Viðskiptavinum í sjónvarpsáskrift hjá 365 hefur fækkað töluvert

Innkoma erlendra efn­isveitna á íslenskan sjón­varps­markað og hröð fram­þróun í tækni og neyslu afþrey­ing­ar­efnis hefur gert það að verkum að mun færri heim­ili kaupa áskrift að Stöð 2 og öðrum sjón­varps­stöðvum 365 en gerðu það fyrir tveimur árum.

Sjónvarpsneysla hefur breyst gríðarlega hratt á síðustu misserum og gert samkeppnisstöðu hefðbundinna áskriftastöðva mun erfiðari.
Sjón­varps­neysla hefur breyst gríð­ar­lega hratt á síð­ustu miss­erum og gert sam­keppn­is­stöðu hefð­bund­inna áskrifta­stöðva mun erf­ið­ari. Mynd: Úr safni

Netflix er sú sjón­varps­veita sem er með flesta áskrif­endur á Íslandi á sjón­varps­mark­aði. Alls eru áskrif­endur að veit­unni 54.120 og mark­aðs­hlut­deild hennar er 40 pró­sent. Stærstu íslensku einka­reknu áskrift­ar­stöðv­arnar, sjón­varps­stöðvar 365 og Sjónvarp Símans Premium, eru sam­an­lagt með 47 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í áskrift­ar­sjón­varpi þegar ekki er tekið til­lit til RÚV, sem allir lands­menn eru skyldugir til að vera með áskrift að. Þetta kemur fram í sam­runa­skrá vegna fyr­ir­hug­aðs sam­runa Fjar­skipta og 365 miðla sem skilað var til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins 27. apríl síð­ast­lið­inn.

Þar segir að staða 365 miðla, sem á og rekur Stöð 2 og tengdar sjón­varps­stöðvar, hafi veikst á und­an­förnum árum. Þó nokkur fækkun hafi orðið á við­skipta­vinum fyr­ir­tæk­is­ins. Í sam­runa­skránni segir: „Staða 365 hefur þannig veikst, á sama tíma og keppi­nautar hafa styrkt stöðu sína. Þannig hefur tölu­verð fækkun orðið á fjölda heim­ila/kennitalna sem eru í við­skiptum hjá 365 á sl. tveimur árum[...]Þessi fækkun í fjölda við­skipta­vina hefur átt sér stað þrátt fyrir að 365 hafi leit­ast við að svara kalli neyt­enda um nýjar áskrift­ar­leiðir, og boðið upp á Maraþon Now, sem gerir við­skipta­vinum kleift að ger­ast áskrif­endur að heilum þátta­röðum, líkt og Netflix býður upp á.“ Alls eru 35.666 áskrif­endur að sjón­varps­þjón­ustu hjá 365 miðlum sam­kvæmt upp­gefnum upp­lýs­ingum og mark­aðs­hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins á þeim mark­aði 26 pró­sent.

Samkvæmt töflu sem er birt í skjal­inu er mark­aðs­hlut­deild Netflix 40 pró­sent á áskrift­ar­mark­aði. Alls eru 54.120 Íslend­ingar áskrif­endur að veit­unni þrátt fyrir að hún hafi fyrst opnað fyrir þjón­ustu fyrir íslenskar IP-tölur í byrjun árs 2016. Ástæðan er auð­vitað sú að áskrift að Netflix kostar rúm­lega eitt þús­und krónur á mán­uði. Ódýrasti pakk­inn hjá 365 sem inni­heldur Stöð 2 kostar hins vegar 9.990 krónur og sá dýr­asti 22.990 krónur á mán­uði.

Samkvæmt sam­runa­skránni er Sjón­varps Símans Premium með um 28 þús­und áskrif­endur, en sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans hefur sú tala hækkað á und­an­förnum mán­uðum og er nú yfir 30 þús­und.

Í skjal­inu er einnig greint frá því að Vodafone Play sé með um níu þús­und áskrif­endur og sjö pró­sent mark­aðs­hlut­deild og að rúm­lega fimm þús­und manns séu með áskrift af bresku sjón­varps­stöð­inni Sky hér­lendis.

Sé litið til tekna við mat á mark­aðs­hlut­deild þá hefur vöxtur Netflix og Símans haft mikil áhrif á tekjur 365 miðla vegna sjón­varps­á­skrift­ar­sölu. Í skjal­inu segir að hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins á þeim tekju­mark­aði hafi dreg­ist saman úr 38,5 pró­sent í febr­úar 2014 í 30-35 pró­sent. Reiknað er með að íslenskir neyt­endur séu að greiða 56,3 millj­ónir á mán­uði, og þar með 675 millj­ónir á ári, fyrir aðgang að erlendum efn­isveitum á borð við Netflix, Hulu og Amazon. Til við­bótar sé greitt um 483 millj­ónir fyrir Sky.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár