Björt: Af hverju er engin niðurstaða komin frá ráðherra um sæstreng?

Björt Ólafs­dóttir, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, gagn­rýndi Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, á þingi í dag fyrir seina­gang í mati á kostum og göllum á lagn­ingu sæstrengs. Eitt og hálft ár væri liðið frá því að atvinnu­vega­nefnd þings­ins beindi því til ráð­herr­ans með ein­róma nefnd­ar­á­liti að klára þessa vinnu. „Skila­boðin voru mjög skýr. Við sögðum: Komdu með þær upp­lýs­ingar sem upp á vantar, láttu gera þær hag­kvæmni- og umhverf­is­at­hug­anir sem upp á vantar, farðu í við­ræður um fyr­ir­komu­lag og verð við bresk stjórn­völd svo þú getir tekið ákvörðun um það hvort verk­efnið er málið eða ekki,“ sagði Björt.

Nú væri hins vegar komið að lokum vor­þings 2015 og því eitt og hálft ár liðið. „Í venju­legum fyr­ir­tækjum undir stjórn styrkrar for­ystu myndi svona eft­ir­vinna sem var eftir taka 6–9 mán­uði, en enn er engin nið­ur­staða komin frá hæst­virtum ráð­herra. Af hverju ætli það sé?“ spurði Björt í ræðu sinni undir liðnum störf þings­ins, sem þýðir að Ragn­heiður Elín gat ekki svarað spurn­ingum hennar.

Björt sagði að málið væri ekki for­gangs­mál hjá ráð­herra að athuga „hvort og þá hvernig Íslend­ingar geti fengið allt að sjö sinnum hærra verð fyrir ork­una en við erum að selja hana á núna til stór­iðju? Við erum að tala um marga tugi millj­arða á ári auka­lega í rík­is­sjóð ef rétt reyn­ist.“ Þá spurði Björt af hverju ekki væri verið að athuga sam­legð­ar­á­hrif við upp­bygg­ingu raf­orku­kerf­is­ins á Íslandi, því þau verk­efni gætu farið hönd í hönd.

„Ég vil fá að sjá nið­ur­stöðu af þess­ari vinnu og Alþingi þarf að kalla mjög skýrt eftir henni því að ráð­herra er hér til að fram­kvæma það sem hér er ákveðið.“

Hér má sjá ræðu Bjartar í heild sinni.

Verið að ganga frá útboði á greiningu á áhrifum sæstrengs


Rík­is­kaup eru nýlega búin að bjóða út „ítar­lega þjóð­hags­lega kostn­aðar- og ábata­grein­ingu á áhrifum raf­orku­sæ­strengs á íslenskt sam­fé­lag.“ Búið er að opna til­boðin og kom í ljós í lok mars að Straumur fjár­fest­inga­banki átti lægsta boðið í grein­ing­una. Ellefu til­boð bár­ust og hljóð­aði til­boð Straums upp á 11,9 millj­ónir króna. Ekki hefur þó enn verið gengið frá mál­inu. Þessi grein­ing er liður í hag­kvæmn­is­at­hugun íslenskra stjórn­valda á lagn­ingu sæstrengs.

Í nóv­em­ber síð­ast­liðnum var sam­þykkt á Alþingi beiðni frá öllum þing­mönnum Sam­fylk­ing­ar­innar um skýrslu frá Ragn­heiði Elínu „um lyk­il­þætti er varða mögu­legan útflutn­ing orku um sæstreng.“ Skýrslan hefur ekki verið flutt.

Í lok nóv­em­ber, á árs­fundi Lands­virkj­unar, greindi Ragn­heiður Elín frá því að hún hefði skipað nýja verk­efn­is­stjórn til að halda áfram skoðun á sæstreng. Í henni sitja Ragna Árna­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unar, Þórður Guð­munds­son, for­stjóri Lands­nets og Ingvi Már Pálsson, skrif­stofu­stjóri í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu. „Ég lít því svo á að mál­efni sæstrengs séu í vand­aðri og fag­legri áfram­hald­andi skoðun,“ sagði Ragn­heiður Elín þá.

Kjarninn og Íslensk verð­bréf stóðu fyrir opnum fundi um mál­efni sæstrengs í gær­morgun. Þar kom fram í máli Charles Hendry, fyrr­ver­andi orku­mála­ráð­herra Bret­lands og núver­andi ráð­gjafa aðila sem vilja koma að lagn­ingu strengs þangað, að áhugi Breta á sæstreng frá Íslandi myndi ekki breyt­ast. Allir flokkar hefðu sam­mælst um mik­il­vægi orku­mála. Þá mátti einnig greina í máli hans að bolt­inn væri hjá Íslend­ingum og íslensk stjórn­völd þyrftu að sýna mál­inu áhuga á næst­unni ef af lagn­ingu sæstrengs á að geta orðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár