Eins marks undur

Knatt­spyrna snýst um að skora. Þannig vinn­ast leikir. Sumir knatt­spyrnu­menn virð­ast hins vegar alls ekki geta fram­kvæmt þann verknað. Og verða fyrir vikið þekkt­astir fyrir það að skora aldrei, eða að minnsta kosti mjög sjaldan. Þeir eru eins marks undur.

Knatt­spyrnu­á­huga­menn elska óvæntar hetjur. Þótt hæfi­leika­mestu leik­menn­irnir, sem skora flest mörkin eða fram­kvæma snyrti­leg­ustu hreyf­ing­arnar, séu iðu­lega vin­sæl­astir á meðal þeirra þá hafa þeir til­hneig­ingu til að taka ást­fóstri við ólík­legar and­hetjur. Slíkar eru oft leik­menn sem ann­að­hvort hafa þjónað ein­stökum félögum af hunds­legri tryggð eða bæta upp fyrir auð­sjá­an­legt hæfi­leika­leysi með gríð­ar­legum vilja og krafti.

Einn hópur leik­manna sem verða oft dáðir og dýrk­aðir eru leik­menn sem skora aldrei. Eða mjög sjaldan. Þar er oft um að ræða leik­menn sem hafa spilað hund­ruði leikja án slíks árang­urs og jafn­vel án þess að eiga mörg skot á markið. Það getur verið nokkuð mögnuð upp­lifun að fara á leiki hjá liðum sem inni­halda leik­menn sem eru í þannig stöðu. Stuðn­ings­menn lið­anna, sér­stak­lega á Englandi, upp­veðr­ast í hvert sinn sem við­kom­andi fær bolt­ann og öskra hástöfum á þá að skjóta. Þúsundir stuðn­ings­manna mynda eitt stórt þrýsti­afl í nokkrar sek­úndur þegar þeir kyrja í sífellu „shoot...shoot...shoot“.

Ég var þar

John „Faxe“ Jensen var danskur miðju­maður sem vakti athygli snemma á tíunda ára­tugnum. Faxe spil­aði framan af með danska stór­lið­inu Bröndby, með stuttri en ekki sér­lega vel heppn­aðri við­komu hjá Hamburg í Þýska­landi. Þegar Danir komust óvænt í loka­keppni Evr­ópu­móts­ins í knatt­spyrnu 1992, eftir að Júgóslavíu var hent út vegna stríðs­á­stands­ins þar var í gerjun, var Faxe kall­aður til úr sum­ar­frí­inu sínu til að vera akk­erið á miðju liðs­ins. Það sem gerð­ist síðar þekkja flestir; litla Norð­ur­landa­þjóðin sem átti ekki að vera með kom, sá og sigr­aði keppn­ina. Í úrslita­leiknum, þar sem and­stæð­ing­arnir var knatt­spyrnu­legi ris­inn Þýska­land, vannst 2-0 sigur. Faxe, sem leit þá þeim tima út eins og Kenny Powers (úr hinum frá­bæru þáttum „Eastbound and down“) án kleinu­hrings­ins, skor­aði annað markið.

Líkt og alltaf eftir loka­keppni börð­ust stór­lið Evrópu um helstu hetjur þess. Faxe var klár­lega ein þeirra. Á end­anum hneppti Arsenal, þá undir stjórn hins „Mad Men“ –lega George Graham, hnossið. Hann naut ágætrar vel­gengni hjá Arsenal. Liðið vann bæði deild­ar­bik­ar­inn og FA-bik­ar­inn á fyrsta tíma­bil­inu hans og urðu Evr­ópu­meist­arar bik­ar­hafa árið eftir. Hans verður þó aldrei minnst vegna þeirra sigra. Faxe er eft­ir­minni­leg­astur fyrir að hafa aðeins náð að skora einu sinni fyrir liðið, þrátt fyrir að hafa spilað alls 132 leiki fyrir liðið. Slík töl­fræði er ekk­ert eins­dæmi, en hana er oft­ast að finna hjá varn­ar­mönnum. Faxe spil­aði á miðj­unni. Og það var ekki vegna skorts á til­raunum sem hann skor­aði ekki. Hann reyndi gríð­ar­lega mikið.

[adspot]

Markið ein­staka kom á gaml­árs­dag 1994, þegar Faxe hafði leikið 98 leiki í röð án þess að skora. Biðin hafði verið svo löng að Arsenal aðdá­endur höfðu löngu áður vanið sig á að kyrja söng á leikjum liðs­ins: „We´ll be there when Jensen scores“, eða við verðum þar þegar Jensen skorar.

And­stæð­ing­ur­inn Arsenal í leiknum var QPR og gest­irnir leiddu 1-0 þegar Faxe fékk bolt­ann vinstra megin í víta­teignum. Stuðn­ings­menn­irnir hófu strax að öskra „shoot“, sem hann gerði og bolt­inn söng í vinstra horn­inu. Allt varð vit­laust á gamla Highbury. Stuðn­ings­menn­irnir sungu „Johnny Jensen, Johnny Jensen“ lát­laust það sem eftir lifði kvölds. Það dugði ekki til og QPR vann leik­inn. Enginn man hins vegar eftir úrslit­unum í dag. Þeir sem á horfðu muna bara eftir eina mark­inu hans Faxe. Alla tíð síðan hafa selst bolir við heima­völl Arsenal sem á stendur „I saw John Jensen score“.

Faxe heldur því reyndar fram sjálfur að hann hafi skorað tvö mörk. Hitt markið var í víta­spyrnu­keppni í leik um Góð­gerð­ar­skjöld­inn, en mörk í slíkum keppnum telj­ast aldrei sem full­gild mörk í töl­fræði. Þess utan stóð stór­vinur og landi Faxe, Peter Schmeichel, í marki and­stæð­ing­anna. Lengi hafa verið sam­sær­is­kenn­ingar uppi að hann hafi séð aumur á vini sínum.

When Hibbo scores we riot

Tony Hibbert fædd­ist í Huyton hverf­inu á Merseyside. Hann er því bor­inn og barn­fæddur Liverpool-búi og spil­aði sem drengur í liðum með öðrum goð­sögnum á borð við Steven Gerrard, sem ólust upp í þessu harða hverfi. Þegar Hibbert, sem var alinn upp sem stuðn­ings­maður Everton, var tíu ára fékk hann samn­ing við upp­á­halds­liðið sitt. Eftir önnur tíu ár í ung­linga- og vara­lið­inu fékk hann loks tæki­færi á stóra svið­inu, með sínu liði.

Hibbert var lík­lega einn minnst „flair“ leik­maður sem spil­aði í efstu deild í Englandi. Hann var granít­harður hægri bak­vörður öðl­að­ist mikla virð­ingu fyrir að tækla menn upp í nára og gefa aldrei tommu eftir. Með til­komu bak­varða á borð við Roberto Carlos fór sókn­ar­hlut­verk bak­varða almennt að verða meira í knatt­spyrn­unni. Þegar leið á fyrsta ára­tug þess­arar aldar varð sú krafa æ almenn­ari að bak­verð­irnir væru eins og rennilásar upp og niður kant­inn. Að þeir legðu upp og skor­uðu mörk á öðrum end­anum en stöðv­uðu sömu gjörðir á hinum.

Þrátt fyrir mikla tækni­lega ann­marka elsk­uðu stuðn­ings­menn Everton Hibbert. Þar skiptir miklu að hann er heima­maður sem er alinn upp á sömu slóðum og við sam­bæri­legar aðstæður og þeir sem sitja í stúkunni á Goodison Park (sem þýð­ist alls ekki sem Gutta­garður). En önnur ástæða þess að hann var svona vin­sæll er, eins sér­kenni­lega og það hljómar, að hann skor­aði aldrei. Hibbert hafði raunar leikið 309 leiki í bún­ingi Everton án þess að skora þegar undur og stór­merki gerð­ust.

Stuðn­ings­menn Everton höfðu sett gríð­ar­legan þrýst­ing á Hibbert árum saman vegna marka­leysis hans. Alltaf þegar hann fékk bolt­ann, sama hvar hann er stað­settur á vell­inum, þá var öskrað á hann að skjóta. Þannig hafði þetta verið árum saman. Í sölu­básum fyrir utan heima­völl Everton höfðu líka verið seldir fánar og aðrir minja­gripir sem á stóð „When Hibbo scores we riot“. Þegar Hibbo skorar munum við fram­kvæma upp­þot.

Þann 8. ágúst 2012 var hald­inn ágóða­leikur fyrir Hibbert, líkt og tíðkast fyrir leik­menn sem hafa leikið í tíu ár fyrir sama liðið. And­stæð­ingur Everton voru gríska liðið AEK frá Aþenu og leik­ur­inn var liður í loka­und­ir­bún­ingi Everton fyrir nýtt tíma­bil í ensku úrvals­deild­inni. Í aðdrag­anda leiks­ins var mikið rætt um að það þyrfti að búa til aðstæður fyrir Hibbert til að skora. Hann mætti hins vegar sjálfur í við­töl og sagð­ist ekki taka í mál að fá gef­ins ein­hver mörk. Hann myndi til dæmis ekki taka víti undir neinum kring­um­stæðum. Leik­ur­inn var stór­við­burður í Liverpool. Hibbert er það sem kall­ast á slæmri íslensku cult-hetja þar í borg og stór­stjarnan Wayne Rooney, sem er upp­al­inn Everton-maður, bað um leyfi hjá Manchester United til að fá að leika í leiknum, en fékk ekki frí frá þátt­töku í sýn­inga­leik gegn Barcelona í Svíþjóð sem fór fram á sama tíma. Rooney var víst ekki ánægður með þá nið­ur­stöðu.

Á 53 mín­útu fékk Everton auka­spyrnu úti við vinstra horn víta­teigs and­stæð­ing­anna. Það kom alltaf aðeins einn maður til greina til að taka hana. Þegar Hibbert stillti sér upp hélt ger­vallt Everton-heims­þorpið, hvort sem íbú­arnir voru staddir á Goodison eða fylgd­ust með í gegnum tölvur eða sjón­vörp víðs­vegar um heim­inn, niðri í sér and­anum. Gæti þetta verið að fara að ger­ast.

Líkt og í lélegri Hollywood-ræmu gerð­ist auð­vitað það sem allir von­uð­ust til að myndi ger­ast. Hibbert hamr­aði bolt­ann neð­ar­lega í nær­hornið. Hibbert sjálfur vissi ekk­ert hvernig hann átti að haga sér, enda ákaf­lega óvanur því að skora en sam­herjar hans hentu sér sam­stundis á hann og áhorf­endur misstu sig í fölskvalausri gleði. Þeir gerðu raunar betur en það og stóðu við stóðu orðin: þegar Hibbo skorar fram­kvæmum við upp­þot. Hundruð Everton-áhan­genda þustu inn á völl­inn til að fagna and­hetj­unni sinni. Stöðva þurfti leik­inn í nokkrar mín­útur á meðan að völl­ur­inn var rýmdur. Það hlýtur að vera eins­dæmi að það eigi sér stað inn­rás á völl hjá svona stóru liði í leik á und­ir­bún­ings­tíma­bil­inu. Við­brögðin sýndu hins vegar hvað markið skipti stuðn­ings­menn­ina og Hibbert miklu máli. Þau sýndu tær­ustu feg­urð knatt­spyrn­unnar. Og voru ógleym­an­leg.

Hibbert var lát­inn fara frá Everton eftir að samn­ingur hans rann út sum­arið 2016. Hann komst að því þegar um málið var til­kynnt á heima­síðu félags­ins, og var ekki ánægður með aðferð­ar­fræð­ina sem notuð var til að klippa hann frá félag­inu sem hann hafði gefið allt í ára­tugi. En það duld­ist þó engum að tími hans sem leik­manns á stóra svið­inu var lið­inn. Og kannski var hann þar allan tím­ann án þess að eiga neitt til­kall til þess.

Hibbert tók fram skónna að nýju um síð­ustu helgi. Þá lék hann með áhuga­manna­lið­inu The Hares FC frá Skel­mers­dale í sunnu­dags­deild­inni. Liðið hafði verið á mik­illi sig­ur­göngu og unnið níu leiki í röð, þegar kom að því að Hibbert spil­aði sinn fyrsta leik. Hann end­aði með tapi. Og ofan á allt þá tók Hibbert víti, sem hann brendi af. Honum virð­ist bein­línis ómögu­legt að skora, sama hverjar aðstæð­urnar eða gæðin eru.

Ofbeldismaðurinn Francis Benali

Francis Benali fædd­ist í Southampton og var fasta­gestur á The Dell, goð­sagn­ar­kenndum fyrrum heima­velli þess sögu­fræga liðs. Hann skrif­aði undir samn­ing við liðið í júlí 1985 á sama tíma og annar sögu­legur risi, latasta tía mann­kyns­sög­unnar, Matt Le Tissier. Benali var upp­haf­lega fram­herji, eins ótrú­lega og það hljómar. Hann var þó fljótt færður í vörn­ina þar sem hann lék 311 leiki fyrir Southampton. Þeir hefðu verið fleiri ef hann hefði ekki safnað spjöldum eins og Tommy Lee hjá­svæfum. Alls var Benali rek­inn út af ell­efu sinnum á ferl­inum. Margir vildu meina að hann væri miklu meiri ofbeld­is­hrotti en fót­bolta­leik­maður.

Benali skor­aði ein­ungis eitt mark í keppn­is­leik fyrir Southampton. Það kom 13. des­em­ber 1997 gegn Leicester. Alda­vinur hans Le Tissier gaf þá fyrir á auka­spyrnu og eng­inn and­stæð­ing­anna hafði neitt fyrir því að dekka Benali, sem var svo sem ekk­ert óeðli­legt. Líkurnar á að hann myndi skora voru sára­litlar. Benali stang­aði bolt­ann hins vegar inn og The Dell hrein­lega sprakk af gleði.

Benali náði reyndar að skora eitt annað mark, í ágóða­leik sem spil­aður var honum til heið­urs þetta sama ár. Það sýnir vel hversu mik­ils met­inn hann var af stuðn­ings­mönnum Southampton að það seld­ist upp á leik­inn. Áhorf­endur fengu það sem þeir vildu þegar Benali negldi bolt­ann inn með skoti langt utan af velli.

Frægasti lánsmarkmaður heims

Jimmy Glass er ekki fræg­asta nafnið í bolt­anum. Hann var svo­kall­aður far­ands­mark­maður sem náði að vera í hóp hjá 16 mis­mun­andi liðum á ferli sínum og spila fyrir tólf þeirra. Vert er að taka fram að flest þess­ara liða voru neðri- eða utandeild­ar­lið.

Glass er hins vegar sann­kölluð cult-hetja í hugum stuðn­ings­manna Carlisle United. Árið 1999 kom hann þangað að lán frá Swindon Town. Í loka­leik tíma­bils­ins þurfti liðið að vinna til að forð­ast fall úr ensku deild­ar­keppn­inni og niður í utandeild­ina. Þegar tíu sek­úndur voru eftir af venju­legum leik­tíma var staðan 1-1 og Carlisle átti horn. Í örvænt­ing­ar­fullri loka­til­raun til að skora fóru allir leik­menn liðs­ins inn í víta­teig and­stæð­ing­anna til að reyna að skora, og þar á meðal mark­vörð­ur­inn Glass, sem var að leika aðeins sinn þriðja leik fyrir liðið. Og auð­vitað skor­aði hann markið sem hélt Carlisle uppi. Stuðn­ings­menn þustu inn á völl­inn og fölskva­laus alsælan lak af and­litum þeirra.

Saga Glass fór sem eldur um sinu um heims­fjöl­miðl­anna. Saga algjör­lega óþekkta láns­mark­manns­ins sem skor­aði mark á síð­ustu sek­úndu síð­asta leiks tíma­bils­ins og bjarg­aði vinnu­veit­endum sínum frá falli er enda per­sónu­leg hetju­saga sem allir elska að heyra. Glass hætti í knatt­spyrnu árið 2001, þá ein­ungis 27 ára gam­all. Hann seldi um tíma tölvu­búnað en hefur und­an­farin ár keyrt leigu­bíl og á í dag sína eigin leigu­bíla­stöð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár