Árekstur í þrjátíu daga

New York er suðu­pottur mann­lífs og menn­ingar úr öllum heims­hornum. Á eyj­unni Man­hattan skella miklir kraftar saman. Magnús Hall­dórs­son fór í þrjá­tíu dags­ferðir á þrjá­tíu dögum með sonum sínum tveimur, átta og þriggja ára, um borg­ina sem aldrei sefur.

Bræðurnir Heimir Andri og Halldór Elí fengu 30 daga túr um New York með pabba sínum í júlí.
Bræð­urnir Heimir Andri og Halldór Elí fengu 30 daga túr um New York með pabba sínum í júlí.

Hinn 13. júní fluttum við fjöl­skyldan af landi brott til New York en Freyja konan mín fór út 17. maí, þar sem námið hennar við Columbia háskóla hófst síðar í mán­uð­inum. Þá lá fyrir að mikið álag yrði vegna prófa og verk­efna í nám­inu svo til alla sum­ar­mán­uð­ina, í það minnsta út júlí.

Með nokkrum fyr­ir­vara skipu­lögðum við feðgar, ég og Heimir Andri átta ára sonur minn, þrjá­tíu dags­ferðir um Man­hattan sem við ætl­uðum að fara í á jafn mörgum dögum, frá 1. júlí til 1. ágúst. Með í för yrði Halldór Elí þriggja og hálfs árs. Hann mátti ekki vera útundan og það var heldur eng­inn mögu­leiki á því.

Feðgar skoða heiminn

Eftir að skipu­lagið var til­búið, þar sem hver dagur var sjálf­stætt ævin­týri, var ekki annað að gera en að leggja af stað. Það er skemmst frá því að segja að okkur tókst vel að halda áætlun, með vega­litlum und­an­tekn­ingum, og eftir stendur minn­ing sem lík­lega gleym­ist seint og er nú þegar þrykkt í minni okkar feðga. Stór­kost­legur tími.

Ég bind vonir við að Halldór Elí muni sterkt eftir ferð­inni þegar fram í sækir, í það minnsta nokkrum atvikum í henni. Þó hann sé bara þriggja ára þá hefur hann talað stans­laust um það sem fyrir augu bar, og það bætir heldur í spurn­inga­flóðið frekar en hitt.

Man­hattan er einn stór árekstur. Á henni mæt­ast straumar og stefnur ólíkra menn­ing­ar­heima, líf­skoð­ana og kyn­þátta. Þetta er eitt helsta ein­kenni Man­hattan og New York borgar. Hún er sam­felldur og síbreyti­legur árekstur krafta úr ólíkum áttum. Hún er líka vett­vangur dínamískra öfga fjár­magns­ins, sem flæðir ýmist í miklu magni upp eina göt­una, eða virð­ist óra­fjarri þeirri næstu, í það minnsta utan frá séð. Allt rým­ist þetta á rúm­lega 87 fer­kíló­metra Man­hattan svæð­inu, þar sem íbúar eru 1,6 millj­ónir. Íbúarnir eru aðeins hluti af stærra sam­fé­lagi, því þau sem sækja svæðið heim á ári hverju sem ferða­menn eru meira en 50 millj­ónir úr öllum heims­hornum, og einnig innan Banda­ríkj­anna. Fyrir vikið verður kraft­ur­inn í þessum borg­ar­hluta næstum áþreif­an­legur þegar gengið er um torg, götur og garða.

Stutt og löng saga

New York á sér bæði langa sögu og stutta. Þó saga byggðar og mann­lífs teygi sig að lík­indum nokkur þús­und ár aftur, sam­kvæmt sagn­fræði­legum rann­sóknum, þá er sá andi sem ein­kennir hana til­tölu­lega nýr eða innan við 250 ára. Í það minnsta miðað við margar aðrar borgir heims­ins, sem standa á gömlum merg sögu, arki­tektúr, hönn­unar og mann­lífs. Í bók­inni The Epic of New York City: A Narrative History, fjallar rit­höf­und­ur­inn Edward Robb Ellis um hvernig stór­við­burðir í sögu Banda­ríkj­anna hafa tengst þróun New York allt fram á okkar tíma.

Ég ákvað, að teknu til­liti til ýmissa athuga­semda Heimis Andra, að byggja dags­ferð­irnar í kringum þessa sögu sem teiknuð er upp í þess­ari frá­bæru bók Robb Ellis, ásamt því að blanda inn í nokkrum skemmti­legum stöðum úr kvik­myndum, tón­list­ar­sög­unni og bókum sem eru í upp­á­haldi hjá mér. Svo var alltaf tími fyrir ís, vatns­kæl­ingu og heim­sóknir í hina ýmsu garða, og „play date“ komust að öðru hvoru líka. Rauði þráð­ur­inn er saga stans­lausrar bar­áttu og öfga, ófyr­ir­séðra atburða og við­bragða við þeim. New York end­ur­speglar þessa spennu í öllum sínum fjöl­breyti­leika.

Stríð, friður, peningar, list og völd

Borg­ara­stríðið sem stóð yfir frá 1861 til 1865 hafði mikil áhrif á þróun upp­bygg­ingar á Man­hattan – og upp­bygg­ingu mann­lífs og lýð­ræðis í borg­inni. New York var mið­punktur Krepp­unnar miklu, tíma­bils sem oft­ast er markað af ára­tugnum frá 1929 til 1939 en teygir anga sína bæði langt aftur fyrir það tíma­bil og líka fram fyrir styrj­ald­ar­árin frá 1939 til 1945. Djúpar rætur jass- og blús­menn­ingar borg­ar­innar voru ekki síst vökvaðar á þessum erf­ið­leika­tíma­bilum, þar sem fólk leit­aði í list­ina sér til dægra­stytt­ingar. Lista­menn, sem nú telj­ast til frum­kvöðla ekki síst í jazz-sen­unni, urðu hluti af borg­inni og gjá­lífi hennar milli stétt­anna, og endu­spegl­uðu kraft­anna í djúpri list­sköpun, sem enn telst til ein­kenna hennar.

Litlu mun­aði að New York borg yrði gjald­þrota á sjötta og sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar, með til­heyr­andi erf­ið­leikum og stöðnun. Atvinnu­leysi fór þá yfir 20 pró­sent í borg­inni, en árið 1972 mun­aði innan við sól­ar­hring að borg­ar­sjóður tæmd­ist. Aðeins sam­komu­lag við seðla­bank­ann bjarg­aði því að allt færi á versta veg.

Uppgangur og hjartað í fjármálakerfi heimsins

Á átt­unda og níunda ára­tugnum umturn­að­ist fjár­mála­kerfi borg­ar­innar með alþjóða­væð­ingu fjár­mála­mark­aða og upp­gangi fjár­fest­inga­banka­starf­semi. Sá tími setti mik­inn svip á borg­ar­lífið og stjórn­málin, einkum neðst á Man­hattan, í fjár­mála­hverf­inu. New York hefur alla tíð verið alþjóð­leg fjár­mála­mið­stöð. Ólíkt Íslandi hefur hún staðið undir nafni sem slík.

Ímynd New York er nátengd fjár­mála­hverf­inu og Wall Street, til­tölu­lega lít­illi götu sem í huga umheims­ins rúmar allt heims­ins fjár­magn. Nautið í fjár­mála­hverf­inu (Charging Bull), brons­slegin stytta eftir Arturo Di Modica, kemur oft upp í hug­ann sem tákn­mynd kap­ít­al­ism­ans og taum­lausrar græðgi.

Ekki síst vegna þess­arar sterku valda­miklu ímyndar var árásin á tví­bura­t­urn­anna í New York, 11. sept­em­ber 2001, eins og ör í hjarta Banda­ríkj­anna. Minn­ingar um hana lifa enn. Ekki aðeins á söfnum heldur ekki síður með ýmsum minn­is­vörðum víða um borg­ina, eins og við sáum glögg­lega í Bronx. Þar var stórt skilti við slökkvi­liðs­stöð­ina skammt frá dýra­garð­inum, þar sem minn­ingu þeirra 343 slökkvi­liðs­manna sem létu lífið í árás­unum var haldið á lofti.

Svo til enda­laust er hægt að telja upp ein­kenn­andi staði fyrir borg­ina sem nota má um hin und­ar­leg­ustu lýs­ing­ar­orð. Við vorum sam­mála um það feðgar, þegar túr­inn var búinn, að þetta væri svo­lítið magn­aður staður. Líklega yrði öðru­vísi að búa í borg­inni en í Rauða­læknum – þrátt fyrir að heim­þráin kæmi reglu­lega upp í hug­ann í amstri dags­ins – en alveg örugg­lega skemmti­legt flesta daga. Og epískt.

Frá Riverside Drive á hverjum degi

Lagt var upp í hverja ferð frá heim­ili okkar á Riverside Drive, skammt frá Columbia háskól­anum við 116. stræti, og þaðan haldið á vit ævin­týr­anna. Svo var komið heim seinni­part­inn og batt­erýin hlaðin. Við Heimir vorum stundum með hlaupa­hjól en oft­ast nær gang­andi. Lestin var stundum okkar helsta sam­göngu­tæki. Halldór Elí naut svo góðs af kerru þegar þess þurfti, ekki síst þegar hvíla þurfti lúin bein.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár