Sækja um viðspyrnustyrki gegn 20 prósenta þóknun

Ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Ferða­vefir býðst til þess að sækja um við­spyrnu­styrki fyrir önnur ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki gegn þóknun. Fjár­mála­ráðu­neytið segir umsókn­irnar ein­faldar og fljót­legar, en fyr­ir­tækið seg­ist hafa aðstoðað hátt í 20 umsækj­endur nú þegar.

„Fólk treystir sér kannski ekki til þess að lesa út úr sínum eigin bók­halds­tölum eða þá að fara inn á netið að fylla þetta út. Það er fullt af fólki sem hefur ekki burði í það.“ Þetta segir Benedikt Vigg­ós­son, fram­kvæmda­stjóri Ferða­vefja, sem býður upp á að sækja um við­spyrnu­styrki fyrir ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki gegn þóknun sem nemur 20 pró­sentum af styrkj­unum.

Fjár­mála­ráðu­neytið segir að ein­hver fyr­ir­tæki kunni að sjá sér hag í því að bjóða upp á þessa þjón­ustu vegna þess hve margir umsækj­end­urnir séu, en segir umsókn­irnar þó ein­faldar. Benedikt seg­ist hafa unnið í nær 20 umsóknum.

Víða pottur brotinn

Samkvæmt heima­síðu sinni sér­hæfa Ferða­vefir sig í ýmsa þjón­ustu fyrir ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki, líkt og vef­síðu­gerð, hönnun og ráð­gjöf um rekstur. Í sam­tali við Kjarnann segir Benedikt að hug­myndin að þjón­ust­unni hafi kviknað þegar einn við­skipta­vinur Ferða­vefja tjáði honum hann ætti ekki rétt á neinum við­spyrnu­styrkjum frá stjórn­völdum, sam­kvæmt bók­ara fyr­ir­tæk­is­ins.

Benedikt fór þá yfir lykil­upp­lýs­ingar hjá við­skipta­vini sínum og komst að því að hann ætti víst rétt á styrk miðað við þær for­sendur. „Þá tal­aði ég í fram­hald­inu við bók­ar­ann hans og þá kom eig­in­lega í ljós að bók­ar­inn hafði ekki mikla þekk­ingu og engan tíma til þess að aðstoða hann við þetta. Þá fór mig að gruna að það væri víða pottur brot­inn,“ segir Benedikt.

Getur virkað óaðgengilegt fyrir aðra

Aðspurður hvort hann telji að útfyll­ing umsókn­anna krefj­ist sér­þekk­ingar telur Benedikt svo ekki vera, en segir þó að hlutir geti virkað mjög óað­gengi­legir fyrir suma, þrátt fyrir að þeir virki mjög ein­faldir fyrir fólk sem hafi gert þá.

„Fólk sem hefur til dæmis ekki mjög góða tölvu­kunn­áttu og treystir síðan kannski algjör­lega í blindni á bók­halds­skrif­stof­una sem segir kannski: „Nei, það tekur því ekki að sækja um þetta,“ og þá stoppa hlut­irnir bara alveg,“ bætir hann við. „Fólk treystir sér kannski ekki til að lesa út úr sínum eigin bók­halds­tölum eða þá að fara inn á netið að fylla þetta út. Það er fullt af fólki sem hefur ekki burði í það.“

Allt að tíu milljóna króna styrkur

Benedikt segir marga vera búna að hafa sam­band við hann og viljað nýta sér þjón­ust­una. Samkvæmt honum er fjöld­inn kom­inn á annan tug­inn og far­inn að nálg­ast 20. Þó séu margar umsóknir enn ókláraðar, þar sem ein­hverjar upp­lýs­ingar vanti í nokkrum til­vikum og sums staðar eigi eftir að stilla af bók­haldið.

Af þeim umsóknum sem eru afgreiddar hafi minnsti styrk­ur­inn hins vegar numið um 700 þús­und krónum, en að eitt fyr­ir­tæki muni að öllum lík­indum fá hátt í 10 millj­ónir króna. Samkvæmt honum hefði fyr­ir­tækið sem fékk minnsta styrk­inn einnig rétt á að fá tekju­falls­styrk, sem boðið var upp á á fyrstu mán­uðum far­ald­urs­ins, ef það hefði sótt um hann á réttum tíma.

Hvetur alla til þess að sækja um

Aðspurður hvort honum finn­ist eðli­legt að taka fimmt­ung af opin­berum styrkjum sem ætl­aðir eru fyr­ir­tækjum sem hafa orðið fyrir miklu tekju­falli segir Benedikt að ekk­ert þeirra taki fjár­hags­lega áhættu við að sækja um, þar sem engin þóknun sé tekin af þjón­ust­unni ef eng­inn styrkur næst. „Við erum ekki að krefj­ast þess að menn nýti sér þjón­ustu okkar, við erum bara að bjóða upp á hana og í leið­inni kannski að hvetja menn til þess að taka þetta til end­ur­skoð­unar hjá sér.“

„Ég hvet bara öll þau fyr­ir­tæki sem starfa í ferða­þjón­ustu og telja sig eiga rétt á þessu að skoða þessi mál. Það hefur ekk­ert með mig að gera,“ bætir hann við. „Mér finnst mjög alvar­legt mál að það séu tugir, jafn­vel hund­ruð fyr­ir­tækja, þar sem skortur er á þekk­ingu og svo­leiðis fái ekki þann styrk sem þau eiga rétt á.“

Segir umsóknarferlið einfalt og fljótlegt

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans segir fjár­mála­ráðu­neytið að Skatt­ur­inn aðstoði umsækj­endur fyrir við­spyrnu­styrki í umsókn­ar­ferl­inu sínu og svari fyr­ir­spurnum. Einnig séu grein­ar­góðar leið­bein­ingar og bent á atriði sem reyni á í umsókn­ar­ferl­inu á vef Skatts­ins.

Ráðu­neytið svar­aði því ekki hvort það hefði ein­hverja skoðun á því að fyr­ir­tæki byð­ust til að aðstoða umsækj­endur gegn þóknun, en segir það kunna að vera að ein­hverjir sjái tæki­færi í því vegna þess hve margir umsækj­end­urnir séu. Hins vegar segir ráðu­neytið að útfyll­ing umsókn­anna sé fljót­leg og ein­föld, en hún krefj­ist þó að við­kom­andi þekki ákveðnar lykil­upp­lýs­ingar úr rekstri umsækj­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár