„Það verður allt gert til að bola mér út úr þessu embætti“

Formaður VR segir að lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­landi hafi stað­fest að hann sé hvorki skráður sem sak­born­ingur né vitni í tengslum við veiði­þjófnað. Frétta­flutn­ingur Frétta­blaðs­ins sé „sjokker­andi“.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég held að flestir sjái nú í gegnum þetta en þetta er sá veru­leiki sem við búum við. Það verður allt gert til að bola mér út úr þessu emb­ætti. Ég held að þetta sé bara byrj­unin.“

Þetta segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, í sam­tali við Kjarnann þegar hann er inntur eftir við­brögðum við frétt á for­síðu Frétta­blaðs­ins í morgun þar sem fram kemur að lögð hafi verið fram kæra vegna veiði­þjófn­aðar á landi Seðla­bank­ans og að hann hafi verið í hópi þeirra sem var stað­inn að ólög­legu neta­lögn­inni.

Ragnar segir í sam­tali við Kjarnann að hann hafi verið gest­kom­andi á svæð­inu og að ein­hver annar hafi verið búinn að leggja þessi net sem um ræðir. „Frétta­blaðið hefði getað fengið það stað­fest hverjir lögðu netin ef þeir hefðu hringt í land­eig­and­ann. Deil­urnar virð­ast snú­ast um hvað má og hvað má ekki á svæð­inu og þá er það vænt­an­lega land­eig­and­ans að svara fyrir það, sem ber ábyrgð á þessu neti. Hann er sá eini sem getur svarað fyrir það. Ég lagði ekki þessi net og þar af leið­andi get ég ekki verið máls­að­ili.“

Segist hann sömu­leiðis hafa fengið yfir­lýs­ingu frá lög­reglu­stjór­anum á Suð­ur­landi þar sem stað­fest sé að hann sé hvorki skráður sem sak­born­ingur né vitni í tengslum við málið.

Fréttaflutningur ekki tilviljun

Varðandi frétta­flutn­ing­inn sjálfan segir Ragnar Þór hann vera „sjokker­andi“.

„Að slá svona máli upp á for­síðu þegar ég er með sms sem ég sendi á frétta­mann­inn sem hringir í mig vegna frétt­ar­innar þar sem ég bendi honum á að tala við land­ar­eig­and­ann til að fá úr því skorið hver lagði netin. Það virð­ist algjör­lega hafa verið hunsað og sömu­leiðis því slegið fram eins og það sé kæra á hendur mér fyrir þjófnað.“

Ragnar Þór telur að frétta­flutn­ing­ur­inn sé ekki til­viljun. „Það eru kosn­ingar framundan í VR og hefur eig­andi Frétta­blaðs­ins og Torgs, Helgi Magn­ús­son fjár­festir, haft horn í síðu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. Honum var bolað út úr stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna meðal ann­ars af verka­lýðs­hreyf­ing­unni fyrir það að vera aug­ljós­lega báðum megin borðs sem fjár­festir og tak­andi ákvarð­anir um fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóðs­ins. Sko, án þess að vera með ein­hverjar sam­sær­is­kenn­ingar þá óneit­an­lega læð­ist að manni sá grunur að tíma­setn­ingin sé alveg sér­stök. Sér­stak­lega vegna þess að þarna er verið að vísa í mál sem gerð­ist síð­ast­liðið haust þar sem ég var gest­kom­andi á Holti ásamt mörgum fleirum.“

Helga Guðrún Jón­as­dóttir bauð sig fram til emb­ættis for­manns VR gegn Ragnari Þór í byrjun febr­úar. Alls­herj­ar­at­kvæða­greiðsla í félag­inu hefst þann 8. mars næst­kom­andi og lýkur á hádegi þann 12. mars.

Ragnar Þór segir að lög­menn hans séu komnir í málið. „Það eru ekki nema ein­hverjir klukku­tímar síðan þessu var slegið upp á for­síðu Frétta­blaðs­ins en það er alveg ljóst að við verðum að svara þessu,“ segir hann og bætir því við að ekki hafi verið tekið ákvörðun um fram­haldið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár