Áhætta tekin með því að hittast í sóttkví

Ertu í sótt­kví og langar mikið til að hitta aðra sem eru einnig í sótt­kví? Slíkir fundir eru ekki áhættu­lausir enda langt í frá allir sem eru í sótt­kví smit­aðir.

Nú skal gæta þess að halda að minnsta kosti tveggja metra fjarlægð frá öðrum á mannamótum.
Nú skal gæta þess að halda að minnsta kosti tveggja metra fjar­lægð frá öðrum á manna­mótum. Mynd: Shutterstock

Dæmi eru um það að fólk sem er í sótt­kví á sitt hvorum staðnum hitt­ist til að gera sér lífið bæri­legra. Að mati sótt­varn­ar­læknis er það í lagi í vissu til­fellum en hafa ber í huga að margir þeir sem eru í sótt­kví eru ekki sýktir af nýju kór­ónu­veirunni en aðrir sem sæta sótt­kví gætu mögu­lega veirð það.

„Hættan er sú að ef annar ein­stak­ling­ur­inn eða fleiri í þessum hópi veik­ist þá leng­ist sótt­kvíin hjá hinum um tvær vikur,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. „Það er sú áhætta sem menn taka með því að hitt­ast í sótt­kví. Það eru dæmi um að sótt­kvíin leng­ist upp í 3-4 vikur.“

[adspot]

Alma Möller land­læknir brýnir fyrir fólki að lesa vel þær leið­bein­ingar sem gerðar hafa verið fyrir þá sem eru í sótt­kví ann­ars vegar og ein­angrun hins vegar.

Í dag eru 3.718 manns í sótt­kví í heima­húsum á Íslandi, lang­flestir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Yfir 530 hafa lokið sótt­kví frá því að far­aldur COVID-19 braust út. Allir sem búsettir eru á Íslandi og eru að koma til lands­ins frá útlöndum þurfa nú að fara í sótt­kví. Ekki er ljóst hversu margir eru að koma með flugi til lands­ins þessa dag­ana. Upp­lýs­ing­arnar liggja ekki fyrir þar sem margir eru að afbóka flug­ferðir um þessar mundir, sagði Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn á upp­lýs­inga­fund­inum í dag.

[links]Sóttkví fyrir þau sem mögu­lega eru smituð og ein­angrun þeirra sem grein­ast er nauð­syn­leg til að hægja á útbreiðslu, segir m.a. á vefnum Covid.is þar sem nálg­ast má ýmsar upp­lýs­ingar.

Ef þú ert eldri borg­ari eða með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma er þér ráð­lagt að halda þig fjarri manna­mótum og fjölda­sam­komum. Forðastu einnig að umgang­ast fólk sem er með ein­kenni sem minna á flensu, segir í leið­bein­ingum land­læknis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár