Norður-Kórea vill ekki semja um kjarnorkuáætlunina

Stjórn­völd í Norður-Kóreu hafa engan áhuga á að hefja sam­ræður við alþjóða­sam­fé­lagið um kjarn­orku­á­ætlun sína, líkt og Íran hefur gert. Liður í því yrði að alþýðu­lýð­veldið á Kóreu­skaga gæfi upp hversu öfl­ugt kjarn­orku­vígi það hefur.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyti Norður-Kóreu í dag. Þar segir einnig að kjarn­orku­á­ætl­unin sé mik­il­vægt mót­vægi gegn utan­rík­i­s­tefnu Banda­ríkj­anna, sem stjórn­völd í Norður-Kóreu telja fjand­sam­lega. Frá þessu er meðal ann­ars greint á vef Reuters.

Banda­ríkin, Kína, Rússland, Bretland, Þýska­land og Frakk­land, auk Evr­ópu­sam­bands­ins, gerðu á dög­unum sam­komu­lag við Íran um kjarn­orku, sem á að koma í veg fyrir að Íranir geti þróað kjarn­orku­vopn. Í skiptum fyrir það verður efna­hags­þving­unum gegn Íran létt á næstu árum.

„Það er ekki rök­rétt að bera saman aðstæður okkar og íranska kjarn­orku­sam­komu­lagið því við þurfum að búa við stans­lausar hót­anir og fjand­sam­legar aðgerðir Banda­ríkja­hers, meðal ann­ars risa­vaxnar her­æf­ingar og yfir­vof­andi kjarn­orku­árásir,“ segir í yfir­lýs­ingu Norður-Kóreu sem var flutt af rík­is­miðlum, en eignuð tals­manni utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Jafn­framt segir í yfir­lýs­ing­unni: „Við höfum engan áhuga á að frysta eða gefa kjarn­orku­sprengj­urnar okkar ein­hliða.“ Þá full­yrða stjórn­völd í Norður-Kóreu að þau séu kjarn­orku­veldi og að „kjarn­orku­veldi fylgja sínum eigin hags­munum“.

Óvissa um getu Norður-Kóreu


[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Norður-kóreskt flug­skeyti sent á loft í til­rauna­skyni.[/caption]

Síðan 2003 hefur Norður-Kórea ekki verið hluti af sam­komu­lagi alþjóða­sam­fé­lags­ins um að fjölga ekki kjarn­orku­vopnum í heim­inum. Árið 2009 full­yrtu stjórn­völd þar að þeim hafi tek­ist að þróa og fram­leiða kjarn­orku­vopn. Alþjóða­kjarn­orku­mála­stofn­unin og for­stjóri hennar, Mohamed El Baradei, töldu sig viss um að það væri rétt.

Talið er að kjarn­orku­vopna­búr Norður-Kóreu sé lítið og frekar ein­falt. Auk þess er talið að ríkið búi yfir efna­vopnum af ein­hverju tagi. Upp­lýs­ingar um vopna­búr Norður-Kóreu eru að miklu leyti get­gátur vegna þess hversu lokað landið er og fá tæki­færi eru til að afla upp­lýs­inga. Helstu banda­menn Norður-Kóreu á alþjóða­vett­vangi eru til að mynda Kín­verjar, sem vilja jafn­framt halda spil­unum þétt að sér hvað varðar hern­að­ar­mátt.

Kraftur þess­ara kjarn­orku­sprengja sem talið er að Norður-Kórea hafi tek­ist að smíða eru, eftir því hver er spurður, á bil­inu 6-40 kílótonn að stærð. Til sam­an­burðar þá var kraftur stærstu sprengj­unnar sem Banda­ríkin pruf­uðu 15 megatonn.

Flug­skeyti Norður-Kóreu eru heldur ekki full­komin, borið saman við vopna­búr Vest­ur­landa. Lengsta vega­lengd flug­skeytis sem getur borið kjarn­orku­sprengju er talin vera 4.000 kíló­metrar. Það mundi þó duga til að senda kjarn­orku­sprengju á nær alla Síberíu í vestri og norðri, á nyrstu eyjar Indónesíu í suðri og í mitt Kyrra­hafið í austri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár