Ragnar Þór hvorki skráður sem sakborningur né vitni í tengslum við meintan veiðiþjófnað

Lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­landi hefur stað­fest að for­maður VR sé hvorki skráður sem sak­born­ingur né vitni í tengslum við mein­tan veiði­þjófnað í Holtsá. Lögmaður Ragnars Þórs krefst þess að frétt Frétta­blaðs­ins verði dregin til baka og hann beð­inn afsök­unar.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­landi stað­festir, í bréfi sem Kjarninn hefur undir höndum, að sam­kvæmt gögnum máls er varðar mein­tan veiði­þjófn­aðar og/eða ólög­lega neta­veiði í Holtsá sé Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, hvorki skráður sem sak­born­ingur né vitni í tengslum við þetta mál.

Frétta­blaðið birti í morgun frétt á for­síðu blaðs­ins þar sem fram kemur að lögð hafi verið fram kæra vegna veiði­þjófn­aðar á landi Seðla­bank­ans og að Ragnar Þór hafi verið í hópi þeirra sem var stað­inn að ólög­legu neta­lögn­inni.

Þess krafist að fréttin verði dregin til baka og Ragnar Þór beðinn afsökunar

Lögmaður Ragnars Þórs hefur enn fremur sent bréf til fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins Torgs ehf., Jóns Þór­is­sonar, rit­stjóra Frétta­blaðs­ins, Þor­bjargar Mar­in­ós­dóttur, rit­stjóra DV, og Þor­steins Friðriks Hall­dórs­sonar blaða­manns þar sem þess er kraf­ist að frétt Frétta­blaðs­ins verði dregin til baka og Ragnar Þór beð­inn afsök­unar.

„Í frétt­inni kemur m.a. fram að veiði­þjófn­aður á landi Seðla­banka Íslands á Suð­ur­landi hafi verið kærður til lög­reglu fyrr í vetur og að sam­kvæmt heim­ildum Frétta­blaðs­ins hafi Ragnar Þór verið í hópi þriggja manna sem stað­inn var að ólög­legri neta­lögn. Í frétt­inni kemur einnig fram að Lög­reglan á Suð­ur­landi stað­festi að kæra hafi borist emb­ætt­inu vegna ólög­legrar neta­lagnar í Holtsá sem fellur í Skaftá, þann 24. októ­ber sl. Þá segir í frétt­inni að rann­sókn máls­ins sé lokið og ákvörðun um ákæru sé nú í höndum ákæru­sviðs,“ segir í bréf­inu.

[links]Þá kemur fram að Ragnar Þór sé rang­lega bendl­aður við málið í umfjöll­un­inni. „Með frétt­inni hefur fjöl­mið­ill­inn brotið gegn frum­skyldu sinni sem mælt er fyrir um í siða­reglum blaða­manna um að blaða­menn skuli vanda upp­lýs­inga­öflun sína, úrvinnslu og fram­setn­ingu eins og kostur er. Einnig ákvæði fjöl­miðla­laga um að fjöl­mið­ill gæti að því að upp­fylla kröfur um hlut­lægni og nákvæmni í frétta­flutn­ingi, sbr. t.d. 26. gr. lag­anna.“

Þess er kraf­ist að allir miðlar Torgs ehf. fjar­lægi fram­an­greindar umfjall­anir, leið­rétti og dragi til baka fréttir sínar um að Ragnar Þór hafi verið stað­inn að hinni ólög­legri neta­lögn og birti slíka leið­rétt­ingu með sama hætti og hinar röngu fréttir voru birtar.

Þess er jafn­framt kraf­ist að umfjall­anir verði fjar­lægðar taf­ar­laust og að leið­rétt­ing birt­ist á vef­miðlum í dag, 16. febr­úar 2021, og í prent­aðri útgáfu Frétta­blaðs­ins á morgun, 17. febr­úar 2021. Jafn­framt er þess kraf­ist Ragnar Þór verði beð­inn afsök­unar á umfjöll­un­inni.

Í bréfi lög­manns­ins segir að verði ekki orðið við fram­an­greindum kröfum muni Ragnar Þór neyð­ast til þess að láta reyna á fram­an­greind ákvæði um skyldur blaða­manna og fjöl­miðla.

Ragnar Þór sagði í sam­tali við Kjarnann í morgun að frétta­flutn­ing­ur­inn hefði verið „sjokker­andi“. Þó teldi hann að flestir sæju í gegnum þetta. „Það verður allt gert til að bola mér út úr þessu emb­ætti. Ég held að þetta sé bara byrj­unin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár