Ekki víst hvort Sigurður Einarsson verði sviptur orðunni

Ekki er enn víst hvort Sigurður Einarson, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings banka, verði sviptur ridd­ara­kross­inum sem Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti, sæmdi hann á nýárs­dag 2007. Í febr­úar sagði for­maður orðu­nefndar nefnd­inni skylt að fara yfir málið og hefur nefndin fundað nokkrum sinnum síðan.

Sigurður var sæmdur heið­urs­merki fálka­orð­unnar „fyrir for­ystu í útrás íslenskrar fjár­mála­starf­semi“ eins og segir í umsögn á vef Stjórn­ar­tíð­inda. Í febr­úar var Sigurður svo dæmdur í Hæsta­rétti til fjög­urra ára fang­els­is­vistar fyrir mark­aðs­mis­notkun í hinu svo­kall­aða Al-Thani-máli ásamt þremur öðrum.

„Það er ekk­ert af þessu máli að frétta á þessu stigi,“ sagði Guðni Ágústs­son, for­maður orðu­nefndar, þegar hann var inntur eftir svörum um hvort nefndin hefði fjallað um mál Sigurðar Ein­ars­sonar. Þjóðin fengi að vita nið­ur­stöð­una þegar hún hefði verið tekin, eins og van­inn er með ákvarð­anir orðu­nefndar.

[caption id="attachment_20356" align="alignnone" width="1000"] Sigurður Ein­ars­son (fjórði frá hægri) hlaut ridd­ara­kross hinnar íslensku fálka­orðu á nýárs­dag 2007.[/caption]

Á vef RÚV var haft eftir Guðna eftir að dóm­ur­inn í Hæsta­rétti féll að orðu­nefnd væri skylt að fara yfir málið. Fundur verði hald­inn eftir mán­að­ar­mótin febr­úar og mars og þá kannað hvort mál af þessum toga hafi komið upp áður og hvernig hafi verið brugð­ist við.

Orðu­nefnd hefur fundað síðan þá en ekki liggur fyrir nið­ur­staða í mál­inu. Í lögum um heið­urs­merki fálka­orð­unnar segir að stór­meist­ari, það er for­set­inn, geti svipt mann orð­unni ef sá hefur „gerst sekur um mis­ferli“. Orðu­nefnd ræður mál­efnum fálka­orð­unnar og leggur for­set­anum til nöfn og umsókn um hver skuli fá að bera orð­una. Allir geta fengið að bera orð­una hafi þeir unnið „vel unnin störf í þágu íslensku þjóð­ar­innar eða á alþjóða­vett­vangi“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár