Eftirlegukindur Árneshrepps

Á Ströndum hjálpast allir að við smala­mennskuna. Fé er enn á fjórum bæjum. Þótt kindum hafi fækkað er leitar­svæðið enn jafnstórt. Þangað flykkist því fólk alls staðar að í leitir. Þeirra á meðal er fyrr­verandi Íslands­methafi í 100 kílómetra hlaupi.

Það er enn myrkur þegar fólk fer á fætur í Finnboga­staða­skóla í Trékyllisvík í Árnes­hreppi á Ströndum kaldan laugardags­morgun seint í september og gerir sig klárt í göngur og seinni réttir.

Skólinn, sem gekk nýlega í endurnýjun lífdaga þegar piltur og stúlka hófu þar skóla­göngu eftir nokkur tómleg ár, er aftur orðinn fullur af lífi. Virka daga á milli rétta hefur staðar­haldarinn og leið­beinandinn Sigrún Sverris­dóttir boðið öllum sínum gestum á grunn­skólaaldri að taka þátt í skóla­starfinu. „Mest voru fimm aðkomu­krakkar hér í vikunni. Sjö nemendur í allt. Það er jafnmargt og var í skólanum árið 2016, áður en snar­fækkaði,“ segir Davíð Már Bjarnason.

Sigrún, kona hans, rekur skólann auk þess sem þau hjónin tóku við búskap í Litlu-Ávík þegar þau fluttu í sveitina með Viktoríu, dóttur sinni, fyrir fáum árum.

Heima­sætanViktoría Dav­íðs­dóttir gerir sig klára fyrir smala­mennsku dags­ins.
…
Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár