Samfylkingin vill banna Bjarna að selja hlut ríkisins í bönkunum

Sam­fylk­ingin segir það óeðli­legt að núver­andi stjórn­völd geti selt hluti rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. For­svars­menn rík­is­stjórn­ar­innar hafa sagt að það standi ekki til.

Þingmenn Sam­fylk­ing­ar­innar hafa lagt fram frum­varp á Alþingi um tíma­bundið bann við sölu á eign­ar­hlutum rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Frum­varpið gerir ráð fyrir því að ráð­herra sé óheim­ilt að selja eign­ar­hluti rík­is­ins þangað til 1. nóv­em­ber næst­kom­andi.

Ráð­herr­ann sem um ræðir er fjár­mála­ráð­herr­ann Bjarni Bene­dikts­son.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu kemur fram að því sé ætlað að bregð­ast við því „for­dæma­lausa ástandi sem upp er komið í íslenskum stjórn­málum.“ Staða rík­is­stjórn­ar­innar sé mjög ótrygg og megi líkja núver­andi rík­is­stjórn við starfs­stjórn sem sé ætlað að sitja fram­yfir kosn­ingar. „Ekki er því eðli­legt að sú rík­is­stjórn sem nú situr geti tekið afdrifa­ríkar og stefnu­mark­andi ákvarð­anir á þeim fáu mán­uðum sem eftir eru af starfs­tíma hennar. Slíkar ákvarð­anir ber að bíða með að taka fram yfir næstu kosn­ingar þar sem stjórn­mála­menn munu fá nýtt umboð frá kjós­endum til góðra verka.“

Bjarni Bene­dikts­son sagði í þing­inu í síð­ustu viku að ekki standi til að selja banka fyrir kosn­ingar. Þetta sagði hann í svari við fyr­ir­spurn frá Helga Hrafni Gunn­ars­syni, þing­manni Pírata. „Það stendur ekki til að selja banka fyrir kosn­ingar eins og hátt­virtur þing­maður virð­ist telja. Það er ein­fald­lega rangt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár