borg í gegnum félagið KIMI S.a.r.l. árið 2013. Félagið hefur fjár­fest í hol­lensku félagi og tveimur spænskum fyr­ir­tækjum í sjáv­ar­út­vegi á und­an­förnum árum. Í árs­reikn­ingum Kima kemur fram að félagið hafi keypt íslenskar krónur „á hag­stæðu gengi“ í gegnum fjár­fest­inga­leið Seðla­bank­ans.

„Árið 2013 lagði KIMI 350 þús­und evrur til fjár­fest­ingar á Íslandi. Megin þorri þeirra fjár­muna fóru til upp­bygg­ingar á eld­húsi og stækk­unar Land­náms­set­urs­ins í Borg­ar­nesi sem við höfum stutt við frá upp­hafi. Það var liður í að styðja við fjöl­breytt menn­ing­ar­líf í Borg­ar­nesi og stuðla að upp­bygg­ingu í sam­fé­lag­inu,“ segir Ólafur í yfir­lýs­ing­unni.

Þar seg­ist hann einnig hafa verið búsettur erlendis frá árinu 2005, fyrst í Englandi en svo í Sviss frá 2009. Langstærstur hluti starf­semi hans sé erlendis. „Ég kem að rekstri fjölda fyr­ir­tækja erlendis sem veita hátt í 2000 manns atvinnu. Þar má nefna nefna félögin KIMI SARL í Lúx­em­borg og Neptune Holding BV í Hollandi sem fjallað er um í Morg­un­blað­inu í dag.

KIMI hefur meðal ann­ars staðið að hjálp­ar­starfi með upp­bygg­ingu á fisk­vinnslu og lönd­un­ar­stöðvum í Sierra Leone í Afríku en um er að ræða umfangs­mesta og metn­að­ar­fyllsta þró­un­ar­starf í sjáv­ar­út­vegi í land­inu. Verk­efnið er unnið í sam­starfi við Aurora vel­gjörð­ar­sjóð sem konan mín og ég höfum starf­rækt frá árinu 2007,“ skrifar Ólafur.

Í gegnum félagið Neptune Holding hafi hann fjár­fest í sjáv­ar­út­vegi utan Íslands. „Nefna má fyr­ir­tækið Asia Seafood, sem er með móð­ur­fé­lag á Íslandi og kaupir sjáv­ar­af­urðir af útgerðum við Kyrra­hafið, til vinnslu og sölu á mark­aði í Asíu og Banda­ríkj­unum. Fyr­ir­tækið veltir árlega yfir 200 millj­ónum Banda­ríkja­dala (tæpum 29 millj­örðum króna). Neptune Holding hefur einnig fjár­fest í Lumar Seafood á Spáni sem rekur sér­hæfða verk­smiðju sem fram­leiðir hágæða fisk­rétti og tún­fisk til sölu í Evrópu. Þá á Neptune einnig línu­veiði­skipið Ana Barral sem hefur stundað veiðar á Ind­lands­hafi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár