49 mál bíða samþykktar og 20 þingfundir eftir

49 stjórn­ar­frum­vörp bíða sam­þykktar á Alþingi, en 14 eru enn ekki komin inn til þings­ins. Búið er að sam­þykkja 36 stjórn­ar­frum­vörp á núver­andi þingi. Ólöf Nordal hefur lagt fram flest mál. Ekkert bólar á dag­setn­ingu fyrir kosn­ingar.

Alþingi hefur nú tuttugu almenna þingfundardaga til stefnu til að samþykkja 49 stjórnarfrumvörp sem bíða afgreiðslu.
Alþingi hefur nú tutt­ugu almenna þing­fund­ar­daga til stefnu til að sam­þykkja 49 stjórn­ar­frum­vörp sem bíða afgreiðslu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Níu þing­fund­ar­dagar eru eftir þar til þing fer í sum­ar­frí, að Eld­hús­deg­inum með­töldum. Þing kemur saman á ný í ágúst þar sem gert hefur verið ráð fyrir 13 þing­fund­ar­dögum, með öðrum Eld­hús­degi. Búist er við þing­frestun 2. sept­em­ber. Alls eru þetta þá 20 almennir þing­fund­ar­dagar sem ákveðið hefur verið að setja á dag­skrá þings­ins á þessu síð­asta kjör­tíma­bili fyrir kosn­ingar, sam­kvæmt nýend­ur­skoð­aðri starfs­á­ætlun þings­ins, og tveir Eld­hús­dagar. Enn er ekki komin dag­setn­ing á haust­kosn­ingar og ekki er vitað hvenær hún verður ákveðin. For­sæt­is­ráð­herra er sá eini sem hefur vald til þess að rjúfa þing og þarf til þess leyfi frá for­seta Íslands. Þingrof og stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður verða því eitt af fyrstu verk­efnum nýs for­seta.

Gert ráð fyrir sumarfundum

Starfs­á­ætlun þings­ins var end­ur­skoðuð í vik­unni vegna fyr­ir­hug­aðra kosn­inga. Gert er ráð fyrir sum­ar­fundum, en sam­kvæmt áætl­un­inni verður síð­asti þing­fundur vors­ins þann 2. júní og hefj­ast fundir svo á ný þann 15. ágúst. Vikuna eftir 2. júní taka við nefnd­ar­dagar og síðan fer þing í sum­ar­frí. Þingmenn mæta á ný til nefnda eftir sum­arið, dag­ana 10., 11. og 12. ágúst áður en þing­fundir fara aftur á dag­skrá.

[adspot]

LÍN, séreignasparnaður og Fæðingarorlofssjóður enn ekki komið

Samkvæmt þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar eru enn fjöl­mörg laga­frum­vörp sem enn eru ekki komin inn í þingið. Alls eru það 14 frum­vörp, frá öllum ráð­herrum, að sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra und­an­skildum. Öll hans mál eru komin til þings­ins.

  • For­sæt­is­ráð­herra (1): Breyt­ingar á stjórn­ar­skránni.
  • Félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra (3): Almanna­trygg­ingar, Íbúð­ar­lána­sjóður og Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóður.
  • Fjármála- og efna­hags­ráð­herra (4): Stöð­ug­leik­a­reikn­ingar, líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins og líf­eyr­is­sjóður hjúkr­un­ar­fræð­inga, skatt­frjáls úttekt á sér­eigna­sparn­aði kaup­enda íbúð­ar­hús­næðis og verð­trygg­ingu og bún­að­ar­gjald.
  • Inn­an­rík­is­ráð­herra (2): Lög­reglu­lög, með­ferð kvart­ana og kæru­mála vegna starfa lög­reglu, og umferð­ar­lög varð­andi gjald­töku á bíla­stæðum.
  • Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra (2): Heild­ar­lög um LÍN og lög um sam­komu­lag milli ríkis og sveit­ar­fé­laga um stuðn­ing við tón­list­ar­nám.
  • Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra (1): Timbur og timb­ur­vörur bíður einnig, sem og lög utan­rík­is­ráð­herra um þjóðar­ör­ygg­is­ráð.

Tíu mál ekki komin á dagskrá

Tíu stjórn­ar­frum­vörp eru komin inn, en bíða samt enn fyrstu umræðu, þar á meðal lög um Umhverf­is­stofnun, Menn­ing­arminjar, sigl­ingar og loft­ferðir. Ekkert af þessum tíu frum­vörpum er komið á dag­skrá, en áður­nefndu frum­varpi for­sæt­is­ráð­herra um menn­ing­arminjar var frestað. Þetta er eitt tveggja frum­varpa sem for­sæt­is­ráð­herra hefur lagt fram. Hitt var lög um notkun þjóð­fána Íslend­inga við mark­aðs­setn­ingu og hafa þau verið sam­þykkt.

Búið er að sam­þykkja 39 stjórn­ar­frum­vörp á þessu lög­gjaf­ar­þingi, meðal ann­ars almenn hegn­ing­ar­lög, lög um fjár­mála­fyr­ir­tæki, lög um hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög, nátt­úru­vernd­ar­lög, heild­ar­lög um opin­ber fjár­mál, lög um pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, lög um stöð­ug­leika­fram­lag, tekju­skjatt og fleiri skatta og gjöld.

Félagsíbúðir og gististaðir aftur í nefnd

36 mál rík­i­s­tjórn­ar­innar eru enn í nefnd eftir fyrstu umræðu. Þar á meðal eru lög um árs­reikn­inga, búvöru­lög, heild­ar­lög um fast­eigna­lán til neyt­enda, lög um fjár­mála­fyr­ir­tæki, húsa­leigu­lög, heild­ar­lög um hús­næð­is­bætur, lög um skatta og gjöld, lög um Sjúkra­trygg­ingar, lög um stað­göngu­mæðrun, lög um vexti og verð­trygg­ingu og lög um útlend­inga.

Eitt mál bíður ann­arrar umræðu á Alþingi og það eru lög um hand­töku og afhend­ingu manna til og frá Íslandi á grund­velli hand­töku­skip­unar.

Tvö frum­vörp eru nú í nefnd eftir aðra umræðu á Alþingi: Lög um almennar félags­í­búðir, frá Eygló Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, og lög um veit­inga­staði, gisti­staði og skemmt­ana­hald, frá Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra.

Ólöf hefur vinninginn

Séu öll mál skoðuð eftir ráð­herrum sést að Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra er með flest mál, 26, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, er með 20 og Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, er með ell­efu. Utan­ríki­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra, sem skipt­ast á milli Gunnars Braga Sveins­sonar og Lilju Alfreðs­dóttur, og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, eru með fæst mál, tvö á hvorn ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár