Vöxturinn í ferðaþjónustu heldur áfram - Stefnir í góða vetrarmánuði

Mikil aukn­ing hefur verið í ferða­þjón­ustu að und­an­förnu, einkum utan háanna­tím­ans á sumrin. Gistin­áttum í októ­ber fjölg­aði um 30 pró­sent milli ára.

Gistinætur á hót­elum í októ­ber voru 238 þús­und sem er 30 pró­sent aukn­ing miðað við októ­ber í fyrra, sam­kvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti á vef sínum 4. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Þetta er í takt við flestar spár um aukn­ingu umsvifa í ferða­þjón­ustu, en þær hafa gert ráð fyrir miklum og hröðum vexti, eða um 20 til 28 pró­sent fjölgun ferða­manna á þessu ári, og síðan áfram á næstu tveimur árum.

Fjölgun hjá útlendingum en fækkun hjá Íslendingum

Mikil fjölgun varð á gistin­óttum útlend­inga, en nóttum Íslend­inga fækk­aði að sama skapi. Gistinætur erlendra gesta voru 88 pró­sent af heild­ar­fjölda gistin­átta í mán­uð­inum en þeim fjölg­aði um 40 pró­sent frá sama tíma í fyrra á meðan gistin­óttum Íslend­inga fækk­aði um tólf pró­sent.

Eingöngu er átt við gistinætur á hót­elum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gisti­staða telj­ast hvorki gisti­heim­ili né hótel sem ein­göngu eru opin yfir sum­ar­tím­ann.

Flestar gistinætur á hót­elum í októ­ber voru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða tæp­lega 166 þús­und sem er 29 pró­sent aukn­ing miðað við októ­ber 2014. Næst flestar voru gistinætur á Suð­ur­landi eða um 34.400. Erlendir gestir með flestar gistinætur í októ­ber voru; Bretar með 44.300, Banda­ríkja­menn með 28.800 og Þjóð­verjar með 12.700 gistinætur.

Fjölgun um 20 prósent

Á tólf mán­aða tíma­bili nóv­em­ber 2014 til októ­ber 2015 voru gistinætur á hót­elum rúm­lega 2,7 millj­ónir sem er fjölgun um tutt­ugu pró­sent miðað við sama tíma­bil ári fyrr.

Grein­ing­ar­deild Arion banka spáir því að ferða­mönnum muni fjölga um 27,5 pró­sent í ár, miðað við árið í fyrra, og heild­ar­fjöldi verði rúm­lega 1,2 millj­ónir. Á næsta ári fjölgi þeim í 1,5 millj­ónir og á árunum 2017 og 2018, muni þeim fjölga um 500 þús­und og verða um tvær millj­ónir á árinu 2018.

Gríð­ar­lega mik­ill vöxtur hefur verið í ferða­þjón­ustu á síð­ustu árum. Fjölg­unin var 20,7 pró­sent árið 2013 miðað við árið á undan, 24,1 pró­sent árið 2014 og sam­kvæmt spá verður hún 27,5 pró­sent á þessu ári, eins og áður sagði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár