Kerfisbreytingin á íslenskum raforkumarkaði

Þvert á það sem margir halda hefur raf­orku­mark­að­ur­inn verið að breyt­ast að und­an­förnu.

Hefð­bundin við­horf til raf­orku­mála hafa verið að breyt­ast. Hér áður fyrr var það við­tekin skoðun að hið opin­bera hefði óhjá­kvæmi­lega lyk­il­hlut­verki að gegna á öllum sviðum þeirra vegna þess að mark­aðs­lausnir ættu þar ekki við, meðal ann­ars vegna einka­réttar í starf­semi af þessu tagi. Á síð­ustu árum hafa hins vegar verið þró­aðar aðferðir þar sem mark­aðs­öflum hefur verið beitt á þessu sviði, einkum í vinnslu og sölu raf­orku. Þessar aðferðir hafa í aðal­at­riðum reynst vel og er nú almennt talið að meiri árangur náist að jafn­aði í vinnslu og sölu þar sem sam­keppni ríkir en þar sem hefð­bund­inn einka­réttur er alls­ráð­andi.

Ofan­greindur texti er vel að merkja ekki eftir grein­ar­höf­und, heldur er þetta úr athuga­semdum með frum­varpi því sem varð að raf­orku­lögum nr. 65/2003. Í þess­ari grein er athygl­inni beint að því hvernig raf­orku­mark­að­ur­inn hér hefur verið að breyt­ast úr opin­berum og mjög stýrðum mark­aði yfir í frjáls­ari sam­keppn­is­markað. Og hvernig sú þróun er lík­leg til að halda áfram í átt að því sem hefur gerst á nor­rænum raf­orku­mark­aði. Enda ein­kenn­ist bæði gild­andi lög­gjöf, stefna Lands­nets og stefna Lands­virkj­unar (LV) af mark­miðum í þessa veru.

Þar með mun íslenskur raf­orku­mark­aður ekki aðeins fær­ast nær nor­ræna raf­orku­mód­el­inu, heldur um leið svipa sífellt meira til ýmissa ann­arra raf­orku­mark­aða í vest­an­verðri Evrópu. Þróunin mun m.a. að öllum lík­indum birt­ast í hækk­andi raf­orku­verði hér og auk­inni arð­semi í íslenska raf­orku­geir­anum. Um leið skapar þetta aðhald, þ.a. að bæði raf­orku­notkun og hag­kvæmni virkj­un­ar­kosta fái meira athygli en verið hefur, sem hvort tveggja mun halda aftur af verð­hækk­unum. Heild­ar­nið­ur­staðan ætti að verða aukin þjóð­hags­leg hag­kvæmni af nýt­ingu orku­auð­lind­anna.

Grundavallarbreyting á íslenskum raforkumarkaði

Það eru breyttir tímar á íslenskum raf­orku­mark­aði frá því sem var fyrir fáeinum árum. Laga­setn­ingin árið 2003 var þar mjög mik­il­væg, en það er ekki nema um ára­tugur síðan full sam­keppni var inn­leidd. Fram að þeim tíma hafði það verið meg­in­stef í íslenskri orku­stefnu að laða hingað stór­iðju með því að bjóða slíkum fyr­ir­tækjum raf­orku á mjög lágu verði (ásamt ýmsum öðrum íviln­unum). Þetta má kalla rík­is­styrkta stór­iðju­stefnu, þar sem lágt raf­orku­verð orku­fyr­ir­tækja í opin­berri eigu lék eitt af lyk­il­hlut­verk­unum.

Í dag er ekki lengur laga­lega mögu­legt að raf­orku­fyr­ir­tæki í opin­berri eigu bjóði rík­is­styrki í því formi að arð­semi virkj­ana verði undir því sem einka­fyr­ir­tæki hefðu geta boðið. Þetta hefur þrengt að gömlu stór­iðju­stefn­unni, en þó kannski fyrst og fremst fært hana til í hinu opin­bera kerfi. Stjórn­völd hér hafa haldið áfram að veita alls­konar íviln­anir til stór­iðju, en gera það ekki lengur í því formi sem kalla má und­ir­verð­lagða raf­orku. Í dag er það mik­il­vægur þáttur í stefnu rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins LV að reyna að tryggja sem bestan arð af nýt­ingu orku­auð­lind­anna. Það sjón­ar­mið er vafa­lítið ráð­andi hjá öðrum raf­orku­fyr­ir­tækjum hér, hvort sem þau eru í opin­berri eigu eða einka­fyr­ir­tæki.

Kerfisbreytingar má rekja til EES

Mikilvæg for­senda þeirrar þró­unar að gera raf­orku­fram­leiðslu hér ábata­sam­ari en verið hefur, er sem sagt sú kerf­is­breyt­ing sem varð á íslenskum orku­mark­aði vegna aðildar Íslands að Evrópska efna­hags­svæð­inu (EES), sbr. og áður­nefnd raf­orku­lög frá árinu 2003. Aðildin að EES hafði það í för með sér að raf­orku­mark­að­ur­inn þurfti að upp­fylla ákveðnar sam­keppn­is­reglur og opin­ber fyr­ir­tæki hafa ekki lengur frjálsar hendur til að selja raf­orku með svo lágri arð­semi að það sé skil­greint sem rík­is­styrkur.

Að vísu eru til ein­hver dæmi um nýleg raf­orku­verk­efni sem senni­leg munu skila frekar slakri arð­semi, sbr. einkum Þeista­reykja­verk­efnið vegna PCC (treg­lega gekk að sann­færa ESA um að raf­orku­samn­ing­ur­inn þar fæli ekki í sér rík­is­að­stoð). En almennt er nú lögð rík áhersla á að sér­hvert orku­verk­efni fyr­ir­tækja í opin­berri eigu skili við­un­andi arð­semi, enda er hið opin­bera að öðrum kosti að nið­ur­greiða raf­orku­verðið til við­kom­andi útvaldra við­skipta­vina. Í dag er slíkt almennt óheim­ilt, einkum vegna aðild­ar­innar að EES og vegna lög­gjafar sem sett hefur verið til að ná mark­miðum þeirrar aðildar.

Áhugaverðari tímar

Þó svo ennþá sé nokkuð í land með að með­al­verð á raf­orku til stór­iðju á Íslandi geti talist við­un­andi fyrir orku­fyr­ir­tækin hér, þá eru góðar líkur á að þetta verð fari hækk­andi. Og raf­orku­fram­leiðsla hér verði þar með ábata­sam­ari og nýt­ing á íslenskum orku­auð­lindum geti almennt farið að skila betri arð­semi. Í kjöl­far hins mik­il­væga orku­samn­ings LV og RTA/ÍSAL frá 2010 hefur smám saman kom­ist þarna meiri skriður á að auka arð­semi í raf­orku­söl­unni. Sam­keppn­is­rekstur á íslenskum raf­orku­mark­aði og aðgætni gegn offram­boði hefur skipt máli gagn­vart því að skapa þau skil­yrði að gera þennan markað áhuga­verð­ari fyrir bæði fjár­festa og lána­fyr­ir­tæki. Þar er um að ræða mikla breyt­ingu frá því sem áður var.

Norræna heildsöluverðið á raforku er orðið viðmiðun á Íslandi

Í dag eru ýmis mik­il­væg samn­inga­verk­efni framundan um end­ur­skoðun á raf­orku­verði við stór­iðju. Þar má bæði nefna samn­inga sem eru að renna út og samn­inga sem eru með end­ur­skoð­un­ar­á­kvæðum um raf­orku­verð. Þarna eru mik­il­vægar dag­setn­ingar framundan hjá LV vegna áranna 2019, 2023, 2024 og 2028. Við þetta bæt­ast svo samn­ingar ON og HS Orku; einkum samn­ing­arnir við Norðurál.

Í dag virð­ist lík­legt að leið­ar­ljósið í þeirri vinnu verðI að íslenski raf­orku­mark­að­ur­inn fær­ist nær þeim nor­ræna. Sú við­miðun kemur skýrt fram í nýjum samn­ingi LV og Norð­ur­áls sem gerður var á liðnu ári (2016). Og ekki ólík­legt að sams­konar við­miðun verði í nýjum samn­ingi LV og Elkem (nema Elkem sam­þykki lang­tíma­samn­ing þar sem yrði samið um fast en nokkuð hátt verð). Í þessu sam­bandi er áhuga­vert að for­stjóri LV gaf það nýverið sterk­lega til kynna að það sé einmitt mark­mið fyr­ir­tæk­is­ins að semja um verð­teng­ingu við nor­ræna mark­að­inn, þó svo fáir hafi álitið að það yrði mögu­legt fyrir LV að ná fram slíkri teng­ingu.

Skyndimarkaður með raforku fæli í sér ávinning

Með aukn­ingu slíkrar verð­teng­ingar við nor­ræna raf­orku­mark­að­inn yrði/ verður meira um skamm­tíma­samn­inga við stór­iðj­una. Almenni raf­orku­mark­að­ur­inn hér gæti líka þró­ast í átt að því sem ger­ist á nor­ræna mark­aðnum og þá eftir atvikum að hér verði komið á fót raf­orku­kaup­höll (spotmark­aði eða skyndi­mark­aði með raf­orku). Til­gang­ur­inn með slíkri kaup­höll er að mynda hér mark­aðs­torg fyrir raf­orku­við­skipti í heild­sölu með öruggum, áreið­an­legum og hag­kvæmum hætti og með sama aðgangi fyrir alla. Þar myndu bæði fram­leið­endur, sölu­fyr­ir­tæki og not­endur geta átt við­skipti með raf­orku og verð­mynd­unin yrði skilj­an­legri, eðli­legri og gegn­særri en nú er. Þar með yrði verð á raf­orkunni senni­lega eitt­hvað sveiflu­kennd­ara en er í dag, enda myndu marg­vís­legir þættir í fram­boði og eft­ir­spurn geta hreyft tals­vert við verð­inu.

Þjóð­hags­legur ávinn­ingur af slíkum mark­aði gæti orðið af ýmsu tagi líkt og lýst er í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands frá 2013. Slíkur mark­aður myndi m.a. auka vit­und um þau verð­mæti sem fel­ast í raf­orkunni og um leið myndi þetta fyr­ir­komu­lag ýta undir hag­kvæm­ari nýt­ingu á orku­auð­lind­unum. Í umræddri skýrslu HÍ kemur fram að slíkur mark­aður leiði til þess að hag­kvæm­ari kostir verði nýttir til raf­orku­vinnslu og ávinn­ingur sam­fé­lags­ins kæmi líka fram í því að núver­andi nýt­ing­ar­kostir og eignir yrðu nýttar betur. Í gögnum frá Lands­neti má sjá að fyr­ir­tækið álítur mik­il­vægt að finna leiðir sem auka virkni mark­aðsum­hverf­is­ins og hefur Landsnet unnið að því að und­ir­búa rekstur skyndi­mark­aðar svo verð­myndun raf­orkunnar hér geti orðið gegn­særri. Þeirri vinnu hefur að vísu miðað hægar en gert var ráð fyrir fyrir í upp­hafi, en vænt­an­lega kemst hún brátt aftur á skrið.

Verðmætaaukning möguleg

Í nýlegri skýrslu Copenhagen Economics var m.a. bent á að með því að raf­orku­verð á Íslandi end­ur­spegli verðið á nor­ræna raf­orku­mark­aðnum geti mynd­ast veru­leg verð­mæta­aukn­ing í íslensku sam­fé­lagi. Sá þjóð­hags­legi við­bót­ará­vinn­ingur er af Copenhagen Economics met­inn á bil­inu u.þ.b. 130-550 millj­ónir USD á ári hverju; sem sagt jafn­gildi hátt í 60 millj­arða ISK árlega. Þróist raf­orku­mark­að­ur­inn hér í átt að þeim nor­ræna eru því sann­ar­lega áhuga­verð tæki­færi framundan í raf­orku­fram­leiðslu á Íslandi.

Meiri upp­lýs­ingar um þróun raf­orku­verðs og -vinnslu á Íslandi má sjá á vef grein­ar­höf­undar á Medium.com.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár