Flýja alræði Pútíns

Hættulegt er að vera stjórnar­andstæðingur í Rússlandi. Lög á lög ofan til höfuðs mann­réttindum. Risi á brauð­fótum.

Ég hef fengið svo margar hótanir í gegnum fésbókina og netið að ég veit ekki hvort þær eru allar í alvöru eða ekki. Ég hef birt þetta allt. En ástandið er þannig núna að allir þeir sem segja eitthvað á móti Pútín og stefnu hans, eru í hættu.“ 

Þetta segir Zhanna Nemtsova, dóttir stjórnar­andstæðingsins Boris Nemtsov, sem var skotinn til bana í miðborg Moskvu í lok febrúar á þessu ári. Hann var einn virtasti stjórn­málamaður Rússlands og leiðtogi Lýðræðis­flokks Rússlands.

Zhanna Nemtsova er farin frá Rússlandi, í sjálf­skipaða útlegð, til að bjarga eigin skinni. Lögfræðingur hennar tilkynnti þetta fyrir skömmu. Í viðtali sem frétta­ritari sænska ríkis­útvarpsins átti við hana fyrir skömmu vildi hún ekki gefa upp hvar hún væri stödd. Hún er því í felum. Fleiri félagar í Lýðræðis­flokknum hafa orðið fyrir ofsóknum eftir morðið á Boris Nemtsov, leitað hefur verið á heimilum þeirra án ástæðu, vegabréf þeirra verið gerð upptæk og þessu hafa fylgt allskyns hótanir. Þeir sem hafa framkvæmt þetta hafa yfirleitt verið óþekkjanlegir, verið með lambhús­hettu á höfði.

Eins og áróðursvél nasista

Flokks­menn og fylgis­menn Boris Nemtsov hafa staðið vaktina dag og nótt á þeirri brú í miðborg Moskvu, hvaðan sést til Kremlar, miðpunkts valdsins í Rússlandi. En þangað hafa einnig komið í skjóli myrkurs, grímu­klæddir menn og hent og rifið blóm sem fylgis­menn Nemtsov hafa komið með. Ljós­myndir eru rifnar og hlutir á borð við ljósker eyði­lagðir. Hótunum hefur 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár