Ríkisstjórnin var skammlífasta meirihlutastjórn lýðveldissögunnar

Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar var skamm­lífasta meiri­hluta­stjórn sem setið hefur á Íslandi síðan 1944.

Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar sat í 247 daga.
Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar sat í 247 daga. Mynd: stjornarrad.is

Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar er skamm­lífasta meiri­hluta­stjórn sem ríkt hefur á Íslandi síðan Lýð­veldið Ísland var stofnað árið 1944. Aðeins þrjár aðrar rík­is­stjórnir hafa setið skemur, en allar hafa verið minni­hluta­stjórnir.

Nýtt Íslands­met hefur þess vegna verið sett með atburðum dags­ins. Rík­is­stjórnin sat í 247 daga.

Síðan Ísland varð lýð­veldi árið 1944 hafa 18 ráðu­neyti verið mynduð með stuðn­ingi aðeins tveggja flokka. Ell­efu þess­ara ráðu­neyta hafa verið mynduð síðan 1991. Hér er rétt að taka fram að jafn­vel þó að rík­is­stjórnir á Íslandi séu skil­greindar og taldar eftir því hver fór með for­sæt­is­ráðu­neytið hverju sinni þá segir það ekki alla sög­una. Davíð Odds­son mynd­aði til dæmis fjórum sinnum ráðu­neyti, þrisvar með stuðn­ingi sömu flokka. Það fæst hugs­an­lega betri mynd ef litið er á fjölda rík­is­stjórn­ar­sam­starfa síðan 1991.

Fjöldi sam­starfs­flokka og líf­tími rík­is­stjórna Hér sést hversu margir flokkar mynd­uðu rík­is­stjórnir hér á landi síðan Lýð­veldið Ísland var stofnað árið 1944 og hversu lengi þær sátu.
Ráð­herra Dagar við völd Ár Stjórn­ar­myndun # flokkar
Ólafur Thors III 98 0,3 1949 1
Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir I 98 0,3 2009 2
Bene­dikt Grön­dal 116 0,3 1979 1
Bjarni Bene­dikts­son, jr. 247 0,7 2017 3
Sig­urður Ingi Jóhanns­son 280 0,8 2016 2
Emil Jóns­son 332 0,9 1958 1
Geir Haarde I 343 0,9 2006 2
Stein­grímur Her­mann­son II 347 1 1988 3
Jóhann Haf­stein 369 1 1970 2
Ólafur Jóhann­es­son II 409 1,1 1978 3
Þor­steinn Páls­son 448 1,2 1987 3
Davíð Odds­son IV 481 1,3 2003 2
Stein­grímur Her­mann­son III 597 1,6 1989 4
Geir Haarde II 619 1,7 2007 2
Hall­dór Ásgríms­son 638 1,7 2004 2
Ólafur Thors II 836 2,3 1944 3
Her­mann Jón­as­son 882 2,4 1956 3
Stefán Jóhann Stef­áns­son 1036 2,8 1947 3
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son 1050 2,9 2013 2
Ólafur Thors IV 1109 3 1953 2
Ólafur Jóhann­es­son I 1141 3,1 1971 3
Gunnar Thorodds­sen 1203 3,3 1980 3
Stein­grímur Stein­þórs­son 1277 3,5 1950 2
Davíð Odds­son I 1454 4 1991 2
Ólafur Thors V 1455 4 1959 2
Davíð Odds­son III 1456 4 1999 2
Geir Hall­gríms­son 1465 4 1974 2
Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir II 1474 4 2009 2
Davíð Odds­son II 1496 4,1 1995 2
Stein­grímur Her­mann­son I 1504 4,1 1983 2
Bjarni Bene­dikts­son 2430 6,7 1963 2

Ef við gefum okkur að rík­is­stjórn­ar­sam­starfi sé sjálf­krafa lokið við kosn­ingar þá hafa orðið til sjö meiri­hluta­sam­störf með tveimur flokkum síðan 1991. Davíð Odds­son var for­sæt­is­ráð­herra í rík­is­stjórnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins þrisvar sinnum sinnum frá 1995 til 2004 þegar hann gerð­ist utan­rík­is­ráð­herra og fól Hall­dóri Ásgríms­syni for­sæt­is­ráðu­neyt­ið. Hall­dór sat í 638 daga þar til hann hætti í stjórn­málum og Geir Haarde varð for­sæt­is­ráð­herra í 343 daga. Á kjör­tíma­bil­inu 2003 til 2007 sátu þess vegna þrjár rík­is­stjórnir með stuðn­ingi sömu flokka.

Rík­is­stjórn Bjarna mun hugs­an­lega sitja áfram sem starfs­stjórn fram að kosn­ingum. Það mun, í þessum sam­an­burði, lengja líf­tíma rík­is­stjórn­ar­innar um sex vikur eða svo. Það mun hins vegar ráð­ast í dag eða á næstu dögum hvernig stjórn lands­ins verður háttað fram að kosn­ingum.

Sé tekið til­lit til þess þá hefur líf­tími rík­is­stjórn­ar­sam­starfa síð­ustu 25 árin verið að með­al­tali 3,6 ár. Þar til árið 2007 var með­al­líf­tími sam­starf­anna 4,0 ár, eða jafn lengi og kjör­tíma­bil eru hér á landi. Hér eru tvö sam­störf sem draga með­al­talið nið­ur. Eftir aðeins 619 daga baðst annað ráðu­neyti Geirs Haarde lausnar og minni­hluta­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna tók við og sat fram að kosn­ingum í apríl árið 2009. Þessir sömu flokkar mynd­uðu svo meiri­hluta sem sat í fjögur ár. Þá var kjör­tíma­bilið sem hófst 2013 stytt um um það bil hálft ár eftir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hrökkl­að­ist frá völdum í apríl 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár